Aðdáendahópar Pútíns spretta upp á Facebook

Innrás Rússa í Úkraínu hefur verið for­dæmd harka­lega víða um heim. Gagn­rýnin bein­ist helst að Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta og nú hafa sprottið upp aðdá­enda­hópar honum til heiður á Facebook þar sem mark­miðið er að sýna leið­tog­ann „í réttu ljósi“.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti að leika við hunda í snjónum er vinsælt efni á hópum helstu aðdáenda hans á Facebook.
Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti að leika við hunda í snjónum er vin­sælt efni á hópum helstu aðdá­enda hans á Facebook. Mynd: EPA

Facebook-hópar þar sem Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti er sýndur sem vel­vilj­aður, brosmildur og frið­elsk­andi leið­togi hafa skotið upp koll­inum á sam­fé­lags­miðl­inum frá því að stríðið í Úkraínu hófst fyrir rúmum einum og hálfum mán­uði.

Millj­ónir manns hafa séð færslur þar sem sjá má Pútín dást að krútt­legum dýrum, í fal­legum barna­skara eða í valda­miklum upp­still­ingum. Þau sem standa á bak við þessa Facebook-hópa eru ofurað­dá­endur Pútíns. Blaða­menn BBC hafa ásamt rann­sak­endum hjá hug­veit­unni Institute for Stratetic Dialogue (ISD) reynt að kom­ast til botns í því hvaðan þessir aðdá­endur koma og hvað það er nákvæm­lega sem þeir gera.

Að minnsta kosti tíu Facebook-hópar, sem eru ýmist opnir öllum eða lok­aðir hópar, hafa verið stofn­aðir frá því að stríðið í Úkraínu hófst 24. febr­úar. Heiti hópanna tengj­ast Pútín á einn eða annan hátt, til að mynda Russia: True Leader of the Free World, Vladimir Putin - Defender of Russia og Friends of Vladimir Putin and the Russia.

Samtals eru með­limir hópanna um 650 þús­und og sjá þeir myndir og færslur þar sem Pútín er lof­aður í hástert á nokkrum tungu­málum, svo sem ensku, rúss­nesku, arab­ísku, pers­nesku og khmer, sem talað er í Kambódíu.

Yfir þrjár og hálf milljón séð loffærslur um Pútín á Facebook

Mikil virkni er í hóp­unum. Síð­ast­lið­inn mánuð töldu rann­sak­endur ISD alls 16.500 færslur sem náðu til 3,6 millj­ónir manna. Markmið hópanna virð­ist vera að sýna Pútín sem hetju sem berst gegn Vest­ur­löndum með yfir­gnæf­andi stuðn­ingi alþjóða­sam­fé­lags­ins.

Á myndum sem birtar eru í hóp­unum má meðal ann­ars sjá Pútín í valda­miklum stell­ingum, hald­andi á hvolpum, stara djúpum augum í mynda­vél­ina, heilsa upp á her­lið og á baki ýmis konar dýra, allt frá hestum til ljóna. Sumir hóp­arnir hafa verið til lengi en frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst 24. febr­úar hefur með­limum þeirra fjölgað um meira en hund­rað þús­und.

Rann­sak­endur ISD-hug­veit­unnar komust að því að margir stjórn­endur hópanna eiga fleiri en einn aðgang undir sama nafni. Að minnsta kosti 100 dæmi eru um slíkt í hóp­unum. Eigendur þessa aðganga fylgja hver öðrum og bregð­ast við færslum hver ann­arra með hjörtum eða öðrum lynd­is­táknum. Þá láta stjórn­endur hópanna líta út fyrir að hóp­ur­inn sé á vegum rúss­neskra yfir­valda eða leyni­þjón­ust­unnar, sem er aug­ljós­lega ekki rétt.

Margir aðgangar undir sama nafni kunna að brjóta gegn reglum Facebook um áreið­an­lega hegðun að mati rann­sak­enda ISD. Moustafa Ayad, yfir­rann­sak­andi hug­veit­unnar, segir starf­semi hópanna dæmi um svo­kallað „astrot­urf­ing“, þar sem skila­boðum er komið á fram­færi þar sem látið er líta út fyrir að upp­runi þeirra sé hjá við­ur­kenndum aðila, svo sem stjórn­völdum.

Her­ferðin „gefur til kynna útbreiddan stuðn­ing við Pútín og stjórn­völd í Kreml í skugga inn­rás­ar­innar og treystir á óáreið­an­lega aðganga til að ná mark­miði sínu,“ segir í skýrslu ISD um aðdá­enda­hópa Pútíns á Facebook.

Blaða­menn BBC grennsl­uð­ust fyrir um stjórn­endur hópanna og komust að ýmsu mis­jöfnu. Einn stjórn­and­inn, Marine, sem seg­ist vera búsett í Sýrlandi, notar þrjá mis­mun­andi aðganga til að lýsa yfir stuðn­ingi við Pútín. Allir aðgangar hennar, sem eru á arab­ísku, birta færslur á sama tíma dags.

„Raj Pútín“ frá Kenýa: „Pútín er frábær leiðtogi“

Erf­ið­lega gekk að kom­ast í sam­band við stjórn­endur hópanna. Einn þeirra, sem gengur undir nafn­inu Raj Putin á Facebook og er frá Kenýa, svar­aði sím­tali blaða­manns. Í stuttu sam­tali sagði hann Rúss­lands­for­seta „frá­bæran leið­toga“ en vildi ekki ræða stríðið. Engin svör bár­ust við skrif­legri fyr­ir­spurn blaða­manns um ástæðu fyrir þessum mikla áhuga á Rúss­landi.

[links]Erfitt er að henda reiður á hvað tengir stjórn­endur hópanna. Engin aug­ljós tengsl eru við rúss­nesk yfir­völd líkt og í öðrum her­ferðum sem byggja á upp­lýs­inga­óreiðu, her­ferðin er ekki úthugsuð og stjórn­endur hópanna reyna ekki að fara leynt með mark­mið sitt, það er að lof­syngja Pútín. Ekki er því hægt að úti­loka að aðdá­enda­hóp­arnir haf ein­hver tengsl við rúss­nesk yfir­völd eða önnur öfl innan Rúss­lands sem eru hlið­holl Pútín.

Facebook er með sér­staka stefnu gagn­vart gervi-aðgöngum og hefur eytt nokkrum eftir ábend­ingar frá ISD og skýrslu hug­veit­unnar. „Við munum halda áfram að grípa til harðra aðgerða til að koma í veg fyrir dreif­ingu vill­andi upp­lýs­inga um krís­una í Úkraínu,“ segir tals­maður Meta, móð­ur­fyr­ir­tækis Facebook.

Pútín þarf ekki samfélagsmiðla

En það eru ekki bara hópar á Facebook sem snú­ast um Pútín, gervi­að­gangar í hans nafni hafa einnig verið að skjóta upp koll­inum. Pútín er einn af fáum heims­leið­togum sem eru ekki á sam­fé­lags­miðlum. Það sem meira er, hann á víst ekki einu sinni snjall­síma.

Samkvæmt tals­manni for­set­ans þarf hann ekki á sam­fé­lags­miðlum að halda þar sem þeir „veita honum ekk­ert sem hann hefur nú þegar“.

Ein­hverjir hafa ákveðið að nýta sér tæki­færið og stofna gervi­að­ganga í nafni Pútíns. Einn aðgang­ur­inn hefur nærri þrjár millj­ónir fylgj­enda en honum var eytt fljót­lega eftir að inn­rásin í Úkraínu hófst. Í einni af síð­ustu færsl­unum var talað um inn­rás­ina sem frið­ar­gæslu með það að mark­miði að stuðla að afvopnun nágranna­rík­is­ins. Ekki er vitað hver stóð á bak við aðgang­inn en upp­runi hans er rak­inn til Rúss­lands og Lett­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár