Bjarni mun ekki leggja aftur til að Bankasýslan verði lögð niður

Bjarni Bene­dikts­son lagði fram frum­varp í apríl sem gerði ráð fyrir þvi að Banka­sýsla rík­is­ins yrði lögð niður. Hann hefur nú stað­fest að ekki standi lengur til að gera það. Þess í stað mun hún sjá um stærstu einka­væð­ingu Íslands­sög­unnar.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur ekki uppi áform að svo komnu máli að leggja frum­varp um nið­ur­lagn­ingu Banka­sýslu rík­is­ins fram að nýju. Bjarni lagði frum­varp sem fól slíka nið­ur­lagn­ingu í sér 1. apríl 2015 og sam­kvæmt frum­varpi til fjár­laga þessa árs sem lagt var fram í sept­em­ber í fyrra var ekki gert ráð fyrir neinum fjár­munum í rekstur Banka­sýsl­unnar. Þegar fjár­lög voru afgreidd í des­em­ber var hins vegar búið að þre­falda þá upp­hæð stofnun fær á í ár frá því sem rann til hennar úr rík­is­sjóði árið 2015. Í stað þess að loka Banka­sýsl­unni verður hún ein áhrifa­mesta stofnun lands­ins í nán­ustu fram­tíð. Hún heldur á hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, er að und­ir­búa sölu á 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum sem fyr­ir­huguð er í ár, og mun taka á móti Íslands­banka þegar kröfu­hafar Glitnis afhenda rík­inu hann á næstu miss­erum.

Var að fylgja eftir tillögum hagræðingarhóps

Ljóst er að áætl­anir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag á stjórn­sýslu á sviði eigna­um­sýslu í fjár­mála­fyr­ir­tækjum hafa kúvenst á nokkrum mán­uðum.

Kjarninn beindi því fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar um málið og spurði hvað hefði breyst frá því í apríl, þegar leggja átti Banka­sýsl­una niður, og fram í des­em­ber þegar fram­lög hennar voru þre­földuð og hlut­verk hennar stór­aukið?

Í svari Teits Björns Ein­ars­sonar, aðstoð­ar­manns fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það hafi verið ein af til­lögum hag­ræð­ing­ar­hóps rík­is­stjórn­ar­innar, sem skil­aði til­lögum sínum í nóv­em­ber 2013 að leggja Banka­sýslu rík­is­ins niður og flytja verk­efni hennar til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Í lok jan­úar 2014 hafi rík­is­stjórnin sam­þykkt fyr­ir­komu­lag um fram­kvæmd og eft­ir­fylgni á til­lögum hag­ræð­ing­ar­hóps­ins sem í fólst að hver ráð­herra bæri ábyrgð á eft­ir­fylgni til­laga á sínu sviði. Bjarni Bene­dikts­son bæri því ábyrgð á fram­kvæmd og eft­ir­fylgni þess að leggja Banka­sýslu rík­is­ins niður ef það yrði nið­ur­staða hans að gera það.

Bankasölur áttu að heyra undir ráðuneytið

Í apríl 2015 lagði Bjarni fram frum­varp til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Samkvæmt frum­varp­inu átti að leggja Banka­sýslu rík­is­ins, sem í dag fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í bönkum, niður og færa eign­ar­hluti í fjár­mála­fyr­ir­tækjum undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann átti auk þess að setja sér­staka eig­enda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjafa­nefnd, án til­nefn­ingar, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra hluta.

Aðstoð­ar­maður Bjarna segir í svari sínu til Kjarnans að frum­varpið, sem hafi ekki verið útrætt á vor­þingi síð­asta árs, hafi ekki falið í sér veiga­mikla breyt­ingu á þeim lag­ara­mma sem í gildi sé og þeim meg­in­reglum sem þegar hafi verið settar með núgild­andi lögum um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Í því fólst hins vegar að allt sölu­ferli þeirra banka sem ríkið á hlut í og ætlar sér að selja yrði fært frá Banka­sýslu rík­is­ins og yfir til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Ráð­herr­ann sem réði því hverju sinni gæti þá, að eigin frum­kvæði, eða að feng­inni til­lögu ráð­gjafa­nefndar sem hann einn skipar, stýrt nýju banka­einka­væð­ing­ar­ferli. Þegar slík ákvörðun liggur fyrir skal lögð áhersla á, sam­kvæmt frum­varp­inu, „opið sölu­ferli, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni. Með hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­boðs­gjöfum eru sett séu sann­gjörn og að þeir njóti jafn­ræðis. Við sölu skal kapp­kosta að efla virka og eðli­lega sam­keppni á fjár­mála­mark­aði“.

Hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist

Það vakti óneit­an­lega mikla athygli að þrátt fyrir þann skýra vilja sem birt­ist í frum­varpi til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum þá hélt Banka­sýsla rík­is­ins áfram að und­ir­búa sig og starfa eins og að hún yrði til á árinu 2016. Hún gerði áfram ráð fyrir því að hún myndi sjá um sölu á eign­ar­hlutnum í Lands­bank­anum sem til stendur að selja. Það kom m.a. fram í bréfi sem stofn­unin sendi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í sept­em­ber, þess efnis að stofn­unin myndi skila af sér til­lögu til ráð­herr­ans um sölu­með­ferð á 30 pró­senta eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum fyrir 31. jan­úar næst­kom­andi.

Í októ­ber aug­lýsti Banka­sýslan svo eftir starfs­fólki í verk­efni tengd fyr­ir­hug­aðri sölu­með­ferð rík­is­ins á eign­ar­hlut í Lands­bank­anum hf. Banka­sýslan óskaði eftir sér­fræð­ingi í eigna­um­sýslu og lög­fræð­ingi og hyggst ráða tvo til þrjá ein­stak­linga í tíma­bundin verk­efni. Seint í nóv­em­ber voru Hrafn Árnason og Þórólfur Heiðar Þor­steins­son ráðnir til Banka­sýsl­unnar í verk­efnið. Hrafn var áður for­stöðu­maður VÍB, eigna­stýr­ing­ar­sviðs Íslands­banka, en Þórólfur Heiðar starf­aði síð­ast sem lög­maður hjá BBA Legal.

Þetta var allt gert áður en breyt­ing­ar­til­laga var lögð fram við fjár­lög árs­ins 2016 sem gerði ráð fyrir því að Banka­sýslan myndi fá nokkur fé á fjár­lögum þessa árs. Hún var ekki lögð fram fyrr en snemma í des­em­ber. Samkvæmt henni fær Banka­sýslan 97 millj­ónir króna til að reka sig á næsta ári.

Í svari aðstoð­ar­manns Bjarna segir að „Banka­sýsla rík­is­ins mun áfram sinna þeim verk­efnum sem henni ber lögum sam­kvæmt og ekki uppi áform að svo komnu máli að leggja frum­varp um nið­ur­lagn­ingu Banka­sýslu rík­is­ins fram að nýju.“

Bankasýslan mun sjá um stærstu einkavæðingar Íslandssögunnar

Banka­sýslan mun því sjá um fram­kvæmd á stærstu einka­væð­ingu Íslands­sög­unnar. Eign­ar­hlutir í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem afhentir verða sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi verða færðir til Banka­sýsl­unnar. Það þýðir að Íslands­banki mun fara til hennar þegar kröfu­hafar afhenda rík­inu hann.

Eign­ar­hlutur rík­is­ins í Lands­bank­anum, 98 pró­sent, er sem stendur langstærsta eignin sem er í umsjón Banka­sýsl­unnar. Í fjár­laga­frum­varp­inu 2016 kemur fram að gert er ráð fyrir að sala á allt að 30 pró­senta hlut fari fram á seinni hluta árs­ins, en það verður ein stærsta einka­væð­ing sög­unnar.

Heimild til þess að selja hlut af hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum hefur verið í lögum frá árinu 2011. Í fjar­laga­frum­varpi árs­ins 2016 kemur fram að ríkið geri ráð fyrir því að um 71 millj­arður króna fáist fyrir 30 pró­senta hlut og að ágóð­inn verði greiddur inn á skulda­bréf sem voru gefin út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008.

Til við­bótar hefur Bjarni Bene­dikts­son ítrekað sagt að það sé ekki fram­tíð­ar­lausn að ríkið eigi allt hlutafé í Íslands­banka. Því má búast við að ríkið muni selja Íslands­banka þegar það eign­ast hann. Auk þess hefur opin­ber­lega verið greint frá áhuga íslenskra líf­eyr­is­sjóða og erlendra aðila á því að kaupa Arion banka, en Banka­sýsla rík­is­ins heldur á þrettán pró­sent hlut rík­is­ins í honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár