„Einu jákvæðu félagslegu samskipti sonar míns eru í Baklandinu“

Um ára­mótin ætlar Reykja­nes­bær að hætta með úrræðið Bak­landið, sem er ætlað börnum sem þurfa aðstoð eftir skóla sem þau geta ekki fengið heima hjá sér. Bæj­ar­yf­ir­völd segja for­eldra engu þurfa að kvíða, þar sem ein­stak­lings­bundin þjón­usta í nærum­hverfi barns­ins komi í stað­inn. Móðir drengs sem nýtir sér úrræðið segir slíkar lausnir ekki geta komið í stað Bak­lands­ins.

Harpa með syni sínum, Hrafnkatli Emil
Harpa með syni sínum, Hrafn­katli Emil Tveir synir Hörpu hafa notið þjón­ustu Bak­lands­ins. Harpa segir þjón­ust­una hafa reynst þeim báðum afar mik­il­væg. Þar hafi þeir upp­lifað jákvæð sam­skipti við jafn­aldra sína sem þeir fái ekki ann­ars staðar. Mynd: Úr einkasafni

Reykja­nes­bær hefur tekið ákvörðun um að loka Bak­land­inu, úrræði sem hefur staðið börnum til boða sem þarfn­ast aðstoðar sem þau geta ekki fengið heima hjá sér, um ára­mótin. For­eldrar barna sem nýta sér úrræðið hafa lýst yfir áhyggjum af þessu og telja að þær lausnir sem bæj­ar­yf­ir­völd hygg­ist bjóða í stað­inn dugi ekki til að bæta fyrir miss­inn.   

„Eldri strák­ur­inn minn, sem er 15 ára í dag, var í Bak­land­inu í nokkur ár. Það voru algjör bjarg­ráð fyrir hann. Í Bak­land­inu voru nán­ast einu jákvæðu félags­legu sam­skipti hans við önnur börn. Yngri strák­ur­inn minn, sem er níu ára, er með þrjár grein­ingar, Asperger, ADHD og Tourette. Hann er ofsa­lega flottur strákur og það eru engin vanda­mál með hann, þannig séð, nema þau að hann er ekki í neinum jákvæðum sam­skiptum við jafn­aldra sína. Honum gengur vel í skól­anum en hann er alltaf einn. Einu jákvæðu félags­legu sam­skipti hans við jafn­aldra sína eru í Bak­land­inu,“ segir Harpa Erlu Júl­í­us­dóttir. Hún hefur miklar áhyggjur af því að bæj­ar­yf­ir­völd hygg­ist loka því um ára­mótin.

„Honum gengur vel í skól­anum en hann er alltaf einn. Einu jákvæðu félags­legu sam­skipti hans við jafn­aldra sína eru í Bak­land­inu.“

Í svari frá vel­ferð­ar­sviði Reykja­nes­bæjar við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um ástæður lok­un­ar­innar segir að sparn­aður sé ekki ástæðan. Rekstr­ar­kostn­aður úrræð­is­ins, fyrir utan hús­næði, sé 4,5 millj­ónir króna og ekki sé búist við að hann lækki, heldur komi hann fram í öðrum rekstr­ar­liðum, svo sem í til­sjón, lið­veislu, per­sónu­legri ráð­gjöf eða stuðn­ings­fjöl­skyldum. For­eldrar þurfi engu að kvíða, því ein­stak­lings­bundin þjón­usta sem fari fram í nærum­hverfi barns­ins komi í stað­inn. Harpa, aftur á móti, kvíðir breyt­ing­unum mjög. Hún segir að ekk­ert af þessu geti komið í stað­inn fyrir það sem börn fái í Bak­land­inu. Bæj­ar­yf­ir­völd taki ekki inn í mynd­ina hversu mik­il­væg þau félags­legu tengsl sem börnin fái í Bak­land­inu séu.

Ein af ástæðum þess að end­ur­skoða á úrræðið, sem hefur verið við lýði frá árinu 2010, er að mis­jafnt hefur vel hversu vel það hefur verið nýtt. Tveir félags­ráð­gjafar á vegum Barna­verndar Reykja­nes­bæjar hafa veg og vanda af því og sextán börn nýta úrræðið í allt að sex stundir í viku hvert, yfir­leitt tvisvar í viku. Það fer eftir þörfum þeirra hvað þau gera í Bak­land­inu. Þau fá kaffi­tíma, sum þeirra klára heima­námið þar á meðan önnur spila eða dunda sér við aðra hluti. „Þarna fá þau jákvæð félags­leg sam­skipti í góðu og rólegu umhverfi. Minn strákur, til að mynda, er mjög sterkur náms­lega og þarf ekki á heima­náms­að­stoð að halda. Mér fannst mjög pirr­andi þegar bæj­ar­stjór­inn okkar sagði í svari á Facebook að að börnin fengju heima­náms­að­stoð ann­ars staðar. Málið snýst ekk­ert um það. Heima­náms­að­stoð er aðeins lít­ill hluti af Bak­land­inu.“

„Mér fannst mjög pirr­andi þegar bæj­ar­stjór­inn okkar sagði í svari á Facebook að að börnin fengju heima­náms­að­stoð ann­ars staðar.“

Úrræði eins og lið­veisla sé ekki svarið, í það minnsta ekki í til­viki sonar hennar. „Sonur minn er einn af þeim sem hefur án efa rétt á lið­veislu. Auðvitað væri frá­bært ef hann fengi lið­veislu en það kemur ekki í stað­inn fyrir Bak­landið. Hann er alltaf í full­orð­ins­sam­skiptum, ann­að­hvort við okkur, for­eldra sinna eða ömmu sína og afa. Þau tengsl sem hann fær í Bak­land­inu eru honum lífs­nauð­syn­leg. Þarna lærir hann félags­leg sam­skipti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár