Án nýrrar lántöku yrði lausafé Strætó á þrotum innan fárra vikna

Blikur eru á lofti í rekstri Strætó út af faraldrinum. Samkvæmt nýlegri fjármála­greiningu frá KPMG verður ekki hægt að endurnýja vagna­flotann í takt við þarfir nema með stórauknu framlagi eigenda, sveitar­félaganna á höfuð­borgar­svæðinu.

Horfur eru á því að handbært fé Strætó bs. verði uppurið á fyrstu mánuðum ársins, en Strætó gerir ráð fyrir að taka 400 milljónir króna að láni í vor til þess að fleyta sér í gegnum árið. Lítið má út af bregða til þess að félagið geti ekki sinnt samnings­bundinni þjónustu sinni við ríki og sveitar­félög.

Þetta er á meðal niður­staðna í fjármála­greiningu sem Strætó bs. fékk ráðgjafar­svið KPMG til þess að vinna fyrir sig vegna þeirra stöðu sem byggða­samlagið er komið í sökum COVID-19 faraldursins, en farþega­tekjur hafa hrunið í faraldrinum og voru um 800 milljónum lægri en áætlun fyrir árið 2020 gerði ráð fyrir. Rekstrartap Strætó nam yfir hálfum milljarði vegna þessa.

Jóhannes Svavar Rúnarsson framkvæmda­stjóri Strætó fékk í lok síðasta árs heimild hjá stjórn til þess að taka allt að 300 milljón króna yfirdráttar­heimild til þess að mæta lausafjár­stöðu fyrir­tækisins til skamms tíma. Hann segir við Kjarnann að umræður um hvernig skuli takast á við fjárhags­stöðuna fari þessa dagana fram á meðal eigenda Strætó, sveitar­félaganna á höfuð­borgar­svæðinu.

Fjármála­greining KPMG er dagsett 25. janúar og var kynnt fyrir stjórn Strætó á síðasta fundi hennar, 29. janúar. Hún hefur ekki verið gerð opinber, en Kjarninn fékk skjalið afhent frá Strætó.

Fargjaldatekjur í ár verði um 80 prósent af tekjum ársins 2019

Samkvæmt áætlunum sem þar eru til umfjöllunar er ekki gert ráð fyrir því að farþega­tekjur nái sömu hæðum og árið 2019 fyrr en á næsta ári. Í ár er gert ráð fyrir því að þær verði um 80 prósent af farþega­tekjum ársins 2019. Veruleg óvissa þykir um þróunina næstu misseri og það hversu lengi áhrifa COVID-faraldursins kemur til með að gæta.

Áætluð sjóðstaða Strætó bs. með og án lántöku á vormánuðum.
Áætluð sjóð­staða Strætó bs. með og án lán­töku á vor­mán­uðum.

Samkvæmt greiningu KPMG er mikilvægt að Strætó hafi aðgengi að um 300 milljónum króna í handbæru fé á hverjum tíma til þess að mæta stærstu útgjalda­liðum innan mánaðar.

Ef ekki yrði tekið 400 milljón króna lán núna á næstu mánuðum yrði sjóð­staðan hins vegar komin við núllið í mars og orðin neikvæð í apríl. Með lántöku í apríl er hins vegar gert ráð fyrir að sjóð­staðan verði jákvæð allt árið og standi í um 250 milljónum króna undir lok árs.

Lítil fjárfestingageta og flotinn gamall

Í greiningu KPMG segir að aldurs­samsetning strætis­vagna­flota Strætó kalli ýmist á miklar fjár­festingar á næstu árum eða aukna útvistun aksturs til einka­aðila, en þegar í dag er um helmingur af öllum akstri Strætó í höndum verktaka.

Mikil uppsöfnuð endurnýjunar­þörf er til staðar, en Strætó á tvo vagna sem voru keyptir inn á aldamóta­árinu 2000. Þeir eru ekki notaðir mikið, að sögn framkvæmda­stjórans. Alls 28 vagnar af alls 88 í flotanum voru keyptir inn fyrir árið 2010 og meðal­aldur þeirra er um 16 ár.

Heilt yfir er meðal­aldur vagnanna um 9 ár, en Strætó telur eðlilegt viðmið til lengri tíma að notast ekki við vagna í meira en 10 ár og að meðal­aldur flotans á hverjum tíma­punkti sé um 5 ár. Ekki hefur verið keyptur nýr vagn síðan árið 2019 og engin vagnakaup á áætlun í ár.

Það er vont að nota gamla strætis­vagna, því þá þarf að vera aukinn fjöldi varavagna til staðar vegna tíðra bilana. Í dag eru 26 vara­vagnar í flota Strætó eða um það bil 30 prósent af heildar­flotanum. Strætó telur eðlilegt að þetta hlutfall ætti að vera nær 12-15 prósentum. Til þess að svo geti verið þarf flotinn hins vegar að vera yngri.

Nýir vagnar eru dýrir og KPMG teiknar upp mynd sem sýnir að fjár­festinga­geta Strætó er afar takmörkuð. Samkvæmt greiningu þeirra hefur Strætó miðað við óbreyttar rekstrar­horfur ekki burði til að fara í þær fjár­festingar sem þarf til að yngja upp flotann nema að „til kæmu veruleg framlög frá sveitar­félögum eða hinu opinbera.“

Áætlað er að sveitar­félögin sem eiga Strætó muni leggja fyrir­tækinu til um 4,33 milljarða króna á þessu ári og til viðbótar er gert ráð fyrir 900 milljóna króna framlagi úr ríkis­sjóði. Áætlað er að farþega­tekjur nemi 1,67 milljörðum á þessu ári og auk þess er áætlað að Strætó fái rösklega 1,6 milljarða króna í tekjur fyrir að sinna aksturs­þjónustu fatlaðra.

KPMG gefur sér að hver nýr strætis­vagn kosti 63 milljónir króna. Því myndi kosta 880 milljónir að endurnýja þá 28 vagna sem eru eldri en 10 ára og svo myndi kosta um 1,5 milljarða til viðbótar að endurnýja þá 33 vagna sem keyptir voru á árunum 2013 og 2014. Þá var ráðist í umfangs­mikla endurnýjun flotans í kjölfar þess að einungis einn strætis­vagn var keyptur frá 2008-2012 í kjölfar hruns.

Ekki er útlit fyrir að Strætó hafi efni á því að ráðast í annað slíkt átak að óbreyttu. KPMG telur á að ávinningur gæti falist í að útvista akstri í auknum mæli, meðal annars þar sem „komist yrði hjá verulegri fjár­bindingu í nýjum vögnum.“ Ráðgjafar KPMG telja þörf á að móta skýra stefnu um þetta og setja á fót aðgerða­áætlun til þess að fylgja þeirri stefnu eftir.

Tímafrekt að bjóða út akstur

Jóhannes Svavar framkvæmda­stjóri segir við Kjarnann að þær ábendingar sem KPMG kom með séu til skoðunar, en bendir á að það sé „tíma­frekur prósess“ að bjóða aksturinn út til verktaka og það sé ekki eitthvað sem leysin málin til skemmri tíma.

Jóhannes Svavar Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó.
Jóhannes Svavar Rún­ars­son fram­kvæmda­stjóri Strætó.

Hann segir enn fremur að pólitísk stefnu­mörkun eigendanna ráði för hvað þetta varðar, en bendir um leið á að í flestum öðrum norrænum höfuð­borgum sé allur aksturinn í strætis­vagna­kerfinu aðkeyptur.

Unnið út frá því að Borgarlína og Strætó verði eitt fyrirtæki

Á næstu árum mun Borgar­lína tvinnast inn í almennings­samgöngurnar á höfuð­borgar­svæðinu og taka yfir stofn­leiðir Strætó, eina af annarri. Blaða­maður spurði Jóhannes hvort einhver ákvörðun hefði verið tekin um að fresta því að endurnýja vagna­flota Strætó þar til Borgar­línan komi inn í kerfið, en svo segir hann ekki vera.

Ráðgert er að vagnar Borgar­línu verði á bilinu 18-24 metra langir. Þá vagna mun þurfa að kaupa og svo reka, en ekki er búið að ákveða hvernig því eða rekstrinum á almennings­samgöngum höfuð­borgar­svæðisins verður nákvæmlega háttað til framtíðar. Jóhannes segir þá umræðu í gangi núna, það sé svona næsta verkefni á eftir útgáfu frumdraga­skýrslunnar að fyrstu lotu Borgar­línu, að fara að leggjast yfir það.

Hann segir að innan Strætó sé gengið út frá því að um eitt fyrirtæki verði að ræða. Hvort rekstrar­einingin muni svo heita Borgar­lína, Strætó eða eitthvað annað verði að ákveða á pólitískum vettvangi eigendanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár