Nánast sama verð í Bónus og Krónunni

Iceland er oft­ast með hæsta verðið. Yfir­leitt var yfir 40% verð­munur á hæsta og lægsta verði.

Bónus
Bónus Lítill munur var á verði í Krónunni og Bónus.

Lítill munur er á verði í Bónus og Krónunni, en versl­unin Iceland var oft­ast með hæsta verðið. Oftast var yfir 40% verð­munur á hæsta og lægsta verði. Þetta kemur fram í nýrri verð­könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ sem gerð var 28. ágúst.

Samkvæmt könn­un­inni var í um þriðj­ungi til­fella yfir 60% munur á hæsta og lægsta verði. Ódýrasta mat­ar­k­arfan var í Bónus á 8.210 kr., en hún var aðeins 27 krónum dýr­ari í Krónunni og oft­ast fárra króna munur á ein­staka vörum. Hagkaup var með næst­dýr­ustu körf­una á 9.469 kr. og var sú dýrasta í Iceland á 10.612 kr.

Í könn­un­inni var hillu­verð á 100 vörum skráð niður og ef afsláttur var skráður á hillu var hann tek­inn til greina. Könnunin var fram­kvæmd í öllum versl­unum á sama tíma. „Neyt­endur geta því auð­veld­lega sparað sér tölu­verðar upp­hæðir með því að versla þar sem vöru­verð er lágt,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Tölu­verður munur getur verið á ein­staka vöru­teg­undum. Þannig er ódýrasta Cherrio's á mun lægra verði í Krónunni en Bónus, eða 753 krónur kílóið, ann­ars vegar, og 1.149 krónur kílóið, hins vegar. Libero-bleyjur eru á móti rúm­lega 100 krónum ódýr­ari í Bónus en Krónunni, 595 krónur og 698 krónur pakk­inn.

Verslun Costco var einnig tekin með í verð­könn­un­inni, en þar sem vöru­úr­val þar reynd­ist illa sam­bæri­legt við hinar versl­an­irnar er ekki hægt að bera saman verð á vöru­körfu þar og ann­ars staðar. Bláber voru hins vegar lang­sam­lega ódýr­ust í Costco, en á móti kemur að ýsuflökin voru þar dýr­ust, app­el­sín­urnar voru þar tölu­vert dýr­ari en í Bónus, sem og ban­anar og sætar kart­öflur.

Nánar má lesa um verð­könn­un­ina á vef­síðu ASÍ.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár