Kjósendur Flokks fólksins safna skuldum en kjósendur Sjálfstæðisflokksins safna sparifé

Fjár­hagur heim­il­anna fer versn­andi og þeim fjölgar sem ekki ná endum saman hver mán­aða­mót. Kjós­endur Flokks fólks­ins og Sós­í­alista safna skuldum á meðan kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins geta safnað sparifé.

Fjárhagur heimilanna
Fjár­hagur heim­il­anna 18 pró­sent heim­ila í land­inu safna skuldum eða nota sparifé til að ná end­urm saman. Hlut­fallið hefur ekki verið jafn hátt í sjö ár. Mynd: Shutterstock

Hlutfall þeirra sem ekki ná endum saman um mán­aða­mót hefur ekki verið jafn hátt í sjö ár sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup um fjár­hag heim­ila og fátækt. 18 pró­sent ná ekki endum saman. Hlutfall þeirra sem ná að safna sparifé er 58 pró­sent og hefur ekki mælst lægra síðan fyrir sex árum. 

Frá hruni hefur fjár­hagur heim­il­anna vænkast jafnt og þétt og var bestur fyrir tveimur árum, þegar sam­komu­tak­mark­anir vegna heims­far­ald­urs voru í gildi. Þá náðu nærri sjö af hverjum tíu heim­ilum að safna sparifé en sex pró­sent söfn­uðu skuldum eða not­uðu sparifé til að ná endum saman. 

Nú fjölgar þeim aftur sem ekki ná endum saman og er nú jafn hátt og það var árið 2016. Átta pró­sent heim­ila safna skuldum og 10 pró­sent nota sparifé til að ná endum saman. Ríflega 32 pró­sent svar­enda segja ein­hvern í fjöl­skyldu sinni búa við fátækt, annað hvort í nán­ustu fjöl­skyldu eða nánir ætt­ingjar. 

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins safna síst skuldum og leggja mest fyrir. Tíu pró­sent þeirra sem kysu Sjálf­stæð­is­flokks­ins ef kosið yrði til Alþingis í dag safna skuldum eða nota sparifé til að ná endum saman en 67 pró­sent geta safnað sparifé. 

Kjós­endur Flokks fólks­ins safna mestum skuldum og ná að leggja minnst fyrir. 34 pró­sent þeirra sem kysu Flokk fólks­ins ef kosið yrði til Alþingis í dag safna skuldum eða nota sparifé til að ná endum saman en 35 pró­sent geta safnað sparifé. Þar á eftir koma þau sem myndu kjósa Sós­í­alista­flokk­inn. 32 pró­sent þeirra safna skuldum eða nota sparifé til að ná endum saman en rúmur helm­ingur, 51 pró­sent, getur safnað sparifé. 

Fólk undir þrí­tugu nær helst að safna sparifé en fólk á milli þrí­tugs og fimm­tugs nær því síst. Þau sem búa í leigu­hús­næði eru tals­vert lík­legri til að safna skuldum en þau sem búa í eigin hús­næði eða í for­eldra­húsum. Ein­hleypir á aldr­inum 35-66 ára virð­ast helst safna skuldum. Á eftir þeim kemur yngra fjöl­skyldu­fólk, á aldr­inum 18-45 ára. Barnlaus pör og ein­hleypt fólk á aldr­inum 18-34 ára nær helst að safna sparifé. 

Nið­ur­stöður þjóð­ar­púls­ins eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 26. jan­úar til 6. febr­úar. Heild­ar­úr­taks­stærð var 1.697 og þátt­töku­hlut­fall var 49,4 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár