Nokkrar athyglisverðar staðreyndir um Super Bowl leikinn

Super Bowl, eða úrslita­leik­ur­inn um Ofur­skál­ina svoköll­uðu, fer fram í kvöld þegar ruðn­ings­liðin New England Patriots og Seattle Seahawks leiða saman hesta sína á leik­vangi háskól­ans í Phoenix.

Um er að ræða stærsta íþrótta­við­burð Banda­ríkj­anna ár hvert, en sýn­ingin í hálf­leik er jafnan stór­feng­leg. Í ár verður sýn­ingin í höndum popp­stjarn­anna Katy Perry og Missi Elliott.

Aðeins á þakk­ar­gjörð­ar­dag­inn inn­byrða Banda­ríkja­menn meira af mat en á sjálfan ofur­skálar-sunnu­dag­inn. Samkvæmt skemmti­legri sam­an­tekt banda­rísku ABC sjón­varps­stöðv­ar­innar um neyslu Banda­ríkja­manna á Super Bowl sunnu­deg­inum, inn­byrðir meðal banda­ríkja­mað­ur­inn um 2.000 kalor­íur á meðan á úrslita­leiknum stendur. Í sam­an­tekt ABC kemur jafn­framt fram að um 1,5 millj­ónir Banda­ríkja­manna muni ekki mæta í vinn­una í fyrra­málið sökum „veik­inda“ og 4,4 millj­ónir verði seinar í vinn­una.

Sam­an­tekt ABC má sjá hér að neðan.

Fyrir utan leik­inn sjálfan ríkir jafnan tölu­verð eft­ir­vænt­ing fyrir sjón­varps­aug­lýs­ing­unum sem fylgja útsend­ingu Ofur­skálar­innar. Mörg stærstu fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna slást um að tryggja sér pláss í aug­lýs­inga­hléum útsend­ing­ar­innar, en um 30 sek­úndna aug­lýs­inga­pláss hjá NBC, sem sendir út leik­inn, kostar um 4,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða röskar 600 millj­ónir íslenskra króna.

Aug­lýsendur veigra sér ekki við að reiða fram fjár­hæð­ina, enda horfðu um 112 millj­ónir á síð­asta Super Bowl leik. Aug­lýs­ing­arnar sem sýndar verða í kvöld eru komnar á netið og áhuga­samir geta barið þær augum hér, í umfjöllun ABC um Ofur­skál­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár