Lántakendur borga 280 milljónum minna vegna mistaka við tilkynningu frá Arion banka

Alls 23 þús­und við­skipta­vinir Arion banka með lán sem bera óverð­tryggða breyti­lega vexti munu greiða einu pró­sentu­stigi lægri vexti en þeir hefðu ann­ars gert frá 29. júlí til 25. sept­em­ber vegna mis­taka við til­kynn­ingu um vaxta­hækkun.

Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Höf­uð­stöðvar Arion banka, Borg­ar­túni 19 Mynd: EPA

Frestun Arion banka á vaxta­hækkun óverð­tryggðra neyt­enda­lána með breyti­legum vöxtum, sem átti að taka gildi 29. júlí en mun nú ekki tala gildi fyrr en 25. sept­em­ber, lækkar vaxta­kostnað lán­tak­enda um 280 millj­ónir króna og snertir 23 þús­und ein­stak­linga.

Þetta kemur fram í svari Arion banka við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Frest­unin nær fyrst og fremst til íbúða­lána, bíla­lána og lána sem bera kjör­vexti.

Fyrr í dag greindi bank­inn frá því að hann myndi fresta eins pró­sentu­stigs hækkun á óverð­tryggðum vöxtum sem hann til­kynnti um seint í júní, og áttu að taka gildi 29. júlí, til 25. sept­em­ber. Ástæðan er sú að það mis­fórst að til­kynna við­skipta­vinum um breyt­ing­una með beinum hætti. „Því mun bank­inn fresta vaxta­hækk­un­inni og end­ur­greiða ofgreidda vexti en ofgreiddir vextir ná aðeins til þriggja síð­ustu daga júlí­mán­aðar.“

[adspot]Í svari Arion banka segir að það sé ekki há upp­hæð sem verði end­ur­greidd, enda sé ein­ungis um greiðslu til við­skipta­vina sem ofgreiddu þrjá síð­ustu dag­ana í júlí. „Hins vegar greiða þeir sem eru með lán hjá Arion banka sem bera óverð­tryggða breyti­lega vexti einu pró­sentu­stigi lægri vexti en þeir hefðu ann­ars gert frá 29. júlí til 25. sept­em­ber. Það nemur um 280 millj­ónum króna og snertir 23 þús­und ein­stak­linga.“

Hinir stóru bankarnir hafa þegar hækkað vexti

Arion banki er sá eini af stóru bönk­unum þremur sem hefur ekki til­kynnt um vaxta­hækkun á neyt­enda­lánum eftir síð­ustu stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands í síð­ustu viku, þegar þeir voru hækk­aðir um 0,75 pró­sentu­stig upp í 5,5 pró­sent.

[links]Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að Lands­bank­inn og Íslands­banki hafa báðir hækkað vexti af óverð­tryggðum íbúða­lánum. Breyti­legir vextir á óverð­tryggðum grunn­lánum til íbúð­ar­kaupa (allt að 70 pró­sent af kaup­verði) hjá Lands­bank­an­um, sem er nán­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hækka til jafns við stýri­vaxta­hækk­un­ina og verða sjö pró­sent. Þurfi fólk hærra hlut­fall að láni eru vext­irnir enn hærri.

Íslands­banki hækkar sömu­leiðis breyti­lega óverð­tryggða vexti af grunn­lánum um 0,75 pró­sentu­stig.

Í til­kynn­ingu Arion banka sem birt var í dag vegna áður­nefndrar frest­unar á gild­is­töku vaxta­hækk­unar segir þó að „Í kjöl­far ákvörð­unar Seðla­banka Íslands frá 24. ágúst sl. um að hækka stýri­vexti um 0,75 pró­sentu­stig eru frek­ari breyt­ingar á vöxtum Arion banka til skoð­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár