Konur hugsi fyrst og fremst um „sexíið“

Pistill fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra sjó­slysa­nefndar vekur athygli í netheimum. Segir femínista berj­ast fyrir for­rétt­indum en ekki jafn­rétti. Konur ættu að passa sig á að ögra ekki karl­dýr­inu.

Pistill undir fyr­ir­sögn­inni „Kvenn­rétt­indi“ vakti tölu­verða athygli á netheimum um helg­ina. Í pistl­inum, sem er skrif­aður af Krist­jáni Guð­munds­syni fyrr­ver­andi skip­stjóra og fram­kvæmda­stjóra sjó­slysa­nefndar, er því haldið fram að kven­rétt­inda­bar­átta síð­ustu alda hafi ekki verið bar­átta um jafn­rétti heldur bar­átta um for­rétt­indi. Þá segir hann konur ekki sækja í erf­ið­is­vinnu því þær vilji ekki skerða „sexí-ismann“ og að krafa þeirra um hærri laun sé svo þær geti hugsað betur um „sexíið“. 

Konur ættu að passa sig á að ögra ekki karldýrinu

Pistill­inn var birtur síð­ast­lið­inn föstu­dag en til marks um athygl­ina sem hann hefur vakið þá nemur umferð síð­ustu viku á blogg­síðu Krist­jáns tæp­lega 34 pró­sentum af heild­ar­um­ferð síð­unnar frá upp­hafi. Þá hafa rúm­lega 3200 manns heim­sótt blogg­svæði hans á síð­ast­liðnum sól­ar­hring, sem er rúm­lega 11 pró­sent af öllum heim­sóknum síð­unnar. 

Stundin sló á þráð­inn til Krist­jáns og spurði meðal ann­ars að hvaða til­efni pistill­inn er skrif­aður. „Mér finnst þessi kven­rétt­inda­bar­átta vera komin út í slíkar öfgar, eins og fram kemur í grein­inni, að það er bullað í þessum fjöl­miðlum um hund­rað ára afmæli kosn­inga­réttar kvenna auk margs konar ann­ars, við skulum bara kalla það, áróð­urs um að öll vanda­mál kvenna séu karl­inum að kenna,“ svarar hann. „Þessi krafa, eða áróður skulum við segja, er ekki sett fram í neinum öðrum til­gangi en að lít­il­lækka karl­kynið. Karlinum er kennt um öll vand­ræði kvenna. Ef þú vilt fá frek­ari skýr­ingar þá skaltu lesa grein á blogg­inu sem heitir Konur sem hata karla,“ segir Kristján. 

Í umræddri grein er Krist­jáni sem fyrr tíð­rætt um kyn­þokka kvenna. Konur geri lítið meira en að vinna fyrir „sexí-inu“ en daður og „sexí-klæðn­aður“ hafi aftur á móti haft slæmar afleið­ingar fyrir margar konur. Klæða­burður þeirra, 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár