Hægt að senda á brott útlendinga í „ólögmætri dvöl“ þrátt fyrir tilslökun gagnvart öðrum

Skortur á beinum flugum, flug­sam­göngum til heima­lands eða hár kostn­aður við ferða­lög eru ekki ástæður sem íslensk stjórn­völd taka gildar fyrir dvöl hér­lendis án dval­ar­leyfis eða árit­unar.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra skrifaði undir reglugerð um útlendinga sem tók gildi 15. júní.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra skrif­aði undir reglu­gerð um útlend­inga sem tók gildi 15. júní. Mynd: Bára Huld Beck

Útlend­ingum sem dvalist hafa á Íslandi, og hafa gert það frá því fyrir 20. mars 2020, en hefur ekki kom­ist til síns heima vegna ferða­tak­mark­ana, sótt­kvíar eða ein­angr­unar er nú heim­ilt að dvelja hér á landi án vega­bréfs­á­rit­unar eða dval­ar­leyfis til og með 10. ágúst næst­kom­andi. dir="ltr" style="line-height:1.38;margin-top:16pt;margin-bottom:4pt;">Þetta kemur fram í breyt­ingu á reglu­gerð um útlend­inga sem Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra gerði og öðl­að­ist gildi 15. júní síð­ast­lið­inn.

Aug­lýs­ing um reglu­gerð­ar­breyt­ing­una var birt í Stjórn­ar­tíð­indum 1. júlí.

Þar segir einnig að þrátt fyrir ofan­greint ákvæði þá komi það „ekki í veg fyrir frá­vísun eða brott­vísun þeirra sem voru í ólög­mætri dvöl fyrir 20. mars 2020 eða frá­vísun eða brott­vísun á öðrum grund­velli sam­kvæmt ákvæðum laga um útlend­inga.“

[adspot]Á heima­síðu Útlend­inga­stofn­unar er sér­stak­lega til­greint að ákvæðið nái ein­ungis til þeirra sem ekki kom­ast til síns heima vegna ferða­tak­mark­ana, sótt­kvíar eða ein­angr­unar. Þar stendur enn fremur að „skortur á beinum flug­sam­göngum til heima­lands, hár kostn­aður við ferða­lög eða annað óhag­ræði af því að ferð­ast um þessar mundir eru ekki ástæður sem heim­ila dvöl án dval­ar­leyfis eða árit­unar.“

Útlend­inga­stofnun bár­ust alls 243 umsóknir um vernd hér­lendis á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2020. Þær hafa verið afar fáar frá því að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á, alls fimm í apríl og fjórar í maí.

Alls hefur ákvörðun verið tekin um 388 mál þar sem óskað var eftir vernd á árinu 2020. Af þeim hafa 222 fengið veitta vernd, 67 hefur verið synjað, 31 hafa verið end­ur­send til ann­ars Evr­ópu­lands á grund­velli Dyfl­in­ar­reglu­gerð­ar­innar, 35 hafa þegar verið með vernd í öðru ríki og 33 mál hafa hlotið „önnur lok“.

Í apríl og maí, á meðal að landa­mæri flestra ríkja Evrópu og Banda­ríkj­anna voru lokuð, áttu sér stað sex ákvarð­anir um end­ur­send­ingar á grund­velli Dyfl­in­ar­reglu­gerð­ar­innar, en sam­kvæmt henni er hæl­is­leit­endum gert að sækja um vernd í því Evr­ópu­landi sem þeir lenda fyrst í. Í maí­mán­uði voru teknar tvær ákvarð­anir um end­ur­send­ingar á hæl­is­leit­endum á grund­velli reglu­gerð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár