Rúmur fjórðungur ákvað sig ekki fyrr en á kjördag

27% kjós­enda ákváðu end­an­lega hvaða for­seta­fram­bjóð­anda þeir kysu á kjör­dag, sam­kvæmt nýrri rann­sókn Félags­vís­inda­stofn­unar. Kjós­endur Guðna Th. Jóhann­es­sonar voru margir búnir að ákveða að kjósa hann meira en mán­uði fyrir kosn­ingar.

Meira en helm­ingur kjós­enda gerði end­an­lega upp hug sinn til for­seta­fram­bjóð­enda í for­seta­kosn­ing­unum í sumar þegar vika eða minna var í kosn­ingar. Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands. 

27 pró­sent svar­enda segj­ast hafa gert upp hug sinn á kjör­dag, og 20 pró­sent einum til fjórum dögum fyrir kosn­ingar. Sjö pró­sent gerðu upp hug sinn fimm til sjö dögum fyrir kosn­ingar. 23 pró­sent gerðu upp hug sinn átta til þrjá­tíu dögum fyrir kosn­ingar og 23 pró­sent gerðu það enn fyrr.

Félags­vís­inda­stofnun byggði könn­un­ina á annarri sam­bæri­legri könnun sem gerð var fyrir tutt­ugu árum, þegar Ólafur Ragnar Grímsson var kjör­inn for­seti Íslands. Tals­verður munur er á því hvenær kjós­endur ákváðu sig end­an­lega þá og nú. Árið 1996 voru tæp­lega 45 pró­sent kjós­enda búin að ákveða sig þegar meira en mán­uður var enn í kosn­ingar. Færri ákváðu sig þá þegar átta til þrjá­tíu dagar voru í kosn­ingar, eða rétt rúm­lega 20 pró­sent. Fleiri, tæp­lega tíu pró­sent, ákváðu sig þá þegar fimm til sjö dagar voru í kosn­ingar og um 13 pró­sent ákváðu sig þegar einn til fjórir dagar voru í kosn­ingar. Miklu færri ákváðu sig á kjör­dag árið 1996 en árið 2016. Innan við fimmtán pró­sent ákváðu sig á kjör­dag fyrir tutt­ugu árum, á meðan talan var 27 pró­sent í ár, sem fyrr segir.

Margir kjósendur Guðna ákveðnir mánuði fyrir kosningar

Yfir 35 pró­sent þeirra sem kusu Guðna Th. Jóhann­es­son sem for­seta höfðu ákveðið það meira en mán­uði áður en kosn­ing­arnar voru haldnar – stærsti hluti kjós­enda hans. Tæplega 30 pró­sent til við­bótar ákváðu að kjósa hann 8-30 dögum fyrir kosn­ingar, tæp­lega 15 pró­sent ákváðu að kjósa hann innan við viku frá kosn­ingum og rúm­lega 20 pró­sent ákváðu að kjósa hann á kjör­dag.

Ríflega 30 pró­sent kjós­enda Davíðs Oddd­sonar höfðu sömu­leiðis ákveðið sig þegar meira en mán­uður var í kosn­ingar. Yfir 35 pró­sent kjós­enda hans tóku ákvörðun þegar átta til 30 dagar voru í kosn­ingar. Innan við tíu pró­sent ákváðu að kjósa hann vik­una fyrir kosn­ingar en yfir 20 pró­sent kjós­enda hans ákváðu end­an­lega að velja hann á kjör­dag.

Fimmtán pró­sent kjós­enda Andra Snæs Magna­sonar og um sjö pró­sent kjós­enda Höllu Tóm­as­dóttur höfðu ákveðið sig mán­uði fyrir kosn­ingar.

Stór hluti kjós­enda Höllu ákvað sig fjórum dögum fyrir kosn­ingar eða seinna. Um 37 pró­sent þeirra ákváðu að kjósa Höllu þegar einn til fjórir dagar voru í kosn­ingar, og 30 pró­sent þeirra ákváðu það á kjör­dag. Sömu sögu er að segja hjá Andra Snæ, tæp­lega 25 pró­sent af kjós­endum hans ákváðu það nokkrum dögum fyrir kosn­ing­arnar og tæp­lega 35 pró­sent kjós­enda hans ákváðu að kjósa hann á kjör­dag.

Flestir kusu Davíð vegna hæfni hans

Þá spurði Félags­vís­inda­stofnun einnig um ástæður þess að fólk kaus sinn fram­bjóð­anda og hvað hafi ráðið þar mestu um. 56 pró­sent svar­enda sögðu ein­fald­lega að þeim hafi lit­ist best á þann eða þá sem fyrir val­inu varð. 22 pró­sent sögðu hæfni fram­bjóð­anda hafa ráðið mestu og 14 pró­sent fram­koma. Þrír af hverjum hund­rað vildu ekki að ein­hver annar fram­bjóð­andi kæm­ist að og einn af hverjum hund­rað sagði að sá fram­bjóð­andi sem við­kom­andi vildi helst virt­ist hafa litla mögu­leika.

Kjós­endur Davíðs Odds­sonar skera sig úr í þess­ari spurn­ingu, því tæp­lega 60 pró­sent þeirra segja hæfni Davíðs hafa ráðið mestu um að þeir ákváðu að kjósa hann. Þessi hlutur var um og undir 20 pró­sentum hjá öðrum fram­bjóð­endum. Hjá hinum fram­bjóð­end­unum sagði stærstur hluti að þeim hafi lit­ist best á sinn fram­bjóð­anda, en hæfnin réði mestu hjá Davíð. Um 35 pró­sent kjós­enda hans sögðu það hafa ráðið mestu að þeim hafi lit­ist best á hann.

Um fjórð­ungur kjós­enda Höllu Tóm­as­dóttur sögðu fram­komu hennar hafa ráðið mestu, en hlut­fallið var mun lægra hjá öðrum fram­bjóð­endum. Þá tekur athygli að fimm pró­sent kjós­enda Guðna Th. Jóhann­es­sonar segja það hafa ráðið mestu að þeir vildu ekki að ein­hver annar kæm­ist að.

Næstum allir sögðu heiðarleika mjög mikilvægan

Einnig var spurt um mik­il­vægi ýmissa atriða fyrir val á fram­bjóð­enda. 89 pró­sent sögðu heið­ar­leika vera mjög mik­il­vægan og 11 pró­sent sögðu hann frekar mik­il­vægan.

81% sögðu hæfni í sam­skiptum við þjóð­ina vera mjög mik­il­vægt atriði og 80 pró­sent sögðu almenna fram­komu vera það.

65 pró­sentum þykir hæfni í sam­skiptum við útlend­inga vera mjög mik­il­væg og 60 pró­sent almenn hæfni.

90 pró­sent sögðu kyn­ferði ekki vera mik­il­vægt, en fimm pró­sentum þótti kyn­ferði mjög mik­il­vægt og öðrum fimm pró­sentum frekar mik­il­vægt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár