„Þið munið þurfa að bera mig burt í kassa“

Bernie Ecclestone, einn rík­asti maður í heimi, hefur verið settur af sem fram­kvæmda­stjóri yfir Formúlu 1. Hann, eins og svo margir aðrir ein­valdar, missti af tæki­fær­inu til að ráða eigin örlögum. Hér er rekið hvernig hann sá tæki­færi í óreið­unni.

Bernie Ecclestone, fram­kvæmda­stjóri Formúlu 1 til 40 ára, smá­vax­inn 86 ára gam­all maður sem stundum er kall­aður hringa­drott­inn, og stundum Napóleon sökum mis­ræmis í vexti og völdum, hefur misst vinn­una. „Mikið var!“ var eflaust fyrsta hugsun hörð­ustu aðdá­enda kappakst­urs­ins enda hefur það verið með Bernie eins og svo marga ein­ráða að þeir eiga það til að sitja of lengi og missa af tæki­fær­inu á að stjórna eigin örlögum.

Liberty Media, fyr­ir­tæki í eigu banda­ríska kap­al­sjón­varps­mó­gúls­ins John Malone, hefur fest kaup á Formúlu 1. Verð For­múl­unnar er um 8 millj­arðar Banda­ríkja­dala, að því er fram kemur í til­kynn­ingu Liberty Media. Og breska fram­kvæmda­stjór­anum Bernie Ecclestone hefur verið sagt upp en honum tókst byggja upp við­skipta­veldi í kringum kappakst­urs­móta­röð­ina á und­an­förnum 40 árum sem veltir um það bil 1,9 millj­örðum Banda­ríkja­dölu árlega.

En það var alls ekk­ert far­ar­snið á hinum aldna millj­arða­mær­ingi. Gróða­vonin er enn til staðar, jafn­vel þó skyn hans á nýja tíma virð­ist vera löngu horfið. „Ég hef ekki í hyggju að fara neitt.“ „Ég ætla að stjórna hér áfram í önnur 40 ár.“ „Þið munið þurfa að bera mig burt í kassa.“ Þetta voru svör Bernie við spurn­ingum fólks um hvort hann ætl­aði ekki að setj­ast í helgan stein bráð­lega.

Bernie er samt ekki alveg horf­inn af sjón­ar­svið­inu þó það séu nýir gæjar teknir við sem sirkus­stjórar. Bernie verður stjórn­ar­for­maður emeritus yfir stjórn Formúlu 1. Tit­ill­inn er auð­vitað fund­inn upp til þess hafa kall­inn góðan enda sjá nýir eig­endur að ef honum er ekki fund­inn réttur staður í veld­inu sem hann byggði sjálfur mun hann leggja alla stund á að rífa það niður.

Og hver ætlar ann­ars að hringja beint í Vladimír Pútín þegar það er vesen með fram­kvæmd rúss­neska kappakst­urs­ins? Einhver amer­ískur fyrr­ver­andi milli­stjórn­andi með ofboðs­legt yfir­vara­skegg?

Sama hvað hægt er að segja um Bernie Ecclestone þá er hann sá sem gerði Formúlu 1 (og kappakstur í breið­ari skiln­ingi) að því sem móta­röðin er í dag. Bernie tókst, nán­ast upp á sitt eins­dæmi, að gera hobbý­sport evr­ópskra smur­ol­íu­kalla að pen­inga­vél og kveikti áhuga almenn­ings um allan heim á furðu­legri jað­ar­hegðun.

Formúla 1 hefur hins vegar barist við marga kvilla und­an­farin ár. Lækkandi áhorf­enda­tölur í sjón­varpi hafa gert eig­endur áhyggju­fulla og orðið til þess að keppn­isliðin eiga erf­ið­ara með að sækja sér styrkt­ar­að­ila. Minni keppn­islið hafa ítrekað kvartað undan háum kostn­aði við það eitt að fá keppn­is­rétt í Formúlu 1 og fara svo flest á haus­inn með til­heyr­andi þekk­ing­ar­tapi og stöðnun.

Svar Bernie við þess­ari þróun hefur und­an­farna tvo ára­tugi eða svo verið öfugt við það sem flestir telja vera rétta leið. „Áfram veg­inn bara. Við þurfum ekk­ert að vera á Twitter. Við þurfum ekk­ert að vera á Facebook. Fólkið sem horfir á Formúlu 1 fékk áhuga með því að kveikja á sjón­varp­inu, ekki með því að lesa um það á sam­fé­lags­miðlum.“

Allt eru þetta svör hins aldna stjórn­anda sem þekkti ekki sinn vitj­un­ar­tíma, virð­ist enn vera að berj­ast við gamlar ógnir og þekkir ekki ný tæki­færi.

Sjón­varpið var einmitt það sem gerði Bernie Ecclestone ríkan. Það og Max Mosley, fyrr­ver­andi for­seti Alþjóða akst­urs­í­þrótta­sam­bands­ins, en sam­band þeirra verður rætt betur síðar. Með því að finna upp við­skipta­mód­elið sem flest sjón­varps­sport gengur út á í dag varð Bernie ofboðs­lega ríkur og öðl­að­ist gríð­ar­leg völd í kappakstri. En síðan áhorfs­töl­urnar náðu hámarki árið 2008 hafa línu­ritin sýnt nei­kvæða þróun. Í apríl í fyrra greindi rekstr­ar­fé­lag for­múl­unnar (FOM) frá því að á átta árum hefði áhorf­enda­fjöld­inn minnkað um þriðj­ung. Það voru um 200 milljón áhorf­endur sem hættu að horfa reglu­lega.

Efa­semda­menn segja að kappakstur snú­ist aðeins og ein­göngu um að fara í hringi. Þeir hafa hugs­an­lega eitt­hvað til síns máls: Und­an­farin ár hafa keppn­isliðin í Formúlu 1 haft mun meira að segja um þær reglur sem um smíði bíl­anna gilda og regl­urnar á braut­inni. Það liggur í augum uppi að þegar kepp­endur fá að ákveða regl­urnar, sér­stak­lega þegar stærstu liðin hafa mest vægi í ákvarð­ana­tök­unni, þá munu regl­urnar vera lið­unum í hag fremur en áhorf­endum.

Bernie Ecclestone varð að áhrifa­manni í Formúlu 1 árið 1972 þegar hann hafði fest kaup á Brabham-lið­inu. Þá var móta­röðin skipu­lögð af lið­stjórum og kepp­endum, öryggið nær ekk­ert og dauða­slys tíð. Í þess­ari óreiðu sá Bernie tæki­færi. Það varð til þess að hann stofn­aði sam­tök kepp­enda í Formúlu 1 – oft­ast kölluð FOCA – ásamt fleiri lið­stjórum og áhrifa­mönnum. Bernie tókst vel til sem liðs­stjóri og gerði Nelson Piquet að heims­meist­ara í tvígang árin 1981 og 1983. Honum gekk hins vegar betur að sann­færa lið­stjór­ana um að veita honum umboð til þess að tala þeirra máli þegar kom að samn­ingum um hver skyldi eign­ast ágóð­ann af Formúlu 1.

Ecclestone hafði, í krafti lið­anna í FOCA hafið sölu á sjón­varps­út­send­inga­rétti frá Formúlu 1. Bernie hafði með öðrum orðum haf­ist handa við að breyta þessu úr jað­ar­sporti í við­skipta­tæki­færi. Hann virt­ist vera sá eini sem sá gróða­tæki­færi í kappakstr­inum. Hinir – stjórn­endur Ferrari, McLaren, Tyrrell og fleiri þekktra liða – ein­beittu sér heldur að kappakstr­inum en pen­ing­unum.

Venju­lega gerð­ust kaupin á eyr­inni þannig að móts­hald­arar gerðu samn­inga við keppn­islið um að taka þátt í mótum. Þau lið sem höfðu stjörnu­öku­menn á sínum snærum fengu örlítið meira en hin liðin sem tóku þátt en í öllum til­vikum var um smá­pen­inga að ræða. Þar var stóra vanda­málið sem Ecclestone vildi leysa.

Mario Andretti í svarta Lotus-bílnum verst árás Niki Lauda í rauðum Brabham-bíl í upphafi sænska kappakstursins í Anderstop árið 1978. Þetta er í fyrsta og eina skiptið sem viftubíll Brabham-liðs Ecclestone fékk að keppa. Aftan á bílnum var vifta sem sogaði loftið undan bílnum hraðar en loftið fór yfir bílinn, með þeim afleiðingum að hann fór harðar í gegnum beygjurnar.
Mario Andretti í svarta Lotus-bílnum verst árás Niki Lauda í rauðum Brabham-bíl í upp­hafi sænska kappakst­urs­ins í And­er­stop árið 1978. Þetta er í fyrsta og eina skiptið sem viftu­bíll Brabham-liðs Ecclestone fékk að keppa. Aftan á bílnum var vifta sem sog­aði loftið undan bílnum hraðar en loftið fór yfir bíl­inn, með þeim afleið­ingum að hann fór harðar í gegnum beygj­urnar.

Hann lagði til að gerður yrði sam­eig­in­legur samn­ingur fyrir öll liðin í Formúlu 1 og vegna þess að Ecclestone var þegar þekktur sem kröft­ugur samn­inga­maður tóku allir þátt. Hann sam­ein­aði þannig Formúlu 1 undir merkjum FOCA og ef ein­hver móts­hald­ari taldi sig vera að borga of mikið þá kom eng­inn að keppa. Ef féð yrði reitt af hendi myndu öll liðin mæta. Þessir hættir borg­uðu sig marg­falt fyrir liðin. Liðs­stjór­arnir urðu rík­ari en þeir gátu nokkru sinni ímyndað sér og í því umhverfi þótti þeim sjálf­sagt að Bernie sæi um þessi mál. Það er engin furða að á end­anum hélt hann á öllum þráðum í Formúlu 1.

FISA, íþrótta­hluti alþjóða­akst­urs­í­þrótta­sam­bands­ins FIA, undir stjórn for­set­ans bráð­lynda, Jean-Marie Balestre, þótti vald Ecclestone orðið nógu mikið. Balestre vildi sjálfur hafa völdin, enda for­seti yfir­valds­ins sem setti regl­urnar. Rifr­ildið milli Ecclestone og Balestre magn­að­ist stöðugt í það sem síðan hefur verið kallað FISA/FOCA-stríðið. Stríðið end­aði í sátta­samn­ingum árið 1981 þegar fyrstu Concorde-samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir. Jafnvel þó Balestre hafi lýst sig sig­ur­veg­ara þessa stríðs með því að „hrifsa“ til sín öll völd yfir reglu­setn­ingu í Formúlu 1 þá var það Ecclestone sem var raun­veru­legur sig­ur­veg­ari.

Með hjálp vinar síns, lög­fræð­ings­ins Max Mosley, afsal­aði Ecclestone öllu reglu­setn­ing­ar­valdi frá lið­unum en allur hagn­aður af sölu sjón­varps­rétt­inda skipt­ist á þrjá vegu: FIA skyldi fá 30 pró­sent, liðin (FOCA) skyldu fá 47 pró­sent og nýstofnað fyr­ir­tæki, Formula One Promotions and Administration í eigu Bernie nokk­urs Ecclestone, fengi 23 pró­sent. Gegn því að fá skerf sjálfur skuld­batt Bernie sig hins vegar til þess að veita lið­unum pen­inga­verð­laun í lok árs.

Áratug síðar, eftir að Bernie hafði tek­ist að gera Formúlu 1 að vin­sælum sjón­varps­við­burði um allan heim og sjálfan sig enn auð­ug­ari tók, Max Mosley vinur hans og sam­verka­maður, við af Balestre sem leik­stjórn­andi og for­seti FIA. Nú hafði Bernie alla sína menn í réttum stöðum.

Concorde-samn­ing­ur­inn var end­ur­nýj­aður á nokk­urra ára fresti og alltaf voru skil­mál­arnir þeir sömu, að því er talið er enda var það aldrei gert opin­bert hvernig hagn­að­inum var raun­veru­lega skipt. Þar til árið 2001 þegar Max Mosley sam­þykkti að selja sýn­inga­rétt­inn að Formúlu 1 enn á ný til Bernie Ecclestone, fyrir summu sem þótti þá nokkuð sann­gjörn; litlar 360 millj­ónir doll­ara. En í þessum samn­ingi voru liðin und­an­skilin. Og sýn­ing­ar­rétt­ur­inn yrði í eigu Ecclestone í 100 ár. Hluti þess­ara samn­inga voru síðar birtir án leyfis samn­ings­að­ila og þykir það nokkuð aug­ljóst í dag að Mosley hafi selt vini sínum rétt­indin að Formúlu 1 á ofboðs­legu und­ir­verði.

„Bíddu bara,“ sagði Ken Tyrrell á graf­ar­bakk­anum sum­arið 2001. „Bernie á eftir að siga hræ­gömm­unum á þá.“ Tyrrell var einn liðs­stjór­anna sem gerði Bernie að for­svars­manni FOCA árið 1974 og þekkti vel til.

Það átti raunar eftir að verða eins og Ken gamli Tyrrell spáði. Bernie seldi sýn­ing­ar­rétt­inn áfram og hann gekk á milli banka og sjón­varps­fyr­ir­tækja eins og nammi­skál áður en CVC Partners eign­uð­ust stærstan hluta í fyr­ir­tæk­inu utan um Formúlu 1 árið 2005. Salan til CVC var hins vegar ekki vand­ræða­laus.

Einn starfs­maður bank­ans sem seldi, Gerhard Gribkowsky, var sak­aður um að hafa þegið mútur frá Ecclestone að upp­hæð 44 millj­ónir doll­ara til þess að koma því þannig fyrir að verð hlut­ar­ins sem gengi á milli bank­ans og CVC yrði lægra. Bernie hafði komið því þannig fyrir að hann yrði áfram við stjórn­völ­inn ef CVC hefði stjórn. Gribkowsky var sak­felldur og síðar átti Ecclestone að koma fyrir dóm­stóla í Þýska­landi en af ein­hverjum sökum var málið látið niður falla þegar 100 milljón doll­ara tékki barst frá Bernie.

„Áætlanagerð til langs tíma er bara vitleysa“

Bernie hélt áfram að gera samn­ing­ana í Formúlu 1 á meðan Formúla 1 hætti að stand­ast vænt­ingar áhuga­fólks í síauknum mæli. Dyggustu stuðn­ings­menn­irnir eru flestir frá Evrópu en í ein­lægri gróða­von hefur Bernie gert fleiri og fleiri samn­inga við auðug ríki sem borga háar fjár­hæðir til þess að fá að halda kappakstur. Sem þætti ekk­ert slæmt ef það væri ekki á kostnað mót­anna í Evrópu. Franski kappakst­ur­inn er ekki lengur á dag­skrá, evr­ópski kappakst­ur­inn er nú í Aserbaídsjan, sá breski er sífellt í hættu eins og sá belgíski og þýski. Áhuga­fólkið í Evrópu kunni ekki við þessar áherslu­breyt­ingar.

Kappakstursbraut var lögð um miðborg Baku, höfuðborgar Aserbaídsjan, síðasta sumar. Þar fór evrópski kappaksturinn fram í fyrsta sinn í fyrra. Stjórnvöld þar í landi lögðu til gríðarlega fjármuni til þess að geta haldið kappaksturinn. Brautin liggur meðal annars um gamla kastala sem eru á heimsminjaskrá UNESCO.
Kappakst­urs­braut var lögð um mið­borg Baku, höf­uð­borgar Aserbaídsjan, síð­asta sumar. Þar fór evr­ópski kappakst­ur­inn fram í fyrsta sinn í fyrra. Stjórn­völd þar í landi lögðu til gríð­ar­lega fjár­muni til þess að geta haldið kappakst­ur­inn. Brautin liggur meðal ann­ars um gamla kast­ala sem eru á heimsminja­skrá UNESCO.

Mótin í þeim ríkjum þar sem mann­rétt­indi eru fótum troðin hafa einnig verið þyrnir í augum áhuga­fólks. Barein er dæmi um slíkt ríki en þar hefur mótið verið haldið nær óslitið síðan 2004. Þegar arab­íska vorið stóð sem hæst í Mið­aust­ur­löndum fór um marga þegar kappakst­ur­inn var hald­inn í Barein, enda var Formúlu 1-sirkus­inn á vegum stjórn­valda þar í landi.

Og svo fóru áhorf­enda­töl­urnar að hrynja um það leyti sem sam­fé­lags­miðlar urðu vin­sælir. Fyrst um sinn var Formúla 1 hvergi á inter­net­inu eða þar til fyrir tveimur árum sem gert var átak til þess að kynna Formúlu 1 á þessum miðlum. Allt sner­ist enn þá um sölu sýn­ing­ar­rétt­inda til sjón­varps­stöðva.

„Veröldin breyt­ist svo fjári hratt – hver sem talar um það sem er að fara að ger­ast eftir fjögur ár er hálf­viti,“ sagði Bernie ein­hvern tíma. „Áætl­ana­gerð til langs tíma er bara vit­leysa.“ Þessi hug­mynda­fræði kann að hafa gagn­ast Ecclestone ein­hvern tíma en leiddi hugs­an­lega til þess að hann missti tökin. Eina áætl­ana­gerð virð­ist hann hafa gert til langs tíma því hár­greiðslan hans hefur ekki breyst ögn síðan fyrstu mynd­irnar af honum voru teknar.

Bernie Ecclestone árið 1980 sem liðsstjóri Brabham-liðsins.
Bernie Ecclestone árið 1980 sem liðs­stjóri Brabham-liðs­ins.
Bernie Ecclestone sem framkvæmdastjóri formúlunnar á öðrum áratug þessarar 21. aldarinnar.
Bernie Ecclestone sem fram­kvæmda­stjóri for­múl­unnar á öðrum ára­tug þess­arar 21. ald­ar­innar.

Framtíðin

CVC Partners ákváðu á end­anum að það væri kom­inn tími til þess að sækja pen­ing­ana í þennan sjóð og selja rétt­indin að Formúlu 1 og um leið láta Ecclestone hanga. Liberty Media hefur tekið við og sett þrjá karla í stað Bernie Ecclestone. Chase Carey, fyrrum hægri hönd fjöl­miðla­mó­gúls­ins Ruperts Murdoch, tekur við sem samn­inga­maður af Ecclestone, Ross Brawn, arkítekt­inn að árangri Michael Schumacher hjá Ferrari, mun sjá um að eiga við áætl­ana­gerð til fram­tíðar og Sean Bratches, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri ESPN-íþrótta­sjón­varps­stöðv­ar­innar, verður með mark­aðs­málin á sinni hendi.

Og helstu álits­gjafar og pistla­höf­undar eru flestir bjart­sýnir á að þessar breyt­ingar muni hafa gott eitt í för með sér. „Nú er hægt að takast á við breyt­ing­arnar sem ekki var hægt að fram­kvæma á meðan skrípa­leik­ur­inn stóð yfir,“ skrifar Damien Smith í pistli sínum á vef Autosport.com.

Það er óvíst hvaða breyt­ingar Liberty Media vill gera á Formúlu 1. Ólíklegt er að fátt ger­ist á næsta keppn­is­tíma­bili sem hefst í Ástralíu í mars. Löngu sam­þykktar reglu­breyt­ingar um hönnun bíl­anna árið 2017 munu taka gildi en þær eiga að gera þá „sport­legri“ og mun fljót­ari í beygjum en bíla síð­ustu ára. Í lok þessa mán­aðar munu flest keppn­isliðin afhjúpa nýj­ustu keppn­is­bíla sína og hefja próf­anir áður en ver­tíðin hefst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

formúla 1

Mest lesið undanfarið ár