Nico Rosberg vann þá bestu og vill ekki meira

Nico Rosberg, nýkrýndur heims­meist­ari í Formúlu 1, er hættur í kappakstri. Ákvörðun hans kom öllum að óvörum.

Nico Rosberg fagnaði heimsmeistaratitlinum á verðlaunaafhendingu FIA í Vín í gær.
Nico Rosberg fagn­aði heims­meist­aratitl­inum á verð­launa­af­hend­ingu FIA í Vín í gær. Mynd: EPA

Nico Rosberg bað­aði sig í kampa­víni og kast­ljós­inu í síð­ustu viku eftir að hafa lagt Bretann Lewis Hamilton, einn besta öku­þór allra tíma, að velli í heims­meist­ara­ein­vígi þeirra í Abu Dhabi-kappakstr­inum um síð­ustu helgi. Það var síð­asta mót árs­ins en einnig síð­asta mót Rosbergs sem kom öllum á óvart við verð­launa­af­hend­ing­una í gær og til­kynnti að hann væri hættur kappakstri.

Með brott­hvarfi sínu bindur Rosberg enda á bar­áttu sína við Hamilton sem báðir hafa ekið Mercedes-bílum í Formúlu 1 síðan árið 2013. Einu sinni voru þeir bestu vinir, hjálp­uðu hvor öðrum að kom­ast lengra í sport­inu og ræddu hvað það yrði gaman ef þeir gætu báðir orðið heims­meist­arar í Formúlu 1. Hamilton hefur þrisvar unnið heims­meist­ara­tit­il­inn og ætl­aði að sækja sinn fjórða í ár.

Rosberg var krýndur heims­meist­ari í Formúlu 1 í fyrsta sinn á 25 ára ferli sínum í kappakstri í gær. Þjóð­verj­inn Rosberg seg­ist aðeins hafa verið að hlusta á hjarta sitt þegar hann ákvað að hætta. Mark­mið­inu hafi verið náð með því að hreppa tit­il­inn í Formúlu 1. Rosberg er aðeins 31 ára og hefur ekki enn tekið ákvörðun um hvað hann hygg­ist gera nú þegar kappakst­urs­ferl­inum er lokið.

Upp úr stendur að Nico Rosberg átti flottan feril í kappakstri og hann lýkur honum á tind­inum. Hann hefur lagt tvo þekkta heims­meist­ara af velli í inn­byrðis bar­áttu liðs­fé­laga og sannað gildi þrot­lausrar vinnu og metn­aðar.

„Þegar ég var sex ára að byrja í kappakstri þá var draum­ur­inn alltaf aug­ljós: Að verða heims­meist­ari í Formúlu 1. Það er það sem ég hef verið að elt­ast við allan þennan tíma. Því verk­efni er lokið. Draum­ur­inn er upp­fylltur.“

Hvernig hefur maður dreka undir?

Frá því að leiðir bestu vin­anna Nico og Lewis skildu í upp­hafi síð­asta ára­tugs höfðu þeir báðir kom­ist alla leið í Formúlu 1 en höfuð þroskast í mjög ólíka öku­menn.

Lewis Hamilton gekk til liðs við Mercedes-liðið fyrir keppn­is­tíma­bilið 2013 og þótti það nokkuð aug­ljóst hver skyldi verða aðal í lið­inu. Nico Rosberg var þar fyrir og var fyr­ir­fram dæmdur af fjöl­miðlum og spek­úlöntum til þess að lúta í lægra haldi fyrir stjörnu­stráknum Lewis Hamilton.

Hamilton hafði þá unnið heims­meist­ara­tit­il­inn á sínu öðru ári í Formúlu 1 2008 og verið nærri því að verða meist­ari á sínu fyrsta ári. Eftir nokkur mögur ár hjá McLaren ákvað hann að yfir­gefa upp­eld­is­stöðv­arnar og gerði samn­ing við Mercedes. Hamilton var mikið í sviðs­ljósi slúð­ur­blaða, hefur gaman af því að skemmta sér með stór­stjörnum í Banda­ríkj­unum og var í storma­sömu ást­ar­sam­bandi með heims­þekktri popp­söng­konu.

Rosberg hafði þá þegar ekið fyrir Mercedes í þrjú ár og sam­an­lagt haft betur en liðs­fé­lag­inn Michael Schumacher sem snúið hafði aftur í Formúlu 1 árið 2010. Schumacher er eins og flestum er kunn­ugt sjö­faldur heims­meist­ari í Formúlu 1, hefur unnið tit­il­inn lang oft­ast allra og á lang flesta sigra að baki.

Bæði sem öku­þór hjá Williams og Mercedes vann Rosberg sér orð­spor sem flug­gáf­aður öku­þór. Hann var hár­ná­kvæmur í öllu því sem tengd­ist upp­setn­ingu bíls­ins, vann vel með vél­virkj­unum og var sér­stak­lega vel lið­inn meðal yfir­manna sinna vegna þess hversu rólegur og jarð­bund­inn hann er. Honum þykir ekk­ert sér­stak­lega gaman af því að vera í sviðs­ljós­inu, en er samt tryggur sínum stuðn­ings­mönnum á sam­fé­lags­miðlum.

Það voru því ólíkir öku­menn sem mætt­ust hjá Mercedes árið 2013.

Sagt er að ekki sé til betri sam­an­burður á hæfi­leikum og getu öku­manna en að setja þá til höf­uðs hvor öðrum í sama keppn­islið­inu. Þannig fái maður raun­veru­legan sam­an­burð. Fyrstu þrjú árin hafði Hamilton yfir­hönd­ina og vann tvo heims­meist­aratitla árin 2014 og 2015. Hvað sem Rosberg reyndi þá hafði Hamilton yfir­hönd­ina, jafn­vel þó vinnu­fram­lag þess breska væri mun minna en Rosbergs.

Rosberg seg­ist hafa tví­elfst við tapið í fyrra; þegar Hamilton hreppti heims­meist­ara­tit­il­inn þegar enn voru nokkur mót eftir af ver­tíð­inni. Rosberg lagði sig enn meira fram, gerði samn­ing við fjöl­skyldu sína um þær fórnir sem hann þyrfti að færa til þess að geta látið draum­inn sinn verða að veru­leika.

Honum tókst í upp­hafi tíma­bils­ins sem lauk um síð­ustu helgi að vinna nokkur mót í röð og búa til gott stiga­for­skot. Hamilton náði hins vegar að sækja á og náði yfir­hönd­inni um mitt tíma­bilið en bil­anir og óheppni gerðu það að verkum að Hamilton náði ekki að halda efsta sæt­inu í tit­il­bar­átt­unni. Rosberg varð­ist svo stór­kos­lega í lok árs­ins og hélt sönsum undir gríð­ar­legri pressu frá liðs­fé­laga sínum og fjöl­miðlum í haust.

Afrekið er ótví­rætt. Það verður eng­inn heims­meist­ari eftir bar­áttu við Lewis Hamilton án þess að leggja allt undir. „Ég er bara ekki til­bú­inn að gera það aftur,“ segir Rosberg um ákvörðun sína að hætta á toppnum.

Spurður hvort hann hafi verið búinn að ákveða að hætta fyrir löngu síðan svar­aði hann: „Ég gefst aldrei upp. Ef ég hefði orðið annar á eftir Hamilton þá hefði ég haldið áfram.“

„Þetta tíma­bil er búið að vera rosa­legt. Ákefðin og til­finn­ing­arnar voru á allt öðru og hærra stigi en ég hef áður upp­lifað. Í síð­ustu fjórum mótum árs­ins var þetta nán­ast óbæri­legt því þá var verk­efnið að halda for­skot­inu og tryggja tit­il­inn. Síðasta mótið í Abu Dhabi var and­lega það erf­ið­asta sem ég hef á ævinni gert, fyrir utan að fylgj­ast með kon­unni minni, Vivian, fæða dóttur okkar.“

„Ég vil þakka Lewis sér­stak­lega. Þú hefur verið ótrú­legur keppi­nautur í öll þessi ár og frá­bær öku­maður – örugg­lega sá besti allra tíma – og það gerir heims­meist­ara­tit­il­inn minn miklu sæt­ari; að ræna honum frá Lewis.“

Mómentið var núna

Á næsta ári taka í gildi miklar reglu­breyt­ingar í Formúlu 1. Reglu­breyt­ingar á borð við þessar eru gerðar reglu­lega til þess að hrista upp í tækni­þróun í kappakstr­inum og jafna keppn­ina. Und­an­farin ár hefur Mercedes-liðið haft yfir­hönd­ina enda hafði bíla­fram­leið­and­inn þýski eytt gríð­ar­legum fjár­munum í þróun og smíði nýrrar vél­tækni sem var fyrst notuð keppn­is­tíma­bilið 2014.

Þar áður hafði Red Bull-liðið með Sebast­ian Vettel í for­ystu haft gríð­ar­lega yfir­burði. Vettel vann heims­meist­ara­tit­il­inn fjórum sinnum í röð á árunum 2010 til 2013.

Nýjar reglu­breyt­ingar sem taka gildi á næsta ári munu færa tækni­þró­un­ar­stríðið á nýjan vett­vang loftafls­fræði heldur en vél­þró­unar. Það er því ekki endi­lega hægt að gera ráð fyrir því að Mercedes muni vera með eins mikla yfir­burði og liðið hefur notið und­an­farin ár. Það má þess vegna líta á það þannig að Rosberg hafi átt sinn síð­asta séns í ár, ef hann ætl­aði að verða heims­meist­ari í Formúlu 1.

Tíma­setn­ingin á brott­hvarfi Rosbergs er því eflaust ágæt þegar litið er til óvissunnar sem fram undan er.

33 heimsmeistarar

Bikarinn skartar nú 33 nöfnum en þar á meðal er nafn föður Nico Rosberg; Keke Rosberg varð heims­meist­ari í Formúlu 1 árið 1982. Alls hafa meira en 800 ein­stak­lingar spreytt sig í þess­ari efstu deild kappakst­urs í heim­inum.

Jafnvel þó til­kynn­ing Rosbergs hafi komið á óvart er þetta ekki í fyrsta sinn sem ríkj­andi heims­meist­ari hættir keppni. Alain Prost lauk ferli sínum í annað sinn í lok árs 1993 en þá hafði hann snúið aftur í Formúlu 1 eftir að hafa hætt í lok árs 1991. Nigel Mansell hætti einnig í Formúlu 1 í lok árs­ins 1992 til þess að keppa í Banda­ríkj­unum. Báðir óku fyrir Williams-liðið og höfðu átt langan og far­sælan feril í kappakstri.

Allir heimsmeistarar í Formúlu 1

Ökuþór Fjöldi titla Titilár
Michael Schumacher 7 1994, 1995, 2000, 2001, 2002, 2003, 2004
Juan Manuel Fangio 5 1951, 1954, 1955, 1956, 1957
Alain Prost 4 1985, 1986, 1989, 1993
Sebast­ian Vettel 4 2010, 2011, 2012, 2013
Jack Brabham 3 1959, 1960, 1966
Jackie Stewart 3 1969, 1971, 1973
Niki Lauda 3 1975, 1977, 1984
Nelson Piquet 3 1981, 1983, 1987
Ayrton Senna 3 1988, 1990, 1991
Lewis Hamilton 3 2008, 2014, 2015
Alberto Ascari 2 1952, 1953
Graham Hill 2 1962, 1968
Jim Clark 2 1963, 1965
Emerson Fittipaldi 2 1972, 1974
Mika Häkkinen 2 1998, 1999
Fernando Alonso 2 2005, 2006
Giuseppe Farina 1 1950
Mike Hawthorn 1 1958
Phil Hill 1 1961
John Surtees 1 1964
Denny Hulme 1 1967
Jochen Rindt 1 1970
James Hunt 1 1976
Mario Andretti 1 1978
Jody Scheckter 1 1979
Alan Jones 1 1980
Keke Rosberg 1 1982
Nigel Mansell 1 1992
Damon Hill 1 1996
Jacques Vil­leneuve 1 1997
Kimi Räikkönen 1 2007
Jenson Button 1 2009
Nico Rosberg 1 2016

Nöfn Lewis Hamilton og Nico Rosberg eru lituð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

formúla 1

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár