Hægist á góðærinu: Hagstofan spáir samdrætti í ár í fyrsta sinn frá 2010

Gangi ný þjóð­hags­spá, sem birt var í dag, eftir mun verða sam­dráttur í lands­fram­leiðslu á Íslandi í ár. Spáin gerir þó ráð fyrir að hag­vöxtur verði aftur strax á næsta ári. Ástæðan fyrir þessu er aðal­lega tví­þætt: Gjald­þrot WOW air og loðnu­brestur.

Í nýrri þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands, sem birt var í morgun, er því spáð að verg lands­fram­leiðsla drag­ist saman um 0,2 pró­sent í ár. Það er umtals­verð breyt­ing frá síð­ustu spá stofn­un­ar­innar, sem birt­ist í febr­úar, og gerði ráð fyrir 1,7 pró­sent hag­vexti á árinu 2019.

Gangi spáin eftir er það stað­fest að Ísland er að lenda eftir mikið efna­hags­legt háflug und­an­far­innar ára.

Íslenskt hag­kerfi hefur gengið í gegnum eitt sitt lengsta hag­vaxt­ar­skeið í sög­unni á und­an­förnum árum. Mikill og stöð­ugur hag­vöxtur hefur verið á hverju ári frá árinu 2011. Mestur varð hann árið 2016 þegar lands­fram­leiðsla jókst um 6,6 pró­sent á einu ári.

Í fyrra var hag­vöxt­ur­inn 4,6 pró­sent og við­snún­ing­ur­inn á milli ára því 4,8 pró­sentu­stig. Síðast þegar hag­vöxtur dróst saman á Íslandi var á árunum 2009 (-6,8 pró­sent) og 2010 (-3,4 pró­sent).

Spáin gerir ráð fyrir því að Ísland nái sér aftur á strik strax á næsta ári og að hag­vöxtur þá verði 2,6 pró­sent.

WOW air og loðnubrestur

Meg­in­á­stæða þess að hér verður sam­dráttur í ár er vegna þess að útflutn­ingur mun drag­ast saman um 2,5 pró­sent milli ára, sam­kvæmt spánni.

Í henni segir að útflutn­ings­horfur hafi enda versnað umtals­vert með gjald­þroti WOW air og stað­fest­ingu á því að eng­inn loðnu­kvóti verði fyrir fisk­veiði­árið. Reikna má með að fram­boðs­skell­ur­inn í þjón­ustu­út­flutn­ingi verði tíma­bund­inn þar sem gert er ráð fyrir að enn sé eft­ir­spurn eftir Íslandi sem áfanga­stað ferða­manna. Reiknað er með hóf­legum bata útflutn­ings á næstu árum og er útlit fyrir 2,5 pró­sent vöxt á næsta ári.“

Vænta má þess, sam­kvæmt spánni, að einka­neysla drag­ist saman milli ára og að vöxtur hennar verði 2,4 pró­sent í ár.

Þá er búist við því að fjár­fest­ing drag­ist saman um 5,7 pró­sent á árinu, aðal­lega vegna sam­dráttar í fjár­fest­ingu á skipum og flug­vélum, en að áfram verði mik­ill og kröft­ugur vöxtur í íbúð­ar­fjár­fest­ingu sem reiknað er með að auk­ist um 16,2 pró­sent milli ára.

Vert er þó að taka fram að hlut­fall fjár­fest­inga af lands­fram­leiðslu á árinu 2018 var 22,2 pró­sent á árinu 2018, og hafði ekki verið jafn hátt síðan á árinu 2008, eða fyrir banka­hrun.

Meiri verðbólga og aukið atvinnuleysi

Hag­stofan gerir ráð fyrir því að verð­bólga muni verða meiri næstu miss­er­inn en hún hefur verið und­an­farin ár. Verð­bólga hér­lendis mæld­ist enda undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá febr­úar 2014 og fram á haust­mán­uði 2018, og hefur hald­ist í kringum þrjú pró­sent síðan þá. Hún mælist nú 3,3 pró­sent.

Hag­stofan gerir ráð fyrir því að verð­bólgan verði á þeim slóðum á þessu ári og að árs­með­al­tal hennar verði 3,4 pró­sent, en 3,2 pró­sent á árinu 2020. Eftir þann tíma er búist við því að verð­bólgan nálgist verð­bólgu­mark­miðið aftur.

Samkvæmt spánni mun spenna á vinnu­mark­aði minnka og atvinnu­leysi aukast á þessu ári, aðal­lega vegna gjald­þrots WOW air og áhrifa þess á þjón­ustu­út­flutn­ing. „Áætlað er að hægja muni á inn­flutn­ingi erlends vinnu­afls næstu árin vegna minni efna­hags­um­svifa. Atvinnu­leysi var 3 pró­sent að með­al­tali á fyrsta árs­fjórð­ungi sam­kvæmt Vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar, en áætlað er að yfir 1.600 manns hafi orðið atvinnu­lausir í lok mars. Búist er við því að atvinnu­leysi verði um 3,7 pró­sent að með­al­tali í ár og 3,8 pró­sent árið 2020.“

Kaupmáttur heldur áfram að aukast

Í þjóð­hags­spánni er fjallað um kjara­samn­inga laun­þega á almennum vinnu­mark­aði, sem voru sam­þykktir í apríl, og áhrif þeirra á spánna. Þar segir að nið­ur­stöður samn­ing­anna gefi til kynna að launa­þróun á spá­tíma­bil­inu í heild verði í meg­in­at­riðum í sam­ræmi við síð­ustu þjóð­hags­spá. „Laun verða hækkuð um fasta krónu­tölu til að jafna hlut laun­þega og á þeim for­sendum að hóf­samar launa­hækk­anir muni stuðla að auknum verð­stöð­ug­leika og lægra vaxta­stigi til að við­halda raun­hækkun launa.“

Það megi því búast við að kaup­máttur launa hækki um 2,1 pró­sent á þessu ári, um 2,2 pró­sent árið 2020 og 3,2 pró­sent árið 2021.

Samn­ingar fjöru­tíu og fimm félaga opin­berra starfs­manna losn­uðu í byrjun apríl. Í þjóð­hags­spánni er gert ráð fyrir að launa­hækk­anir þeirra verði í takt við þær línur sem lagðar eru í fjár­mála­á­ætlun hins opin­bera sem lögð var fyrir Alþingi í mars síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár