Afþakka 35 milljónir fyrir Bretlandsmarkað

Fram­leið­endur smá­forrits­ins Study Cake hafa afþakkað 35 millj­ónir frá fjár­festum sem áttu meðal ann­ars að koma vör­unni á markað í Bret­landi. Þre­menn­ing­arnir ætla aftur í skóla. Um 9.000 manns hafa sótt sér smá­forritið, sem stuðlar að auknum lestri barna.

Um 9.000 manns hafa sótt sér smáforritið Study Cake, sem er hannað til að auka og bæta lestur ungs fólks.
Um 9.000 manns hafa sótt sér smá­forritið Study Cake, sem er hannað til að auka og bæta lestur ungs fólks. Mynd: Study Cake

Fram­leið­endur íslenska lestr­ar­kennslu­smá­forrits­ins Study Cake hafa ákveðið að afþakka alla fjár­mögnun sem þeim bauðst til að halda þróun for­rits­ins áfram og setj­ast aftur á skóla­bekk. Þre­menn­ing­arnir afþökk­uðu nýverið um 35 millj­óna króna fjár­mögnun sem átti meðal ann­ars að hjálpa til við að koma vör­unni á markað í Bret­landi. Í bréfi sem þeir birta á heima­síðu sinni segja for­svars­menn Study Cake að í stað þess að fara í útrás, muni appið von­andi nýt­ast íslenskum skólum og fjöl­skyldum. Forritið miðar að því að efla læsi barna, í ljósi þess vax­andi vanda­máls sem minnk­andi lestur er.

Fjárfestar sýndu áhuga

Stofn­end­urnir þrír, Kjartan Þórisson, Hörður Guð­munds­son og Kristján Ingi Geirsson, fengu sím­tal í júní í fyrra þar sem þeim var boðið að taka þátt í Startup Reykja­vík. Hlut­irnir gerð­ust hratt eftir það.

„Varan, sem fékk nafnið Study Cake, var kynnt í höf­uð­stöðvum Arion Banka í ágúst 2015, en síðan sett­umst við að í Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands til þess að und­ir­búa okkur fyrir jan­ú­ar­út­gáfu apps­ins og mögu­lega fjár­mögnun,“ segir í bréf­inu. Nokkrum mán­uðum síðar, í jan­úar síð­ast­liðnum, var Study Cake 1.0 kynnt til sög­unnar og á innan við mán­uði höfðu um 5.000 manns sótt sér það. Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra hélt erindi á opn­un­ar­hóf­inu.

Í kjöl­farið fóru fjár­festar að sýna vör­unni áhuga og end­aði það með því að hópur fjár­festa ætl­aði sér að setja 35 millj­ónir króna inn í félagið yfir 18 mán­aða tíma­bil. Það átti meðal ann­ars að hjálpa til með að koma Study Cake á markað í Bret­landi.

„Það var mik­ill léttir að semja um fjár­fest­ing­una og sjá að öll vinnan virt­ist vera að skila sér,“ segja þeir í bréf­inu. „Það fylgir því hins vegar mikil ábyrgð að taka við fjár­munum ann­ara. Áður en haf­ist er handa við að taka við pen­ingum, sem á að eyða í fram­leiðslu og kynn­ingu — verða frum­kvöðlar að spyrja sig mik­il­vægra spurn­inga. Er vanda­málið sem verið er að leysa nægi­lega stórt? Er varan vítamín eða meðal? Eru stofn­endur til­búnir til þess að vinna í þessu næstu 5 til 10 árin, og þar af leið­andi — í okkar til­felli — er loka­mark­miðið þess virði að fresta háskóla­námi um ókomna tíð?“

Fóru frekar í skóla

Þeir komust að þeirri nið­ur­stöðu að setj­ast á skóla­bekk á ný í stað þess að „fórna næstu 10 árum við fram­leiðsl­una.“ Fjár­fest­arnir voru þar með boð­aðir á fund og pen­ing­arnir afþakk­aðir.

„Þetta var ein erf­ið­asta ákvörðun sem við höfum tekið, en við teljum okkar hags­munum betur borgið í því að snúa aftur á skóla­bekk, afla okkur þekk­ingar og nýrra hug­mynda, til þess að geta tek­ist á við allskyns vanda­mál í fram­tíð­inni,“ segir í bréf­inu.

Rúmlega 9.000 manns hafa sótt for­ritið í síma sína eða spjald­tölvur og hefur það fengið tölu­verða athygli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár