Bakgrunnur nýs dómsmálaráðherra: Valdefla lögregluna og þrengja rétt til þungunarrofs

Sjálfstæðis­maðurinn Jón Gunnarsson hefur verið skipaður innan­ríkis­ráðherra í nýrri ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur. Innan þings sem utan hefur Jón látið sig lögreglumál, sjálfs­ákvörðunar­rétt kvenna og tálmun varða, meðal annars.

Jón Gunnarsson nýr innanríkisráðherra
Jón Gunn­ars­son nýr inn­an­rík­is­ráð­herra Í nýrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur Jón Gunn­ars­son skip­aður inn­an­rík­is­ráð­herra og tekur því við verk­efnum Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjálfstæðis­maðurinn Jón Gunnarsson er nýr innan­ríkis­ráðherra í ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur. Sem þingmaður hefur Jón lagt fram frumvarp um að láta tálmun varða fimm ára fangelsis­vist, kosið gegn frumvarpi um þungunarrof, talað fyrir vald­eflingu lögreglunnar og hefur líkt búsáhalda­byltingunni við árás stuðnings­manna Trump á bandaríska þinghúsið ásamt því að leggja það til að íslenska lögreglan þurfi eitthvað meira en bara kylfur til að verjast hryðjuverka­ógnum.

„Flóttinn frá umræðunni birtist okkur síðan í því þegar fólk er farið að tala um þungunarrof í staðinn fyrir fóstur­eyðingu. Hver eru mörkin milli þungunar­rofs og fóstur­eyðingar, eða frá frumu­klasa, eins og hátt­virtir Samfylkingar­þingmenn kjósa að kalla þetta?“ sagði Jón í ræðupúlti Alþingis þegar þungunar­rofs frum­varpið var lagt fyrir þingið. 

Jón mun fara fyrir þeim málefna­sviðum sem áður heyrðu undir dómsmála­ráðherra, þá meðal annars ákæru­valdi, dómstólum, lögreglu og löggæslu, almanna­vörnum, vopna­málum, trúmálum og málefnum útlendinga. Hann hefur þó verið töluvert fjar­verandi meðferð þingsins á þeim mála­flokkum sem munu nú heyra undir hann.

Jón hefur verið alþingis­maður Sjálfstæðis­flokksins síðan 2007 og var samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra 2017. 

Auka úrræði lögreglunnar til að tryggja öryggi borgara

Árið 2016 fjallaði Stundin um hugleiðingu Jóns Gunnars­sonar sem hann birti á Facebook þar sem hann kallaði eftir því að íslenska lögreglan fengi aukin úrræði til þess að tryggja öryggi borg­aranna í kjölfar hryðjuverka­árásar í Nice í Frakk­landi þar sem nítján tonna vörubíl var ekið inn í hóp af fólki sem fagnaði þjóð­hátíðardegi frakka. 

Í þeim hugleiðingum velti hann fyrir sér hvernig hægt væri að tryggja öryggi íslenskra borgara ef slíkt myndi henda á Íslandi og hann og félagar hans væru því sammála að það kæmi að litlu gagni ef lögreglu­menn hefðu ekki önnur úrræði en að „banka með kylfu á glugga faratækis misyndis­manna og biðja þá að hætta“.

„Við hljótum að þurfa að taka þessa umræðu og hugsa fyrir því hvernig við gerum lögreglu­mönnum okkar kleift að mæta aðstæðum þeim sem við mögulega stöndum frammi fyrir.“

Líkti búsáhaldabyltingunni við árás á bandaríska þinghúsið

Í janúar síðastliðnum skrifaði Jón svo aðra hugleiðingu sem meðal annars kom inn á vanmátt íslensku lögreglunnar. Þann pistil skrifaði Jón vegna vopnaðrar árásar stuðnings­manna Trump, fráfar­andi bandaríkja­forseta, á bandaríska þinghúsið þar sem fjórir létu lífið og fjórtán lögreglu­menn særðust. Atburðurinn vakti hjá honum minningar af „keimlíkum“ atburði sem hann sjálfur varð vitni að, búsáhalda­byltingunni í kjölfar banka­hrunsins þar sem hann taldi lögregluna hafa verið „hárs­breidd frá því að tapa slagnum“.  

„Fyrir mig sem upplifði atburðina verandi í Alþingis­húsinu 2009 rifjar þetta upp óþægilegar minningar. Margt er svo keimlíkt með því sem nú átti sér stað og þess sem átti sér stað við Austur­völl í árás á þinghúsið, vöggu lýðræðis í landinu,“ segir í pistlinum.

„Það er margt sem rifjast upp við þessa atburði vestanhafs og ekki hægt að segja annað en að mikil líkindi séu með aðstæðum, þótt sá regin­munur sé á að okkur var blessunnarlega hlíft við mannfalli.“

Hann sagði „ákveðna þingmenn“ hafa séð pólitískt tækifæri í „upplausninni sem skapaðist og ýttu undir ólguna.“ Þá sagði Jón að ef ekki hefði verið fyrir skothelt gler í gluggum Alþingis­hússins hefði verið líklegt að „æstur múgur hefði komist inn í þingið. Þegar verst lét var lögreglan einungis hárs­breidd frá því að tapa þessum slag.“

Stjórnarsáttmálinn og Jón

Í nýja stjórnar­sáttmála nýju ríkis­stjórnarinnar segir að lögreglan og lögreglu­yfirvöld þurfi að vera í stakk búin til að mæta þeim miklu samfélags­legu áskorunum sem leiða af „skipulagðri glæpa­starfsemi, tækni­þróun, nýjum hugbúnaðar­lausnum, hnattvæðingu og fjar­skipta-og nettengingum“. 

Stjórn­ar­sátt­máli um rík­is­stjórn­ar­sam­starfÍ nýjum sátt­mála um rík­is­stjórn­ar­sam­starf Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri­heyrf­ing­ar­innar-græns fram­boð kom sér­stak­lega fram að lög­reglu­yf­ir­völd þyrftu að vera í stakk búin til að takast á við skipu­lagða glæp­a­starfs­semi.

Jón gerði skipulagaða glæpa­starfsemi að umfjöllunar­efni sínu í ræðustól Alþingis í lok maí 2019 eftir að skýrsla greiningar­deildar ríkis­lögreglu­stjóra um sama efni kom út. Jón lagði sérstaka áherslu á að opinbert bótakerfi, vinnu­miðlun, móttöku­kerfi vegna flótta­fólks og hælis­leitenda og marg­vísleg félagsleg þjónusta væri „skipulega misnotuð“ af erlendum afbrota­mönnum.

Um starfsemina hafði hann eftir­farandi að segja: „Þetta er stór­alvarlegt mál, virðu­legur forseti, og við þessu verður að bregðast.“

Stuttu síðar eða þann 3. júní 2019 var Jón hins vegar fjar­verandi atkvæða­greiðslu um stofnun ráðgjafa­stofnun innflytjenda og síðar fjar­verandi meðferð þingsins á stöðu einstaklinga sem ekki eru mæltir á íslensku í samskiptum þeirra við stjórn­völd. Þá var hann einnig fjar­verandi í allri meðferð þingsins á skráningar­skyldu félaga til almanna­heilla með starfsemi yfir landamæri sem lúta að því að styrkja varnir Íslands gegn skipulagðri glæpa­starfsemi og peninga­þvætti.

Þá segir einnig í stjórnar­sáttmálanum að endur­skoða þurfi bæði sjálfstætt innra og ytra eftirlit með störfum lögreglu. Jón var fjar­verandi í meðferð þingsins og atkvæða­greiðslu á frumvarpi um sjálfstætt eftirlit með starfsemi og starfs­háttum lögreglu.

Í stjórnar­sáttmálanum er áhersla lögð á að stuðla að „auknu aðgengi fanga að fjöl­breyttri menntun, virkni og stuðningi að afplánun lokinni“. Jón var hins vegar fjar­verandi meðferð þingsins á samfélags­þjónustu og reynslu­lausn fanga og meðferð þess á betrun fanga. Þá var hann einnig fjar­verandi þegar þingið tók fyrir heildarlög um þjóð­kirkjuna sem einnig fellur undir hans málefna­svið sem innan­ríkis­ráðherra. 

Fjarvera Jóns á þingiJón var fjar­ver­andi með­ferð þings­ins á ýmsum málum er varða hans nýja mál­efna­svið.

Fangelsisvist fyrir tálmun

Hvað réttarfar og refsingar varðar var Jón Gunnarsson einn þeirra sjö þingmanna Sjálfstæðis­flokksins, ásamt Brynjari Níelssyni, Ásmundi Friðriks­syni, Bryndísi Haralds­dóttur, Njáli Trausta Friðberts­syni, Óla Birni Kárasyni og Páli Magnússyni, sem fór fyrir frumvarpi þess efnis að heimila fimm ára fangelsis­vist sem refsingu fyrir tálmun eða takmörkun á umgengni. „Tálmi foreldri hinu foreldrinu eða öðrum sem eiga umgengnis­rétt samkvæmt úrskurði, dómi, dómsátt foreldra eða samningi þeirra stað­festum af sýslu­manni að neyta umgengnis­réttar, eða takmarki hann, varðar það sektum eða fangelsi allt að fimm árum. Brot gegn ákvæði þessu sætir aðeins opinberri rannsókn að undan­genginni kæru barna­verndar til lögreglu,“ segir í greinar­gerð með frum­varpinu. 

Frumvarpið sætti mikilli gagnrýni

Frum­varpið sætti tölu­verðri gagnrýni sem meðal annars birtist í umsögnum við það. Stofnanir og samtök á borð við Barna­heill, Barna­verndar­stofa og Samtökum um kvenna­athvarf sögðust til að mynda ekki styðja frum­varpið vegna ýmissa annmarka og fyrst og fremst þann er varðaði fangelsis­vist.

Auk þess skrifuðu hátt í tvö hundruð konur bréf til þingmanna þar sem þeir voru hvattir til að taka afstöðu gegn frum­varpinu. „Hið opinbera tekur nú þegar þátt í kerfis­lægu niður­broti og ofbeldi með ákvarðanatöku sinni og fremur mannréttindabrot í skjóli valds. Hversu oft þarf þetta frumvarp sem vinnur augljóslega gegn hag allra barna og vinnur beint gegn þolendum ofbeldis, að vera lagt fram áður en þið áttið ykkur á alvarleika málsins?“ sagði í yfir­lýsingu hópsins Aktívistar gegn nauðgunar­menningu en hópurinn sagði viðhorfið sem frum­varpið endur­speglaði vera skaðlegt konum og börnum þeirra. 

Hópurinn sagði hugsunina á baki frum­varpinu vera í mótsögn við barnaverndarlög og Barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna.

„Börn sem af einhverjum ástæðum njóta ekki umgengni við annað foreldri sitt eru bersýnilega ekki betur sett með því að hinu foreldrinu sé varpað í fangelsi. Þá er ríkið sjálft að svipta barnið réttinum á umgengni við það foreldri sem afplánar refsivist og jafnvel svipta barnið eina foreldrinu sem verndar það. Þessi hugsun er ekki bara órökrétt heldur er hún í hreinni mótsögn við alla hugsun að baki barnalögum, barnaverndarlögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna,“ segir í yfir­lýsingunni. 

Kaus gegn frumvarpi um þungunarrof

Þeir sömu þingmenn og lögðu fram frumvarp um refsingu við tálmun, að Bryndísi Haralds­dóttur undan­skilinni, greiddu einnig atkvæði gegn þungunar­rofi Svandísar Svavars­dóttur, þáverandi heilbrigðis­ráðherra en aðeins 18 manns greiddu atkvæði gegn því á meðan 40 þingmenn greiddu atkvæði með því. Þegar Jón gerði grein fyrir atkvæði sínu í pontu sagði hann að það væri merki um „mikla málefna­þurrð“ að þurfa að hlusta á „allt að því persónulegar svívirðingar ákveðinna þingmanna í garð annarra þingmanna“ vegna mismun­andi skoðana varðandi frum­varpið.

„Að væna menn um að bera ekki virðingu fyrir sjálfs­ákvörðunar­rétti kvenna þegar umræðan snýst um það hversu langt sá réttur á að ná, hversu lengi á hann að gilda. Hæstvirtur forsætis­ráðherra hefur gefið upp sína skoðun á því: Hann á að ná alla leið að fæðingu. Það er skoðun sem fólki er frjálst að hafa. Ég hef ekki þá skoðun. Hvenær á fóstrið rétt til lífs? Og flóttinn frá umræðunni birtist okkur síðan í því þegar fólk er farið að tala um þungunarrof í staðinn fyrir fóstur­eyðingu. Hver eru mörkin milli þungunar­rofs og fóstur­eyðingar, eða frá frumu­klasa, eins og hátt­virtir Samfylkingar­þingmenn kjósa að kalla þetta? Hann er ansi myndar­legur frumu­klasinn, formaður Samfylkingarinnar, sem situr þarna fyrir aftan mig í salnum,“ sagði Jón. 

Í viðtali við Rúv eftir að ráðherrar nýrrar ríkis­stjórnar voru kynntir lýsti Jón bæði furðu og þakklæti yfir því að hafa hreppt embættið og að nýi stjórnar­sáttmálinn sé „fín mála­miðlun“ þrátt fyrir að hafa viljað sjá margt öðruvísi í honum.

Í við­tali við fjöl­miðlaJón ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjalta­dóttur frétta­mann Rúv um nýju hlut­skipti sín.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta er hættulegasti ráðherrann og vonandi nær hann ekki að gera of mikið af sér áður en hann fer
    Hættulegasta ráðuneytið er umhverfis- og orkumála - þar situr ráðherra og á að taka á árekstrum milli umhverfisverndar og landnýtingar við orkuframleiðslu
    0
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Jón er ekki góður maður.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár