Verður Mastodon arftaki Twitter?

Notendur á Twitter sem efast um ágæti kaupa rík­asta manns heims á sam­fé­lags­miðl­inum hafa fært sig í stórum stíl yfir á Mastodon, dreif­stýrðan sam­fé­lags­miðil sem er ekki til sölu. Stofn­andi Mastodon er þrí­tugur Þjóð­verji sem vill dreifa ábyrgð­inni.

Loðfílar, eða mastódónar, eru einnkennisfígúrur samfélagsmiðilsins Mastodon.
Loðfílar, eða mastó­dónar, eru einn­kenn­is­fígúrur sam­fé­lags­mið­ils­ins Mastodon. Mynd: Mastodon

Framtíð Twitter er óljós eftir að kaup auð­kýf­ings­ins Elons Musk gengu loks í gegn eftir mikla þrauta­göngu. Sumum Twitter-not­endum lýst ekki á blik­una og eru farnir að leita annað, en hvert?

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Mastodon gæti verið svarið. Virkir not­endur mið­ils­ins eru orðnir yfir ein milljón og hefur meiri­hluti þeirra bæst í hóp­inn eftir að Musk varð eig­andi Twitter.

Musk greiddi 44 millj­arða banda­ríkja­dala fyrir Twitter. Kaupin gengu ekki snurðu­laust fyrri sig. Musk keypti fyrst hluta­bréf í Twitter í upp­hafi árs og í byrjun apríl var hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu kom­inn yfir níu pró­sent og var hann þar með orð­inn meðal stærstu hlut­hafa í Twitter og bauðst að taka sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Hann afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­gangi sínum í núver­andi formi.

Í kjöl­farið gerði hann yfir­tökutil­boð upp á 44 millj­arða Banda­ríkja­dala sem stjórn Twitter hafn­aði í fyrstu en ákvað svo að ganga að. Yfir­takan komst þó í nokkuð upp­nám í maí, áður en hlut­hafar höfðu tekið afstöðu til til­boðs­ins, þegar Musk sak­aði Twitter um að standa í vegi fyrir því að hann fengi upp­lýs­ingar um hversu hátt hlut­fall not­enda mið­ils­ins eru gervi­menni (e. bots).

[links]Í tísti sem hann sendi frá sér greindi hann frá því að kaup hans á sam­­fé­lags­mið­l­inum hefðu verið sett á ís þar sem hann væri að bíða eftir gögnum sem gætu rök­­stutt full­yrð­ingar Twitter um að hlut­­fall gervi­­­menna á sam­­fé­lags­mið­l­inum væri innan við fimm pró­­sent.

Allt stefndi í að mögu­leg yfir­taka rík­asta manns heim yrði gerð upp fyrir dóm­stólum en í lok októ­ber gekk Musk loks frá kaup­unum, degi áður en loka­frestur til þess rann út. „Fuglinn er frjáls!“ tísti Musk. Meðal fyrstu verka hans sem eig­andi Twitter var að segja upp tæp­lega helm­ingi starfs­fólks og leggja mann­rétt­inda­deild fyr­ir­tæk­is­ins niður.

Loðfílar sem segja samfélagsmiðlun ekki til sölu

„Sam­fé­lags­miðlun sem er ekki til sölu,“ er það sem tekur á móti þeim sem opna heima­síðu Mastodon. Þar er svo hægt að nálg­ast app-ið eða stofna aðgang.

Stofn­andi Mastodon er Þjóð­verj­inn Eugen Rochko. Nafnið, Mastodon, er vísun í fíl af útdauðri fíla­ætt­kvísl sem svipar til loð­fíls. Krútt­legar teik­mynda­fíg­urur í formi loð­fíla eru einmitt tákn Mastodon sem bjóða fólk vel­komin á mið­il­inn. Svo er reyndar líka til banda­rísk þung­arokks­hljóm­sveit sem heitir Mastodon.

[adspot]Á yfir­borð­inu eru mikil lík­indi með Mastodon og Twitter. Notendur geta skrifað færslur, eða flaut (e. toot), rétt eins og not­endur á Twitter birta tíst (e. tweet). Flaut­unum er hægt að svara, líka við og end­ur­deila, rétt eins og á Twitter. Svo geta not­endur að sjálf­sögðu fylgt hvor öðrum.

En á bak við Twitter- og Mastodon-prófíl­ana liggur mun­ur­inn og það er einmitt ástæðan fyrir því að not­endur leita á Mastodon, en hefur líka valdið rugl­ingi.

Dreifstýring í stað miðstýringar

Helsti mun­ur­inn á miðl­unum er hvernig þeir eru hýstir. Mastodon er ekki með mið­læga vef­síðu sem er hýst á einum stað í eigu fyr­ir­tækis líkt og Twitter.

Mastodon er lýst sem dreif­stýrðum, opnum hug­bún­aði (e. open-source). Við skrán­ingu þurfa not­endur að velja sér net­þjón sem hýsir aðgang­inn. Líkja má skrán­ing­unni við val á net­fangi. Mastodon er með nokkra net­þjóna, sem eru í eigu mis­mun­andi fyr­ir­tækja, og því er Mastodon ekki í eigu eins ein­stak­lings eða fyr­ir­tækis.

Kveikjan að stofnun mið­ils­ins var einmitt að geta haft sam­skipti á net­inu án þess að ábyrgð og völd væru í höndum eins aðila. Rochko var 23 ára þegar hann stofn­aði Mastodon árið 2016. Hann var orð­inn svekktur og pirr­aður á Twitter og ákvað að taka málin í sínar eigin hendur. „Það skiptir mig miklu máli að geta tjáð mig á net­inu við vini mína í stuttum skila­boðum. Það er mörgum mik­il­vægt, en slík ábyrgð ætti ekki að vera í höndum á stöku fyr­ir­tæki,“ segir Rochko í sam­tali við Time. Hann hætti á Twitter því hann treysti ekki stjórn­un­ar­stíl fyr­ir­tæk­is­ins.

Fyrstu fjóra dag­ana eftir að Musk varð eig­andi Twitter fjölg­aði not­endum Mastodon um 120 þús­und. Virkir not­endur eru nú í kringum milljón en alls er aðgang­arnir 4,5 millj­ónir tals­ins. Rochko er eini starfs­maður Mastodon, mesta starf­semin fer í gegnum net­þjón­ana.

Rochko segir það jákvætt að finna fyrir við­ur­kenn­ingu á eigin verkum. „Ég hef barist fyrir því að vekja athygli á að það eru til betri leiðir til að reka sam­fé­lags­miðla en leiðin sem stóru miðl­arnir líkt og Twitter og Facebook gera.“

Mastodon virkar ein­hvern veg­inn svona:

Netþjónar:

Við skrán­ingu á mið­il­inn þarf að velja net­þjón sem flokk­aðir eru eftir ýmsum þemum, svo sem löndum, borgum eða áhuga­málum, svo sem Bretland, tækni, tölvu­leikir og svo fram­vegis. Í raun skiptir ekki máli hvaða net­þjónn er val­inn þar sem hægt er að fylgja not­endum sem velja aðra net­þjóna. En með val­inu er not­and að velja sér ákveðið grunn­sam­fé­lag.

Af hverju netþjónar?

Hér verður þetta svo­lítið flókið, en á ein­faldan hátt má lýsa Mastodon með þeim hætti að mið­ill­inn er ekki einn sam­eig­in­legur vett­vangur sem er í eigu ein­stak­lings eða fyr­ir­tækis. Notendur velja á milli mis­mun­andi net­þjóna sem tengj­ast og mynda saman sam­eig­in­legt kerfi, sem er í eigu mis­mun­andi ein­stak­linga og sam­taka. Til­gang­ur­inn er að draga úr mið­stýr­ingu og það er einmitt það sem er að laða not­endur frá Twitter yfir til Mastodon.

Notendur:

Net­þjónn­inn sem val­inn er í byrjun verður hluti af not­enda­nafn­inu. Tækni­blaða­maður BBC, Zoe Kleinman, valdi sér til að mynda not­enda­nafnið zsk. Fullt not­enda­nafn hennar á Mastodon er þá @zsk@mastodonapp.uk. Ef not­endur eru á sama net­þjóni er hins vegar nóg að leita eftir nafni við­kom­andi.

Auglýsingar:

Engar aug­lýs­ingar eru á Mastodon. Það er hins vegar ekk­ert sem kemur í veg fyrir að not­endur aug­lýsi eigin vöru eða fyr­ir­tæki á miðl­inum.

Kostnaður:

Mastodon er ókeypis. En, sumir net­þjónar óska eftir frjálsum fram­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár