Corbyn heldur að Ísland og EES sé ekki til

Leiðtogi stjórn­ar­and­stöð­unnar í Bret­landi virð­ist ekki átta sig á að hægt sé að fá aðild að sam­eig­in­lega mark­aði ESB án þess að vera aðilar. Ísland hefur aðgang að mark­að­inum gegn því að sam­þykkja allar fjórar stoðir ESB.

Jeremy Corbyn er formaður Verkamannaflokksins í Bretlandi.
Jeremy Corbyn er for­maður Verka­manna­flokks­ins í Bret­landi. Mynd: EPA

Ef Verka­manna­flokk­ur­inn væri við stjórn í Bret­landi myndu Bretar yfir­gefa sam­eig­in­legan markað Evr­ópu­sam­bands­ins vegna þess að aðild að honum er skil­yrt aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sjálfu, sagði Jeremy Corbyn, for­maður flokks­ins, í við­tali á BBC í gær. The Guardian greinir frá.

Corbyn segir að hann mundi frekar reyna að sækja góðan milli­ríkja­samn­ing um við­skiptið við Evr­ópu­ríki. Þessi útskýr­ing for­manns­ins á Brexit-stefnu Verka­manna­flokks­ins hefur sætt gagn­rýni innan flokks­ins enda virð­ist Corbyn ekki átta sig á því að nokkur ríki – þar á meðal er Ísland – hafa aðgang að sam­eig­in­lega mark­aði ESB án þess að vera aðilar að Evr­ópu­sam­band­inu.

„Sam­eig­in­legi mark­að­ur­inn er háður aðild að ESB. Við höfum alltaf sagt að við viljum toll­frjáls við­skipti við mark­aði í Evrópu og sam­starf með Evrópu í fram­tíð­inni,“ sagði Corbyn í við­tal­inu. „Þessir tveir hlutir eru tengdir órjúf­an­legum böndum svo spurn­ingin er þá hvers konar við­skipta­sam­band við viljum hafa til fram­tíðar.“

Chuka Umunna, þing­maður Verka­manna­flokks­ins, benti á þessar rang­færslur Corbyns í færslu á Twitter í gær.

Umunna segir samn­ingur Bret­lands við ESB, sem væri sam­bæri­legur þeim sem Ísland og Noregur hafa, myndi gera það að verkum að Bretland gæti enn verið aðili að sam­eig­in­lega mark­aði ESB. Það mundi stuðla að félags­legu jafn­rétti og veita stjórn­völdum frekara fjár­hags­legt ráð­rúm. Samn­ingur Íslands og Noregs hefur það hins vegar í för með sér að löndin verða að leyfa frjálst flæði fólks, eitt­hvað sem hefur verið á milli tann­ana á Bretum.

[adspot]

Samið um Brexit

Bretar semja nú um hvernig sam­bandi sínu við Evr­ópu­sam­bandið verður háttað eftir að Bretland verður ekki form­lega hluti af ESB árið 2019. Vinda þarf ofan af meira en 40 ára starfi Bret­lands í Evr­ópu­sam­vinn­unni og semja um sam­skiptin á ný.

[links]Enn er tek­ist á um hvaða leið sé best að fara við aðskiln­að­inn. Stjórn­mála­menn hafa talað um Hard Brexit, þe. skýran aðskilnað, og svo Soft Brexit, þar sem haldið verður í hluta sam­starfs­ins, í þessu til­liti.

Bresku þing­kosn­ing­arnar í júní voru tví­ræðar að þessu leyti enda missti Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, meiri­hluta sinn á þing­inu og leiðir nú minni­hluta­stjórn. Stjórn­mála­skýrendur og stjórn­mála­menn hafa fyrir vikið átt erfitt með að átta sig á afstöðu kjós­enda um hversu skýr aðskiln­aður Bret­lands við ESB á að vera.

Ein þeirra leiða sem komið hefur til tals er að Bretland semji við Evr­ópu­sam­bandið um sams­konar aðgangi og EES-samn­ing­ur­inn veitir Íslandi, Noregi og Liechtenstein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár