Segir hagsmuni Íslands í Brexit meiri en í Icesave

Fram­kvæmda­stjóri SFS segir mik­il­vægt að íslensk stjórn­völd fjár­magni hags­muna­bar­áttu íslensks efna­hags­lífs í Brexit-við­ræð­unum.

18 prósent af útfluttum sjávarafurðum fara til Bretlands. Það er því mikið hagsmunamál fyrir íslenskan sjávarútveg að Ísland tryggi áframhaldandi viðskiptasamband eftir Brexit.
18 pró­sent af útfluttum sjáv­ar­af­urðum fara til Bret­lands. Það er því mikið hags­muna­mál fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg að Ísland tryggi áfram­hald­andi við­skipta­sam­band eftir Brexit. Mynd: EPA

Í Brexit eru fólgnir meiri hags­munir en í Icesave-mál­inu fyrir íslenskan efna­hag, sagði Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), á fundi SFS um Brexit í síð­ustu viku. Fjallað er um fund­inn í Fiski­fréttum.

11 pró­sent af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum Íslands eru við Bretland og er megnið af þeim við­skiptum fólgin í verslun með fisk og fiskaf­urðir eða 69 pró­sent. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn á Íslandi hefur þess vegna enn meiri hags­muna að gæta en aðrir geirar. 18 pró­sent af útfluttum sjáv­ar­af­urðum frá Íslandi fara til Bret­lands.

Samn­inga­við­ræður milli Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins hófust form­lega í vik­unni með fundi aðal­samn­inga­manna beggja aðila. Bretar ákváðu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í júní í fyrra að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Bretland hefur verið aðili að ESB síðan árið 1973 og hefur verið aðili að sam­eig­in­legum mark­aði Evrópu. Ísland er einnig aðili að þeim mark­aði í gegnum samn­ing­inn um evr­ópska efna­hags­svæðið (EES-samn­ing­inn). Auk gam­als frí­versl­un­ar­samn­ings síðan 1972, sem Ísland er aðili að í gegnum EFTA-sam­starfið, er EES-samn­ing­ur­inn eini ramm­inn um við­skipti Íslands og Bretland.

Útganga Bret­lands úr ESB getur þess vegna haft mikil áhrif á við­skipti milli Íslands og Bret­lands. Íslenskt efna­hags­líf þess vegna mik­illa hags­muna að gæta í samn­inga­við­ræðum ESB og Bret­lands.

[adspot]

Margir óvissuþættir og Brexit bætist við

Haft er eftir Heiðrúnu Lind í Fiski­fréttum að mik­il­vægt sé að íslensk stjórn­völd leggi til fjár­muni til þess að fjár­festa í fram­tíð­ar­hags­munum Íslend­inga. „Um er að ræða meiri hags­muni en þá sem voru undir í Icesave-mál­inu og í því máli má með var­færnum hætti telja að kostn­aður við sér­fræði­ráð­gjöf hafi farið yfir 500 millj­ónir króna. Til að rétt sé á hags­munum haldið frá upp­hafi, þurfa stjórn­völd því að leggja til fjár­muni – fjár­fest­ingu í fram­tíð­ar­hags­munum Íslend­inga,“ segir Heiðrún Lind.

Á breskum mark­aði með sjáv­ar­af­urðir er Ísland stærsti birg­inn, á undan Kín­verjum. Íslenskar sjáv­ar­af­urðir eru mjög verð­mætar í Bret­landi vegna þess hversu ferska vöru íslenskum útflytj­endum tekst að bjóða upp á.

Íslensk sjáv­ar­út­flutn­ings­fyr­ir­tæki dreifa afurðum til Evrópu í gegnum stór­skipa­höfn í Bret­landi. Afurð­irnar eru svo keyrðar á áfanga­stað.

„Sjáv­ar­út­veg­ur­inn býr auð­vitað við ótelj­andi óvissu­þætti – fiski­stofn­arnir, svipt­ingar á mörk­uðum, gengi krón­unnar, veðrið, olíu­verðið og kannski það sem rétt er að nefna, en ég ætti vafa­laust ekki að gera, stjórn­mála­menn. Brexit er enn ein áhættan sem nú er að raun­ger­ast og þá er spurn­ingin hvernig við ætlum að takast á við þessar aðstæður. Þetta er hreint ótrú­lega dýr­mætur tími að und­ir­búa okkar mál­flutn­ing gagn­vart Bretum og hvernig við ætlum að vernda okkar hags­muni við þær breyt­ingar sem munu klár­lega verða,“ er haft eftir Heiðrúnu Lind.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár