Stefnumótunin hafin í loftslagsmálum Íslands

Afrakstur stefnu­mót­un­ar­vinnu ráðu­neyta og sam­starfs­að­ila í lofts­lags­málum er nú að líta dags­ins ljós. Komin er fram aðgerða­á­ætlun um orku­skipti í takti við mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins sem inn­leiða á í íslensk lög í haust.

Parísarsamningurinn mun ekki öðlast formlegt gildi fyrr en þau 55 lönd sem bera ábyrgð á samtals 55% allrar losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum innleiða samninginn í lög. Stefnt er að innleiðingu samningsins hér landi í haust. Aðgerðaáætlunin er liður í aðgerðum stjórnvalda til að standa undir skuldbindingum Íslands. Mynd: Apollo 10 / NASA
Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn mun ekki öðl­ast form­legt gildi fyrr en þau 55 lönd sem bera ábyrgð á sam­tals 55% allrar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í heim­inum inn­leiða samn­ing­inn í lög. Stefnt er að inn­leið­ingu samn­ings­ins hér landi í haust. Aðgerða­á­ætl­unin er liður í aðgerðum stjórn­valda til að standa undir skuld­bind­ingum Íslands. Mynd: Apollo 10 / NASA

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, mælti fyrir til­lögu til þings­á­lykt­unar á Alþingi á dög­unum sem fjallar um aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í orku­skiptum. Er þetta nokkuð stórt skref í stefnu­mótun rík­is­ins í lofts­lags­málum og eitt af aðal­at­riðum sókn­ar­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­sam­starfs Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks sem kynnt var í nóv­em­ber í fyrra. Í þeirri áætlun stóð að kynna aðgerð­ar­á­ætl­un­ina nú í vor. Með und­ir­ritun og inn­leið­ingu Par­ís­ar­sátt­mál­ans munu stjórn­völd skuld­binda Ísland til að draga veru­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á landi og við strendur Íslands.

Í sókn­ar­á­ætl­un­inni sem kynnt var á blaða­manna­fundi fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í París var við­bragðs­verk­efnum rík­is­ins í lofts­lags­málum skipt í þrjá flokka: Verkefni til að draga úr nettólosun á Íslandi, alþjóð­legar áherslur og verk­efni til að draga úr losun á heims­vísu og styrk­ing inn­viða. Aðgerð­ar­á­ætlun Ragn­heiðar Elínar fellur undir fyrsta flokk­inn þar sem einnig má finna önnur verk­efni sem frekar eru á könnu ann­arra ráðu­neyta; ss. lofts­lagsvænni land­búnað, skóg­rækt og land­græðslu, end­ur­heimt vot­lendis og átak gegn mat­ar­sóun.

Þegar hafa nokkur verk­efni í sókn­ar­á­ætl­un­inni verið sett af stað. Til dæmis má nefna að fyrr í sumar setti Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, af stað verk­efni um end­ur­heimt vot­lendis á jörðum í eigu rík­is­ins þegar hún, ásamt Ólafi Ragnari Gríms­syni for­seta og Árna Braga­syni land­græðslu­stjóra, hófu upp­fyll­ingu í skurði í landi Bessa­staða. Land­græðsla rík­is­ins hefur umsjón með þessu verk­efni á lands­vísu. End­ur­heimt vot­lendis er við­ur­kennd aðferð — þó hún sé að vísu umdeild — til að tak­marka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga Ragn­heiðar Elínar um aðgerða­á­ætl­un­ina er hefur hlotið eina umræðu í sal Alþingis og liggur nú í atvinnu­vega­nefnd. Að sögn Jóns Gunn­ars­sonar, for­manns nefnd­ar­innar, hefur til­lagan ekki enn verið tekin fyrir í nefnd­inni því búvöru­samn­ingar hafi átt nær alla athygli nefnd­ar­manna und­an­farið. Spurður hvort hann telji lík­legt að málið verði afgreitt á þessu þingi segir hann að það sé lík­legt ef um áætl­un­ina ríki ekki ágrein­ingur.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands hafa gagn­rýnt að hvergi hafi komið fram hversu mikið þess­ari áætlun er ætlað að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið. „Við und­ir­bún­ing og eft­ir­fylgt Par­ís­ar­ráð­stefn­unnar hafa íslensk stjórn­völd ekki kynnt skýr mark­mið um hversu mikið Ísland hygg­ist draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á tíma­bil­inu 2021-2030,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum.

Umhverfisvernd er ekki eini hvatinn

Aðgerða­á­ætl­unin var kynnt til leiks í þremur köflum sem taka á hag­rænum hvötum, innviðum og stefnu­mótum. Í áætl­un­inni er stefnt að því að Ísland verði fram­ar­lega í notkun á end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. Sem stendur þá er hlut­fall end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa í sam­göngum á landi aðeins sex pró­sent. Stefnt er að því að hlut­fallið verði komið í 30 pró­sent árið 2030. Að sama skapi á að ráð­ast í átak til að efla hlut end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa í íslenskum fiski­skipum. Árið 2030 á hlut­fallið að vera komið í tíu pró­sent. Í dag er það hins vegar 0,1 pró­sent.

Aðgerð­ar­á­ætl­un­inni til stuðn­ings eru hag­rænar for­sendur einnig nefndar til sög­unnar. Nokkur hag­rænn ávinn­ingur felst í því að minnka hlut­deild inn­flutts elds­neytis á Íslandi. Með því að Íslend­ingar reiði sig frekar á íslenska orku­fram­leiðslu verður stuðlað að gjald­eyr­is­sparn­aði.

„Marg­vís­leg knýj­andi rök eru fyrir orku­skiptum,“ sagði Ragn­heiður Elín í ræðu sinni þegar hún flutti til­lög­una á Alþingi 22. ágúst. „Mest hefur borið á ástæðum tengdum umhverf­is­málum, þ.e. að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem og annarri mengun sem teng­ist jarð­efna­elds­neyti. Fleiri rök eru ekki síður mik­il­væg, eins og orku­ör­yggi, gjald­eyr­is­sparn­aður, nýsköpun og þróun. Innflutt jarð­efna­elds­neyti er háð sveiflum í fram­boði og olíu­verði. Aukið orku­ör­yggi eitt og sér er því nægj­an­legt til­efni til að róa að því öllum árum að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis. Ávinn­ingur er sömu­leiðis fólg­inn í því að byggja upp nýja atvinnu­grein, inn­lendan umhverf­is­vænan elds­neyt­is­iðnað, sem hefur í för með sér fjölgun starfa með til­heyr­andi marg­feld­is­á­hrifum.“

Til þess að hraða þess­ari þróun þá mun ríkið fjár­festa nokkuð í innviðum til árs­ins 2020. Eftir því sem að við­kom­andi tækni­lausnir verða sam­keppn­is­hæf­ari á mark­aði verður dregið úr opin­berum stuðn­ingi. Ráðu­neytið tekur hins vegar ekki afstöðu til þess hvaða tækni verður fyrir val­inu og reiðir sig á mark­aðs­öfl í því til­liti. Ragn­heiður Elín sagði í umræðum í þing­inu um til­lög­una að rík­is­stjórnin hefði ákveðið að besta leiðin væri að kalla eftir bestu tækn­inni og bestu hug­mynd­unum sem mark­að­ur­inn hefur yfir að ráða. „[…] ríkið á ekki að vera að byggja hleðslu­stöðvar út um allt land frekar en að það á að byggja bens­ín­stöðvar,“ sagði Ragn­heiður Elín.

Árið 2025 á fólki að vera fært að aka vist­vænum öku­tækjum áhyggju­laust í þétt­býli og á skil­greindum leiðum utan þétt­býlis. Þá á upp­bygg­ingu inn­viða, tam. upp­bygg­ing raf­hleðslu­stöðva, að vera lokið. Á sama tíma er stefnt að því að raf­teng­ingar sem full­nægja raf­orku­þörf til allrar almennrar starf­semi skipa í höfnum verði aðgengi­legar. Hvergi er hins vegar rætt um hvort — og hvernig — það þurfi að ráðst í frek­ari raf­orku­fram­leiðslu hér landi með virkj­unum hvers­konar til að mæta auk­inni þörf á orku sem upp­runin er hér á landi.

Hér að neðan hefur aðgerða­á­ætl­unin verið ein­földuð og sett fram á tíma­ási til útskýr­ingar.

Parísarsamningurinn innleiddur á þessu þingi

Fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í París í des­em­ber í fyrra lögðu öll aðild­ar­ríki að Ramma­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál fram sín eigin mark­mið í lofts­lags­málum. Var það meðal ann­ars talið til þeirra atriða sem gerðu far­sæla ráð­stefnu að mögu­leika í París. Ísland ákvað að fylgja Evópu­sam­band­inu (ESB) og hengja sig á mark­mið sam­bands­ins um 40 pró­sent minni losun árið 2030 miðað við árið losun árs­ins 1990. Í mark­miði Íslands er talað um að stjórn­völd hér á landi ætli að skuld­binda sig til ábyrgðar á „rétt­látum hluta“ (e. fair share) í mark­miði ESB. Noregur tók einnig þátt í mark­miði ESB en þar í landi hafa stjórn­völd þegar gefið út að stefnt verði að minnsta kosti 40 pró­sent minni losun árið 2030.

Enn hefur Ísland ekki samið um sína hlut­deild í mark­miði Evr­ópu­sam­bands­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum úr utan­rík­is­ráðu­neyt­inu er búist við að form­legar við­ræður við ESB hefj­ist nú í haust um „rétt­láta hlut­deild“ Íslands í lofts­lags­mark­miðum ESB og stefnt er á að við­ræð­unum ljúki á næsta ári.

Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra undirritaði Parísarsamninginn fyrir hönd Íslands í New York í apríl síðastliðinn.
Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra und­ir­rit­aði Par­ís­ar­samn­ing­inn fyrir hönd Íslands í New York í apríl síð­ast­lið­inn.

Í fjar­veru Lilju Alfreðs­dóttur kynnti Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­lind­ar­ráð­herra, áform utan­rík­is­ráð­herra um að mæla fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um inn­leið­ingu Par­ís­ar­samn­ings­ins í íslensk lög á næst­unni fyrir rík­is­stjórn. Þings­á­lykt­unin um full­gild­ingu samn­ings­ins var lögð fyrir Alþingi á föstu­dag. Sigrún hefur þegar und­ir­ritað samn­ing­inn fyrir hönd Íslands. Það gerði hún í höfðu­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York í apríl.

Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn um lofts­lags­mál mun ekki öðl­ast gildi fyrr en þau 55 lönd sem bera sam­eig­in­lega ábyrgð á 55 pró­sent alls útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hafa full­gilt samn­ing­inn. Nú hafa aðeins 24 ríki af þeim 179 sem und­ir­ritað hafa samn­ing­inn inn­leitt hann í lög­gjöf sína, séu Banda­ríkin og Kína und­an­skilin. Sam­an­lagt bera þessi lönd ábyrgð á um það bil einu pró­senti af öllum útblæstri í heim­inum.

Flest þess­ara ríkja sem inn­leitt hafa samn­ing­inn eru eyríki í Kyrra­haf­inu sem munu, ef fram heldur sem horfir, sökkva í sæ á næstu ára­tugum vegna hækk­andi sjáv­ar­borðs. Helstu meng­un­ar­löndin í þessum hópi eru Kamerún, Norður-Kórea, Perú og Noregur.

Mest munar um full­gild­ingu Kína og Banda­ríkj­anna á samn­ingnum. Þau lönd bera sam­tals ábyrgð á 37,98 pró­sent af öllum útblæstri heims­ins sam­an­lögðum. Barack Obama Banda­ríkja­for­seti og Xi Jinping, for­seti Kína, til­kynntu við upp­haf fundar 20 stærstu iðn­ríkja heims að ríki þeirra hafi inn­leitt samn­ing­inn. Obama mun hins vegar þurfa að fara fram hjá banda­ríska þing­inu enda hefur meiri­hluti repúblik­ana lýst því yfir að þar verði samn­ingnum hafnað.

Noregur er eina Evr­ópu­ríkið sem hefur inn­leitt samn­ing­inn. Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, hefur þegar mælt fyrir laga­frum­varpi um inn­leið­ingu samn­ings­ins og hvatt önnur lönd í Evrópu til að klára þessi mál fyrir árs­lok.

Lofts­lags­stefna Evr­ópu­sam­bands­ins byggir að miklu leyti á sam­eig­in­legum mark­aði með los­un­ar­heim­ildir, það sem á ensku kall­ast Emissions Trading System (ETS). Með lofts­lags­mark­miði sam­bands­ins til árs­ins 2030 er ætl­unin að dreifa ábyrgð­inni á aðild­ar­ríkin í þeim mála­flokkum sem ETS nær ekki yfir. Það eru geirar á borð við sam­göngur, land­búnað og mann­virki. Eins og áður segir er sam­eig­in­legt mark­mið ESB að blása 40 pró­sent minna af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum út í and­rúms­loftið árið 2030 en gert var árið 1990. Þá er mark­miðið að hlut­deild end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa í heild­ar­notkun verði að minnsta kosti 27 pró­sent og að orku­nýtni verði aukin um að minnsta kosti 27 pró­sent.

Á næstu mán­uðum verður hverju aðild­ar­ríki, og um leið Íslandi, veitt hlut­deild í þessu mark­miði. Um leið á að gera breyt­ingar á ETS til að það sam­ræm­ist betur mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár