Sex létust og að minnsta kosti 15 særðust í dag þegar byssumaður hóf skothríð í sögufrægum miðbæ Krakár, næststærstu borgar Póllands. Þetta er mannskæðasta skotárás í landinu í áratugi.
Síðar fundust þrjú lík, af tveimur konum og einum karli, á heimili hins grunaða, sagði Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands. Hann sagði „margt benda til þess að þau séu nánir ættingjar“ hins grunaða.
Tusk tilkynnti jafnframt að tveggja daga þjóðarsorg yrði í Póllandi vegna árásarinnar, sem hann kallaði „hryðjuverk“.
Marcin Kierwinski, innanríkisráðherra Póllands, sagði byssumanninn virðast hafa verið „heillaðan af hægri öfgastefnu“.
Uppfært: Kierwinski dró síðar í land með yfirlýsingu sína og saksóknarar sögðu að of snemmt væri að tengja byssumanninn við tiltekna hugmyndafræði, hvorki öfga til hægri eða vinstri.
Breskur ríkisborgari var meðal þeirra sem létust, að sögn Marek Boron, yfirmanns pólsku lögreglunnar. Fimm erlendir ríkisborgarar voru meðal þeirra særðu sem fluttir voru á …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir