Kostnaður við rekstur ráðherrabíla og bílstjóra 16 milljónir í fyrra

Kostn­aður stjórn­ar­ráðs­ins við rekstur ráð­herra­bíla og bíl­stjóra í fyrra var alls 16.363.529 krónur. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar.

Innan úr ráðherrabifreið Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Innan úr ráð­herra­bif­reið Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Auður Jónsdóttir.

Kostn­aður stjórn­ar­ráðs­ins við rekstur ráð­herra­bíla og bíl­stjóra í fyrra var alls 16.363.529 krónur. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar.

Í svar­inu segir að til­gangur með starf­semi bif­reið­anna sé að veita ráð­herrum aukið öryggi og þjón­ustu er þeir sinna emb­ætt­is­skyldum sínum. Ráð­herra­bif­reiðar skulu vera útbúnar örygg­is­kerfi og stað­setn­ing­ar­bún­aði og ekið af sér­stökum bif­reiða­stjóra sem jafn­framt sinnir hlut­verki örygg­is­varðar hlut­að­eig­andi ráð­herra.

Ekki er fram­kvæmd hlunn­inda­mat vegna notk­unar ráð­herra á ráð­herra­bílum. Samkvæmt eldri reglu­gerð frá árinu 1991 um bif­reiða­mál rík­is­ins kom fram að ráð­herra gæti notað ráð­herra­bif­reið til tak­mark­aðra einka­nota. Þá tald­ist akstur til og frá heim­ili sem einka­not. Í gild­andi reglu­gerð er ekki fjallað sér­stak­lega um rétt til tak­mark­aðra einka­nota og jafn­framt er gert ráð fyrir að ráð­herrum sé ekið til og frá heim­ili, m.a. vegna örygg­is­sjón­ar­miða. Fyrir vikið er hlunn­inda­mat ekki reiknað.

[links]Svandís Svav­ars­dóttir núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra spurði á síð­asta kjör­tíma­bili út í bif­reiða­kaup ráð­herra. Í svari við fyr­ir­spurn hennar kom fram að ráðu­neytin væru ýmist búin að skipta yfir í tvinn- eða tengit­vinn­bíla eða hygð­ust gera það við næstu kaup á ráð­herra­bíl­um.

Í svari við fyr­ir­spurn Björns Levís kemur fram að und­an­farið hafi verið unnið að því að end­ur­skipu­leggja umsýslu og rekstur bif­reiða Stjórn­ar­ráðs­ins og ráðn­ing­ar­sam­band ráð­herra­bíl­stjóra. Inn­leið­ing nýs fyr­ir­komu­lags standi yfir. „Það miðar að hag­kvæm­ari rekstri allra ráð­herra­bif­reiða, skýr­ari umgjörð um notkun þeirra og efldu hlut­verki bif­reiða­stjóra. Eft­ir­leiðis verður umsjón með bif­reiðum, rekstur þeirra og end­ur­nýjun hjá mið­lægri þjón­ustu­ein­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins. End­ur­nýjun bif­reiða verður í sam­ræmi við vist­væna inn­kaupa­stefnu ráð­herra­bif­reiða sem rík­is­stjórnin sam­þykkti í febr­úar sl. Þá miðar hið nýja fyr­ir­komu­lag að því að efla starfs­um­hverfi bif­reiða­stjóra og gera þeim betur kleift að gegna mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki gagn­vart ráð­herra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár