Ráðherrabílar verða vistvænni

Ráðu­neyti eru ýmist búin að skipta í tengit­vinn­bíla eða munu gera það næst þegar skipt verður um ráð­herra­bíla.

Ráðu­neyti eru ýmist búin að skipta yfir í tvinn- eða tengit­vinn­bíla eða hyggj­ast gera það við næstu kaup á ráð­herra­bílum. Þetta má lesa út úr svörum ráð­herra við fyr­ir­spurnum Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­flokks­for­manns Vinstri grænna, um bif­reiða­kaup ráð­herr­anna.

Svandís spurði ráð­herrana eft­ir­far­andi spurn­inga:

  1. Hversu margar bif­reiðar hafa verið keyptar til afnota fyrir ráðu­neytið frá því í árs­byrjun 2014, af hvaða teg­und eru þær, hvaða elds­neyti notar hver þeirra, hver er upp­gefin elds­neyt­is­notkun hverrar þeirrar og hver er upp­gefin losun hverrar þeirra á koltví­oxíði (CO2)?
  2. Hvernig sam­ræm­ast bif­reiða­kaup fyrir ráðu­neytið mark­miði í til­lögu til þings­á­lykt­unar um aðgerða­á­ætlun um orku­skipti (146. mál) um að fimmt­ungur bif­reiða í eigu opin­berra aðila verði vist­vænn fyrir árið 2020.
  3. Hefur krafa um að bif­reiðar sem keyptar eru til nota fyrir opin­bera aðila nýti end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa verið í útboðs­skil­málum vegna bif­reiða­kaupa ráðu­neyt­is­ins eða er áformað að slíkir skil­málar verði settir?

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að við útboð vegna bif­reiða­kaupa í fram­tíð­inni muni for­sæt­is­ráðu­neytið taka mið af ályktun Alþingis um aðgerða­á­ætlun um orku­skipti, og það var líka gert við síð­ustu end­ur­nýjun ráð­herra­bíls.

„Áformað er að við næstu end­ur­nýjun bif­reiðar ráðu­neyt­is­ins verði gerð enn rík­ari krafa um umhverf­is­sjón­ar­mið, þ.m.t. um nýt­ingu end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa, og að útboðs­skil­málar sam­ræm­ist umhverf­is­mark­miðum sem Alþingi setur. Þar verði sér­stak­lega litið til raf­bíla eða tengilt­vinn­bíla,“ segir Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra í svari sínu.

[adspot]

Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra svarar fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið, og þar kemur fram að ráðu­neytið er það eina þar sem bílar ráð­herra hafa ekki verið end­ur­nýj­aðir frá árinu 2014, heldur voru bíl­arnir báðir keyptir árið 2008. „Fyrir liggur að komið er að end­ur­nýjun á báðum bif­reiðum ráðu­neyt­is­ins og er gert ráð fyrir að krafa um end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa verði í útboðs­skil­málum.“

Kristján Þór Júl­í­us­son mennta­mála­ráð­herra segir að gert sé ráð fyrir því að gerð verði krafa um sjálf­bæra orku­gjafa þegar skipt verður um bíl næst.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son segir að bif­reiða­kaup muni sam­ræm­ast mark­mið­inu um vist­væna bíla, og Jón Gunn­ars­son sam­göngu­ráð­herra segir nýjan bíl ráðu­neyt­is­ins ekki falla undir skil­grein­ingu um vist­væna bíla, en gerð sé krafa um að eyðsla sé ekki umfram 7,5 lítra á 100 kíló­metra. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra svarar fyrir atvinnu­vega­ráðu­neytið, þar sem er þegar einn vist­vænn bíll. Svo verður einnig í fram­tíð­inni, að hennar sögn.

Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra segir að ráð­herra­bíll ráðu­neyt­is­ins sé með tengit­vinn­vél og noti að miklu leyti raf­orku í inn­an­bæj­arakstri. „Þess ber þó að geta að núver­andi ráð­herra hefði fremur valið bíl sem gengur að öllu leyti fyrir end­ur­nýj­an­legum eða vist­vænum orku­gjafa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár