Stærsti eigandi HB Granda kaupir hlut í Iceland Seafood

Úgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefur keypt 3,5 pró­sent beinan hlut í Iceland Seafood International. Kaup­verðið er um 652 millj­ónir króna.

Guðmundur Kristjánsson er stærsti eigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur, sem hét áður Brim.
Guð­mundur Krist­jáns­son er stærsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, sem hét áður Brim. Mynd: Brim Seafood

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem áður hét Brim, hefur keypt þriðj­ungs­hlut í Solo Holding ehf. sem á níu pró­sent hlut í Iceland Seafood International. Kaup­verðið er sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, 8,02 krónur á hlut. Það þýðir að Útgerð­ar­fé­lagið greiðir um 652 millj­ónir króna fyrir hlut­ina og mun eiga um 3,5 pró­sent beinan hlut í Iceland Seafood.

[links]Aðrir eig­endur Solo Holding eru Sjáv­ar­sýn ehf., félag í eigu Bjarna Ármanns­sonar, Jakob Valgeir ehf., og Nes­fiskur ehf. Þessir þrír aðilar eiga auk þess hver um sig 16,67 pró­sent hlut í Solo Holding auk þess sem þeir eiga beint hluti í Iceland Seafood, sem er sölu- og mark­aðs­fyr­ir­tæki í útflutn­ingi á ferskum, frosnum og sölt­uðum sjáv­ar­af­urðum.

Þétta raðirnar

Bjarni Ármanns­son, sem er stjórn­ar­for­maður Solo Holding, segir í sam­tali við Kjarnann að aðkoma Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur að Iceland Seafood sé mjög mik­il­væg. „Það er að mínu mati mjög mik­il­vægt að hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi þétti rað­irnar og standi saman, sér­stak­lega þegar kemur að sölu- og mark­aðs­málum á alþjóða­vett­vangi. Þetta er að mínu mati mik­il­vægt skref á þeirri veg­ferð.“

[adspot]Eigandi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur er Guð­mundur Krist­jáns­son. Hann keypti fyrr á þessu ári 35,01 pró­sent hlut í HB Granda í gegnum félagið. Kaup­verðið var yfir 22 millj­arða króna Skömmu síðar tók hann við starfi for­stjóra þar. Um miðjan sept­em­ber sam­þykkti stjórn HB Granda svo að kaupa útgerð­ar­fé­lagið Ögurvík af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur á 12.3 millj­arða króna. Tekist hefur verið á um verð­matið á þeim hlut en kaupin virð­ast nú ætla að ganga í gegn.

Íhuga að skrá félagið á aðalmarkað

Iceland Seafood keypti fyr­ir­tækið Solo Seafood á 7,8 millj­arða króna sumar. Kaup­verðið var greitt með útgáfu nýrra hluta­bréfa. Eigendur Solo, ofan­grein félög, eign­uð­ust við það 44 pró­sent hlut í Iceland Seafood International. Hópurinn bætti svo við sig hlutum í félag­inu í sept­em­ber.

Frétta­blaðið greindi frá því í upp­hafi ágúst­mán­aðar að stjórn­endur Iceland Seafood væru að íhuga að skrá félagið á aðal­markað, en það er þegar skráð á First North-mark­að­inn. Það yrði þá annað sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem skráð yrði á markað en fyrir þar er HB Grandi. Stærsti eig­andi þess er, líkt og áður sagði Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem hefur nú keypt sig inn í Iceland Seafood.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár