Starfsmaður Sjálfstæðisflokksins nýr stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs

Fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins verður tíma­bundið for­maður stjórnar Íbúða­lána­sjóðs, eftir að for­mað­ur­inn sagði af sér vegna flutn­inga til útlanda. Nýr ráð­herra á eftir að skipa stjórn.

Sig­ur­björn Ingi­mund­ar­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður tíma­bundið for­maður stjórnar Íbúða­lána­sjóðs, þar til ráð­herra skipar á ný í stjórn sjóðs­ins.

Sig­ur­björn hefur verið vara­for­maður stjórn­ar­innar en tekur við for­mennsk­unni tíma­bundið vegna þess að Ingi­björg Ólöf Vil­hjálms­dóttir stjórn­ar­for­maður og lög­maður hefur sagt af sér for­mennsk­unni. Ingi­björg Ólöf er að flytja utan og taka við nýju starfi.

Ingi­björg hefur verið for­maður stjórn­ar­innar frá árinu 2013. Það er ráð­herra hús­næð­is­mála sem skipar stjórn Íbúða­lána­sjóðs til fjög­urra ára í senn eftir hverjar alþing­is­kosn­ingar. Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur ekki skipað í stjórn­ina.

Fimm eru í stjórn Íbúða­láns, en auk þeirra Ingi­bjargar og Sig­ur­björns hafa þar setið Drífa Snædal við­skipta­fræð­ingur, Haukur Ingi­bergs­son fyrr­ver­andi for­stjóri Þjóð­skrár og Valdimar Valde­mars­son kerf­is­fræð­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár