Ályktun 1325 og mikilvægi femínisma til að takast á við stríð og átök

Þrátt fyrir jákvæða þróun í átt að jafn­rétti, sér í lagi á Vest­ur­löndum, rekast konur enn á veggi og þök. Þeim er haldið frá valda­miklum stöðum þar sem mik­il­vægar ákvarð­anir eru teknar. Það ríkir því enn valda­bar­átta þar sem konum er haldið niðri.

Þegar minnst er á femín­isma, hvað þá hug­tök eins og feðra­veldi, eiga sumir það til að bregð­ast reiðir við. Stundum heyr­ast jafn­vel þau við­horf að öfga­fullir femínistar hafi komið óorði á kven­rétt­inda­bar­átt­una sem sé í raun óþörf því konur njóti nú fulls jafn­réttis á við karla.

Þarna gleym­ist kannski að það jafn­rétti sem náðst hefur er árangur bar­áttu sem hefur verið löng og ströng og er alls ekki lokið. Það hefur einmitt ein­kennt hana að bar­áttu­málin hafa gengið gegn því sem þykir til­hlýði­legt og til sam­ræmis við ríkj­andi venjur og gildi sam­fé­lags­ins, en þykir nú sjálf­sagt.

En hvers vegna er ennþá mik­il­vægt að gefa hlut kvenna í sam­fé­lag­inu sér­stakan gaum, ræða kynja­kvóta, við­ur­kenna til­vist þess sem kallað hefur verið feðra­veldi og leggja fram kynjuð fjár­lög eða fram­kvæmda­á­ætl­anir – eða að bjóða konum að setj­ast við sátta­borðið þegar reynt er að stilla til friðar í átökum og stríði?

Það gleym­ist gjarnan að heim­ur­inn er stærri en Norður-Evrópa, þar sem jafn­rétt­is­mál eru senni­lega hvað lengst á veg komin. Stað­reynd­irnar tala líka sínu máli eins og nýlegar alþjóð­legar rann­sóknir, sem m.a. eru kynntar í nýút­kominni skýrslu Alþjóða-vinnu­mála­stofn­un­ar­innar sýna. Þar kemur fram að þrátt fyrir jákvæða þróun í átt að jafn­rétti, sér í lagi á Vest­ur­löndum, eru konur enn að rekast á veggi og þök. Þrátt fyrir allt jafn­réttið sem haldið er á lofti er konum enn haldið frá valda­miklum stöðum þar sem mik­il­vægar ákvarð­anir eru teknar.

Það ríkir því ennþá valda­bar­átta þar sem konum er haldið niðri. Það má m.a. rekja til alda­gam­als hugs­un­ar­háttar – sem við getum alveg eins kallað feðra­veldi – staða kon­unnar er enn háð gam­al­gró­inni valda­upp­bygg­ingu sam­fé­lags­ins, einnig hér á Vest­ur­löndum. Þetta er m.a. ástæða þess fjár­lög eru kynjuð, því mik­il­vægt er að við­kom­andi fram­kvæmdir eða fjár­veit­ingar styrki ekki og við­haldi því valda­kerfi mis­réttis sem ríkir heldur stuðli að auknu jafn­rétti.

Mikilvægi framlags femínískra fræða til alþjóðamála

Femínísk umræða hefur haft mikil áhrif í hug- og félags­vís­inda­greinum frá því á sjö­unda ára­tugnum þegar kven­rétt­inda­bylgjan reið yfir. Þar má nefna gagn­rýni á hvernig hin karllægu gildi og hugs­un­ar­háttur eru inn­byggð í meg­in­strauma alþjóða­fræða sem kemur í veg fyrir að þau nýt­ist til fulls til að skilja, útskýra og leysa þau vanda­mál sem að steðja. Með því að taka konur og kyn­gervi inn í umræð­una megi hins vegar auka víð­sýni manna, brjóta upp staðnað hug­ar­far og hreyfa við fyr­ir­fram gefnum hug­myndum um hvað sé mik­il­vægt og eigi að vera í for­grunni.

Þetta á sér­stak­lega við um stríðs­hrjáð lönd eða þar sem ógn­ar­stjórn ríkir en reynslan hefur sýnt að þeir sem fyrst finna fyrir afleið­ingum átaka og stríðs eru konur og börn. Jafn­framt er það þannig að þessi heimur stríðs og átaka er gjarnan skil­greindur út frá körlum og karllægum gildum. Í ljósi þessa er mik­il­vægt að konur geti komið að borð­inu til að marka stefnu og taka ákvarð­anir. Til­hneig­ing er þó að flokka mál­efni kvenna á þann hátt að þau ekki hafi neina raun­veru­lega þýð­ingu þegar kemur að lausn hinna erf­ið­ari og hörðu mála, stríða og milli­ríkja­deilna.

Stað­reyndin er samt sú að þessi svoköll­uðu kvenna­mál­efni eru mál sem varða stöð­ug­leika, jafn­rétti og öryggi. Bæði rann­sóknir og reynslan sýna ótví­rætt að þar sem konur sæta kúgun og eru beittar mis­rétti, þar þrífst óstöð­ug­leiki sem nærir öfga­fullt hug­ar­far – og þar með ófrið og átök. Samfara því að afleið­ingar stríðs og átaka virð­ast bitna mest á þeim er síst skyldi, konum og börnum, hefur orðið mann­rétt­inda­bylt­ing í heim­inum. Og þegar konur hafa náð að gera sig gild­andi í sam­fé­lag­inu hefur fólk líka áttað sig á gildi þekk­ingar þeirra og við­horfa í alþjóða­málum.

Ályktun öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna nr. 1325

Því hefur alþjóða­sam­fé­lagið reynt að bregð­ast við með því að auka þátt­töku kvenna þegar kemur að því að leiða deilur og átök til lykta. Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna gaf út ályktun 1325, árið 2000 þar sem eitt af lyk­il­at­rið­unum í þess­ari umræðu er áréttað, að konur og sjón­ar­mið þeirra eigi ekki aðeins erindi inn í umræð­una vegna þess að átök hafi sér­stakar afleið­ingar fyrir þær heldur einnig að þær geti haft áhrif sem máli skipti. Í álykt­un­inni segir orð­rétt,

„Útgangs­punktur álykt­un­ar­innar er sá að konur geta bæði haft áhrif í vopn­uðum

átökum og að átök hafa sér­stakar afleið­ingar fyrir þær. Álykt­unin und­ir­strikar mik­il­vægt

hlut­verk kvenna í frið­sam­legri lausn vopn­aðra átaka og frið­ar­upp­bygg­ingu, og leggur

áherslu á þátt­töku þeirra og aðild að öllum aðgerðum sem við­halda og stuðla að friði og

öryggi til jafns við karla. Álykt­unin brýnir fyrir aðild­ar­ríkjum Sam­ein­uðu þjóð­anna að

grípa til marg­vís­legra aðgerða til að flétta sjón­ar­mið og reynslu kvenna inn í aðgerðir í

þágu friðar.‘‘

Í álykt­un­inni er komið inn á mál­efni er varða stríðs­hrjáð svæði þar sem konur og börn verða oft fyrir barð­inu á stríð­andi fylk­ingum þar sem þau verða oft og tíðum fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­legrar mis­notk­unar og kyn­bund­ins ofbeldis. Með því að fjölga konum sem frið­ar­gæslu­liðum á átaka­svæðum má draga úr þessu ofbeldi. Hlutverk kvenna í for­vörnum og vinna að lausn á átökum er nauð­syn­legur þáttur í frið­ar­ferli og til að koma í veg fyrir stríð.

Ísland hefur verið með fram­kvæmda­á­ætlun í tengslum við ályktun örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna númer 1325. Í lið­inni viku var haldin tveggja daga alþjóð­leg ráð­stefna í Reykja­vík um álykt­un­ina og inn­leið­ingu hennar á átaka­svæðum. Til­gangur ráð­stefn­unnar var að meta árang­ur­inn af ályktun 1325 og ræða þær hindr­anir sem enn standa í vegi fyrir fram­kvæmd hennar, rúmum fimmtán árum eftir að hún var sam­þykkt í örygg­is­ráði SÞ.

Ljóst er að þótt unnið hafi verið ötul­lega að þessum málum er enn langt í land með að hlutur kvenna sé nógu stór þegar kemur að frið­ar­um­leit­unum. T.d. má nefna að konur eru nú ein­ungis um 10 pró­sent þeirra sem vinna við frið­ar­gæslu og eiga sæti í samn­inga­nefndum þar sem unnið er að því að koma á friði.

Jafn­réttis- og frið­ar­mál eru sá mála­flokkur sem Ísland hefur beint kröftum sínum að í alþjóða­sam­starfi, m.a. á vegum S.Þ. og NATO. Lilja Alfreðs­dóttir, sem nýlega tók við stöðu utan­rík­is­ráð­herra, sagði á ráð­stefn­unni frá áformum um að stefnt væri að því að kynna nýja metn­að­ar­fulla lands­á­ætlun 2017-2020 um fram­kvæmd álykt­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna 1325 um konur, frið og öryggi, á næstu mán­uðum.

Utan­rík­is­ráð­herra sagði einnig að jafn­rétt­is­bar­áttan væri jafn mik­il­væg og fyrr, töl­urnar töl­uðu sínu máli; eftir því sem konum fjölg­aði í frið­ar­um­leit­unum og í áhrifa­stöðum á opin­berum vett­vangi drægi úr lík­unum á átökum og ofbeldi. En með sama áfram­haldi yrði jafn­rétti þó ekki náð fyrr en árið 2095. Það hlýtur að telj­ast óásætt­an­legt og ljóst að framundan eru verk­efni sem þarf að vinna til að svo verði ekki.

Nánar verður fjallað um nið­ur­stöður ráð­stefn­unnar síðar á þessum vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár