Ætlaði að fella lög um ríkisábyrgð fyrir Íslenska erfðagreiningu á brott

Rúmum 15 árum eftir að lög um rík­is­á­byrgð vegna fjár­mögn­unar Íslenskrar erfða­grein­ingar voru sett stóð til að fella lögin úr gildi. Rík­is­á­byrgðin, sem var upp á 200 millj­ónir dala og gríð­ar­lega umdeild, var aldrei nýtt.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Til stóð að lög um 200 milljón dala rík­is­á­byrgð vegna fjár­mögn­unar á starf­semi Íslenskrar Erfða­grein­inga yrðu felld úr gildi. Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sem féll fyrir helgi, ætl­aði að leggja fram frum­varp á Alþingi um þetta í þessum mán­uði. Upphæðin er um 21,1 millj­arðar króna á núvirði. Þetta kom fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.

Rík­is­á­byrgðin, sem var fest í lög 23. maí 2002, er ekki bundin neinum tímara­mma og því þarf laga­breyt­ingu til að fella hana út úr íslenskum lögum.

Fékk aldrei ábyrgðina

Íslensk erfða­grein­ing fékk aldrei rík­is­á­byrgð­ina og fyr­ir­tækið fjár­magn­aði áform sín með öðrum hætti. Móð­ur­fé­lag Íslenskrar erfða­grein­ingar var svo selt til banda­ríska líf­tækni- og lyfja­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Amgen á 415 millj­ónir dala í des­em­ber 2012. Eigendur móð­ur­fé­lags­ins, DeCode, áður en sú sala fór fram var fjár­fest­inga­fé­lag í eigu áhættu­fjár­festu­sjóð­anna Polaris Venture Partners og Arch Venture Partners. Þeir höfðu eign­ast Íslenska erfða­grein­ingu þegar fyrr­ver­andi móð­ur­fé­lag þess var tekið til skipta­með­ferðar síðla árs 2009. Auk sjóð­anna áttu Kári Stef­áns­son, stofn­andi og for­stjóri DeCode, og á annan tug ein­stak­linga lít­inn hlut í félag­inu.

Íslensk erfða­grein­ing er því tölu­vert öðru­vísi fyr­ir­tæki í dag en það var árið 2002, þegar lögin um rík­is­á­byrgð­ina voru sett.

Pólitísk ákvörðun

Rík­is­á­byrgðin var gíf­ur­lega umdeild á sínum tíma og harð­lega gagn­rýnd, meðal ann­ars fyrir að vera póli­tísk. Á meðal þeirra sem settu fram gagn­rýni á hana voru aðilar vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­ar­and­staðan. Sá sem beitti sér mest fyrir laga­setn­ing­unni um rík­is­á­byrgð­ina var Davíð Oddsson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Lög um ábyrgð­ina voru á end­anum sam­þykkt með minni­hluta atkvæða, eða 27 tals­ins.

Líkt og áður sagði kom þó aldrei til þess að rík­is­á­byrgðin tæki gildi. Íslensk erfða­grein­ing sótti um ábyrgð og verða átti við því. Málið fór þaðan til skoð­unar hjá Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) sem átti að meta hvort þetta væri í sam­ræmi við reglur Evrópska Efna­hags­svæð­is­ins. Áður en ESA tók ákvörðun í mál­inu dró Íslensk erfða­grein­ing hins vegar beiðni sína til baka.

Hafa aldrei verið felld úr gildi

Lögin um rík­is­á­byrgð­ina hafa hins vegar aldrei verið felld úr gildi. Í mars 2008 greindu fjöl­miðlar frá því að lög­menn á nefnd­ar­sviði Alþingis, ásamt sér­fræð­ingi í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, hefði unnið álit um hvort hægt væri að veita rík­is­á­byrgð­ina ef kallað yrði eftir því. Í álit­inu kom fram að ráð­herra hefði þá heim­ild ef beiðni frá Íslenskri erfða­grein­ingu kæmi fram.

Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, lagði fram frum­varp á síð­asta kjör­tíma­bili til að nema heim­ild­ina um rík­is­á­byrgð­ina úr gildi. Það frum­varp var hins vegar aldrei afgreitt.

Og nú, áður en rík­is­stjórnin féll, ætl­aði Benedikt Jóhann­es­son að leggja fram frum­varp sama efnis og fjar­lægja rík­is­á­byrgð­ina umdeildu í eitt skipti fyrir öll úr íslenskum lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár