Mesti Evrópusinninn og mesti Evrópuandstæðingurinn unnu

Á skömmum tíma hafa Frakkar hafnað tveimur for­setum og þremur for­sæt­is­ráð­herrum. Bergþór Bjarna­son skrifar um úrslit fyrri umferðar for­seta­kosn­ing­anna í Frakk­landi.

Emmanuel Macron á kosningafundi.
Emmanuel Macron á kosn­inga­fundi. Mynd: EPA

Þann 7. maí í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna í Frakk­landi verða það Emmanuel Macron (23,9%) úr sam­tök­unum En Marché og Marine Le Pen (21,4%) frá Þjóð­ar­fylk­ing­unni sem mæt­ast. Sögulegt nú fimmtán árum eftir að Jean-Marie Le Pen, faðir Marine Le Pen, komst í aðra umferð á móti Jacques Chirac for­seta. Hvorki klass­ískir hægri eða vinstri flokkar komust áfram að þessu sinni. François Fillon fram­bjóð­andi Repúblik­ana hlaut 19,9% og Benoit Hamon frá Sós­í­alista­flokknum aðeins 6,3%. Annað óvænt er að hinn vinstri­s­inn­aði Jean-Luc Melenchan fékk aðeins 0,3% minna en Fillon, 19,6% og hefði þurft minna en 2% í við­bót til að ýta Le Pen út.

[links]Þótt skoð­ana­kann­anir hefðu hvorki séð Brexit né kosn­ingu Donald Trump fyrir þá höfðu margar þeirra nokkurn veg­inn séð fyrir úrslitin í fyrri umferð frönsku for­seta­kosn­ing­anna. Hvorki var búist við því í könn­unum til vinstri og hægri að Hamon eða Fillon myndu vinna. Því má segja að kann­anir hafi aðeins náð að rétta hlut sinn hvað trú­verð­ug­leika varðar.

Margir tala um „Big bang“ í frönskum stjórn­málum í Frakk­landi. Á örfáum mán­uðum hafa Frakkar hafnað tveimur for­setum, Nicolas Sarkozy í for­kosn­ingum og François Hollande í skoð­ana­könn­unum, sem olli því að hann bauð sig ekki fram. Einnig þremur fyrrum for­sæt­is­ráð­herrum, Alain Juppé til hægri, Manuel Valls sem sagði af sér og ætl­aði sér að vinna hjá Sós­í­alistum og svo á sunnu­dag François Fillon, for­sæt­is­ráð­herra Sarkozys.

Macron sem á end­anum varð efstur, og nær allir stjórn­mála­leið­togar hafa lýst yfir stuðn­ingi við, fyrir seinni umferð­ina, er aðeins 39 ára og hefur aldrei boðið sig fram í kosn­ingum fyrr en nú. Hann kemur úr hinum fræga ENA stjórn­sýslu­skóla, þaðan hafa margir sem ná langt í opin­beru starfi komið og reyndar oft stjórn­mála­el­ítan. Hann hætti hins vegar í opin­bera geir­anum og fór að vinna hjá einka­fyr­ir­tæki, í hinum fræga Rochild-banka. Seinna varð hann ráð­gjafi Hollande for­seta í Elysée og efna­hags­ráð­herra hans í tvö ár. Það er ein­stakt í franskri stjórn­mála­sögu að fram­bjóð­andi hafi ekki verið þing­maður eða ráð­herra árum saman og að hann komi ekki heldur úr stjórn­mála­flokki. Fyrir aðeins þremur árum vissi eng­inn hver Emmanuel Macron var.

Það að Marine Le Pen komst í seinni umferð­ina var nokkuð fyr­ir­sjá­an­legt. Skoð­ana­kann­anir höfðu sýnt það síð­ustu þrjú ár. Í hér­að­stjórna­kosn­ing­unum í Frakk­landi 2015 varð Þjóð­ar­fylk­ingin efst og hefur síðan þá verið stærsti flokkur lands­ins. Margir höfðu von­ast eftir því að Le Pen kæm­ist ekki áfram því það yrði blettur á ímynd lands­ins að öfga hægrifram­bjóð­andi hefði raun­veru­lega mögu­leika á að vinna kosn­ing­arnar. Góðu frétt­irnar eru þær að Marine Le Pen hefur tapað sex pró­sentum á tveimur mán­uðum því hún var lang efst lengi vel og það eru þó jákvæð skila­boð. Samkvæmt könnun sem gerð var á sunnu­dags­kvöld mun Macron sigra með 62 pró­sentum en Le Pen fá 38 pró­sent í seinni umferð­inni.

Fyr­ir­vara verður þó að hafa á öllu þessu því að nú hefst ný kosn­inga­bar­átta sem stendur í tvær vikur og margt getur breyst þó vissu­lega hafi Marine Le Pen ekki mik­inn vara­sjóð í atkvæðum. Samkvæmt því sem kjós­endur segja skipt­ast atkvæði Fillons í þrennt, einn þriðji til Le Pen, helm­ingur til Macrons og 20 pró­sent segj­ast ætla að skila auðu í annarri umferð. Sós­í­alistar munu fylkja sér bak við Macron og um 60 pró­sent þeirra sem kusu Melanchon. Því ætti Le Pen ekki að eiga mögu­leika á að vinna.

En það er EN í þess­ari grein­ingu. Kosn­inga­þátt­taka í fyrri umferð­inni var 77 pró­sent og því voru 23 pró­sent sem sátu heima. Ef stór hluti þeirra sem ekki kusu á sunnu­dag kjósa sunnu­dag­inn 7. maí og þá Le Pen, getur jafn­vægið breyst. Einnig verða þeir sem kusu í fyrri umferð­inni að skila sér og kjósa, sem auð­vitað er ekki öruggt. Svo má ekki gleyma því sem allir ótt­ast eftir skotárás­ina á Champs-Elysée-breið­göt­unni á fimmtu­dag og hand­töku mann­anna tveggja í Marseille á mánu­dag í síð­ustu viku sem voru að skipu­leggja hryðju­verka­ársás, að ef eitt­hvað slíkt myndi ger­ast að nýju er óvíst hvernig almenn­ingur mundi bregð­ast við. Marine Le Pen hefur árum saman spilað inn á hræðslu fólks við inn­flytj­endur og nú sér­stak­lega múslima eftir þær árásir sem landið hefur upp­lifað síðan í jan­úar 2015. Emmanuel Macron hefur verið gagn­rýndur fyrir að hafa ekki nógu harða stefnu í örygg­is­málum og það gæti unnið gegn honum, ger­ist eitt­hvað óvænt sem eng­inn auð­vitað óskar.

Verð­bréfa­mark­aðir og Evr­ópu­sam­bands­lönd eru ánægð með úrslitin á sunnu­dag. Markaðir voru í upp­sveiflu við opnun í morgun, í Frakk­landi hækk­uðu verð­bréf um 4,5%. Stjórn­mála­menn í Þýska­landi og ýmsir yfir­menn hjá Evr­ópu­sam­band­inu í Brussel eru ánægðir með að eini fram­bjóð­and­inn sem talar með jákvæðum hætti um Evr­ópu­sam­vinnu og vill auka hana, skuli hafa orðið efstur og eigi góða mögu­leika á að sigra. Bæði Sigmar Gabriel og Angela Merkel hafa lýst yfir stuð­ingi við Macron.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár