Styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla samþykkt á Alþingi

Alþingi afgreiddi í dag frum­varp mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla. Þorri þeirra 400 millj­óna króna sem skipt verður á milli fjöl­miðla fer til þriggja stórra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Frumvarp Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, um styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla, var sam­þykkt á Alþingi í dag. Alls greiddu 34 þing­menn atkvæði með frum­varp­inu, en ell­efu á móti og tólf þing­menn greiddu ekki atkvæði.

Þeir þing­menn sem greiddu atkvæði gegn frum­varp­inu voru allir þing­menn Mið­flokks­ins auk Sigríðar Á. Andersen, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks og Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar úr Flokki fólks­ins. Þrír stjórn­ar­liðar, allir úr Sjálf­stæð­is­flokki, sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una. Þeir eru Brynjar Níelsson, Jón Gunn­ars­son og Óli Björn Kárason. Þingmenn Sam­fylk­ingar voru einu stjórn­ar­and­stæð­ing­ar­innar sem studdu frum­varpið og gerðu það ásamt öllum við­stöddum þing­mönnum Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks og ell­efu þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks.

Í frum­varp­inu felst að 400 millj­ónum króna verður skipt á milli þeirra einka­reknu fjöl­miðla sem upp­fylla skil­yrði fyrir styrkja­greiðsl­unni.

[adspot]Upp­haf­lega stóð til að styrkirnir yrðu að hámarki 50 millj­ónir króna til hvers fjöl­mið­ils, en frum­varpið átti í erf­ið­leikum að ná í gengum þing­flokk Sjálf­stæð­is­flokks í því formi. Því var þakið hækkað upp í 100 millj­ónir króna sem þýðir að þrjú stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins: Árvakur, Torg og Sýn, fá rúm­lega 100 millj­ónum krónum meira en í fyrri útgáfu og um 20 minni fjöl­miðlar fyrir vikið um 100 millj­ónum krónum minna.

Styrkja­kerfið verður við lýði út næsta ár og fjöl­miðlar verða að sækja um styrki fyrir 1. ágúst næst­kom­andi.

[links]Frum­varpið byggir á nefnd­ar­á­liti meiri­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, sem var birt fyrr í þessum mán­uði.

Samkvæmt álit­inu gerði meiri­hlut­inn nokkrar breyt­ingar á frum­varp­inu. Þar ber hæst að sett verði þrengri skil­yrði um til að telj­ast stuðn­ings­hæfur fjöl­mið­ill.

Sú þreng­ing felur í ann­ars vegar í sér að lág­marks­út­gáfu­tíðni prent­mið­ils þar að vera að minnsta kosti 20 útgáfur á ári og aðrir miðlar sem hljóti styrk þurfi að „miðla nýjum fréttum, frétta­tengdu efni eða umfjöllun um sam­fé­lags­leg mál­efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.“

Í frum­varp­inu sem Lilja lagði upp­haf­lega fram í des­em­ber stóð að launa- og verk­taka­kostn­aður allra sem öfl­uðu og miðl­uðu efni væri stuðn­ings­hæfur. Meiri­hlut­inn hefur lagt til að þessi skil­yrði verði þrengd veru­lega og að þeir miðlar einir verði stuðn­ings­hæfir sem afli og miðli „fréttum, frétta­tengdu efni og umfjöllun um sam­fé­lags­leg mál­efni.“

Kjarninn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir skil­yrði frum­varps­ins um styrkja­greiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár