Fatboy Slim á Sónar Reykjavík 2017

Breski plötu­snúð­ur­inn og tón­list­ar­mað­ur­inn Norman Cook, sem flestir þekkja sem Fatboy Slim, kom fram á Sónar Reykja­vík í gær­kvöldi.

Íslenska söngkonan Glowie var fyrsta atriði hátíðarinnar á fimmtudag. Glowie hefur notið nokkurrar hylli, komist nokkrum sinnum í efsta sæti vinsældarlista og verið tilnefnd til verðlauna fyrir tónlist sína.
Íslenska söng­konan Glowie var fyrsta atriði hátíð­ar­innar á fimmtu­dag. Glowie hefur notið nokk­urrar hylli, kom­ist nokkrum sinnum í efsta sæti vin­sæld­ar­lista og verið til­nefnd til verð­launa fyrir tón­list sína.
Íslenska tölvupönkbandið Hatari kom skemmtilega á óvart með samrýmdri framkomu sem rímaði furðu vel við hráa tónlist og ljóðaslamm. „Rammstein mætir HAM“ heyrðist á göngum Hörpu að tónleikunum loknum.
Íslenska tölvupönk­bandið Hatari kom skemmti­lega á óvart með sam­rým­dri fram­komu sem rím­aði furðu vel við hráa tón­list og ljóða­slamm. „Ramm­stein mætir HAM“ heyrð­ist á göngum Hörpu að tón­leik­unum loknum.
Bandaríska hip-hop hljómsveitin De La Soul hitaði upp fyrir Fatboy Slim í stærsta sal hátíðarinnar á laugardag. Bandið er þekkt fyrir stemningu á tónleikum sínum þar sem áhorfendur eru látnir taka virkan þátt í stuðinu. Enginn var svikinn um það.
Banda­ríska hip-hop hljóm­sveitin De La Soul hit­aði upp fyrir Fatboy Slim í stærsta sal hátíð­ar­innar á laug­ar­dag. Bandið er þekkt fyrir stemn­ingu á tón­leikum sínum þar sem áhorf­endur eru látnir taka virkan þátt í stuð­inu. Enginn var svik­inn um það.
David Jude Jolicoeur, einn þeirra þriggja sem skipa De La Soul, stjórnaði austari helmingi salsins á meðan Kelvin Mercer stjórnaði hinum helmingnum. Einhverjir stærstu kórar sem sungið hafa í Hörpu kepptust svo um að yfirgnæfa hvorn annan.
David Jude Jolicoeur, einn þeirra þriggja sem skipa De La Soul, stjórn­aði aust­ari helm­ingi sals­ins á meðan Kelvin Mercer stjórn­aði hinum helm­ingnum. Ein­hverjir stærstu kórar sem sungið hafa í Hörpu keppt­ust svo um að yfir­gnæfa hvorn annan.
Norman Cook er löngu orðinn heimsþekktur undir listamannsnafninu Fatboy Slim. Hann var síðasta atriðið í stærsta sal hátíðarinnar í gærkvöldi.
Norman Cook er löngu orð­inn heims­þekktur undir lista­manns­nafn­inu Fatboy Slim. Hann var síð­asta atriðið í stærsta sal hátíð­ar­innar í gær­kvöldi.
Þeir áhorfendur sem lögðu á sig að troða sér fremst skemmtu sér konunglega á tónleikum Fatboy Slim
Þeir áhorf­endur sem lögðu á sig að troða sér fremst skemmtu sér kon­ung­lega á tón­leikum Fatboy Slim
Fatboy Slim var í góðu stuði á tónleikunum, hoppaði og hljóp um sviðið með heyrnatólin um hálsinn og ók sér á DJ-borðinu í takt við tónlistina.
Fatboy Slim var í góðu stuði á tón­leik­unum, hopp­aði og hljóp um sviðið með heyrnatólin um háls­inn og ók sér á DJ-borð­inu í takt við tón­list­ina.
Það var sannkölluð rave-stemning í bílastæðahúsi Hörpu en þar var eitt svið hátíðarinnar. Búið var að girða af hluta bílakjallarans og stilla þar upp ljósum í kringum dansgólf.
Það var sann­kölluð rave-stemn­ing í bíla­stæða­húsi Hörpu en þar var eitt svið hátíð­ar­innar. Búið var að girða af hluta bíla­kjallar­ans og stilla þar upp ljósum í kringum dans­gólf.
Kanadíski plötusnúðurinn B.Traits lék þunga – en taktfasta – tekknótóna í bílakjallaranum á laugardagskvöldinu.
Kanadíski plötu­snúð­ur­inn B.Traits lék þunga – en takt­fasta – tekknótóna í bíla­kjall­ar­anum á laug­ar­dags­kvöld­inu.
Mynd: Birgir Þór
Mynd: Birgir Þór
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár