Forsætisráðherra bjartsýnn en forsetinn vill ekki tjá sig

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur sent Donald Trump heilla­óskir með for­seta­emb­ættið, en Trump hefur verið kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna. Þetta kemur fram í við­tali við for­sæt­is­ráð­herra á RÚV. Kjör Trump veldur honum engum áhyggjum.

For­sæt­is­ráð­herra segir að nið­ur­stöður kosn­ing­anna hafi komið sér nokkuð á óvart. „Það er auð­vitað þannig að menn geta haft skiptar skoð­anir á ein­stökum per­sónum, en ég á von á því að sam­skipti land­anna verði jafn góð eins og verið hafa og verði það áfram, og hef engar vænt­ingar til ann­ars.“ Hann sagði einnit að því væri ekki að neita að ýmsar yfir­lýs­ingar Trump hafi verið sér­stakar og vakið undrun, en hann vænti þess að þegar menn setj­ist í emb­ætti sé alvaran meiri.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, hefur hins vegar ekki viljað tjá sig um kjör Trump enn sem komið er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár