Falskar undirskriftir á meðmælendalista Miðflokksins tilkynntar til lögreglu

Í til­kynn­ingu frá yfir­kjör­stjórn í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur kemur fram að vísað hafi verið í dag til lög­reglu fölskum und­ir­skriftum á með­mæl­enda­listum tveggja fram­boða í borg­inni.

Sigmundur Davíð Guðlaugsson og Gunnar Bragi Sveinsson.
Sig­mundur Davíð Guð­laugs­son og Gunnar Bragi Sveins­son. Mynd: Miðflokkurinn

Við yf­ir­ferð með­mæl­endal­ista í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­um norður og suður fund­ust fals­aðar und­ir­skrift­ir hjá tveim­ur fram­boðum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er um fram­boðs­lista Mið­flokks­ins að ræða í öðru til­fell­inu en eins og fram hefur komið í fréttum Íslensku þjóð­fylk­ing­una í hinu. Um er að ræða afmarkað til­vik á einu með­mæl­enda­blaði.

Yfir­kjör­stjórnir í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur vís­uðu í dag til lög­reglu fölskum und­ir­skriftum á með­mæl­enda­listum tveggja fram­boða í borg­inni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá kjör­stjórn­unum. Ekki kemur fram í til­kynn­ing­unni hvaða flokkar það eru, en áður hefur verið greint frá því að annar þeirra sé Íslenska þjóð­fylk­ingin, sem dró af þessum sökum alla fram­boðs­lista sína til baka um helg­ina.

Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi dró Íslenska þjóð­fylk­ingin lista sinn til baka áður en farið var að hringja í fólk á með­mæl­enda­list­anum.

Hitt málið, sem kom upp í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, er afmarkað, eins og það er orðað í til­kynn­ing­unni, og fram­boðið var úrskurðað gilt þrátt fyrir þær fölsku und­ir­skriftir. Samkvæmt frétt RÚV segir Erla S. Árna­dóttir, for­maður yfir­kjör­stjórn­ar­innar þar, að mik­ill stigs­munur sé á því og máli Þjóð­fylk­ing­ar­innar.

Ástríður Gríms­dóttir, for­maður yfir­kjör­stjórnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, segir að kjör­stjórnin muni hitt­ast á fundi klukkan sex í dag og meðal ann­ars ræða hvort vísa beri hinum fölsku und­ir­skriftum til lög­reglu. Þar sé Íslenska þjóð­fylk­ingin ekki und­an­skilin þótt kjör­stjórnin hafi ekki lagst í vinnu við að sann­reyna að und­ir­skriftir þeirra séu falskar. Þetta kemur fram í fyrr­nefndri frétt RÚV.

Leið­rétt­ing: Í upp­haf­legri frétt kom fram að athuga­semdir hefðu verið gerðar við með­mæl­enda­lista Bjartrar fram­tíðar og Alþýðu­fylk­ing­ar­innar, og var vitnað til fréttar RÚV í því sam­hengi, en þetta er ekki rétt. Beðist er vel­virð­ingar á þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár