Brjálað að bræðraþjóðir berjist

Eftir að allt fór í hund og kött í Úkraínu flýr fólk með hunda sína og ketti úr landi undan sókn Rússa. Fólk er flutt unnvörpum frá landamæra­stöðvum og inn í önnur Evrópu­lönd þar sem straumurinn klofnar, fólk ýmist leitar húsa­skjóls eða leggur í lengri ferðalög.

„Maðurinn minn getur ekki einu sinni drepið flugu. Nú er hann kominn með byssu, til að drepa Rússa. Hann var undan­skilin herskyldu, var í háskóla­námi, en er nú orðin hermaður,“ sagði hin úkraínska Anna við ljós­myndara þar sem hún hélt á skjálf­andi læðu á lestarstöðinn í Kosice í Slóvakíu á leið til Þýska­lands. „Ég hef ekki heyrt í honum í viku, og... hann er hálfur Rússi. Við erum bræðra­þjóðir, vina­þjóðir, það gerir þetta stríð svo brjálað.“

Anna sagðist vera heppinn, þau væru barnlaus, svo það væri lítið mál að taka heimilis­köttinn með sem skyldi ekkert í hvað væri að gerast, væri mjög hrædd, enda innikisa. „En það eru fjöl­skyldur, sem ég þekki sem höfðu ekki möguleika að taka hundinn eða köttinn með á flótta, það var bara eitt í stöðunni... þú getur ekki ímyndað þér hve sárt það var, sérstak­lega fyrir börnin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár