Trump átti annan fund með Pútín, án þess að segja frá því

Pútín og Trump áttu kvöld­verð­ar­fund í einka­sam­kvæmi í Hamborg fyrir rúmri viku. Banda­ríkin eiga engin gögn um fund­inn.

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hittust líka á óformlegum fundi í Hamborg, að því er kemur fram í The New York Times.
Vladimir Pútín, for­seti Rúss­lands, og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hitt­ust líka á óform­legum fundi í Hamborg, að því er kemur fram í The New York Times. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, áttu annan og mun per­sónu­legri fund í Hamborg á dög­unum þegar G20-ráð­stefnan fór þar fram. Banda­rísk stjórn­völd eiga engar skrár um fund­inn og þar til í kvöld, hafði ekki verið sagt frá honum.

Banda­ríska dag­blaðið The New York Times greinir frá þessu á vef sínum.

For­set­arnir tveir sátu tveir saman til borðs í einka­kvöld­verði G20-leið­tog­anna á ráð­stefn­unni í um klukku­stund. Fyrr sama dag höfðu Trump og Pútín fundað saman opin­ber­lega í rúm­lega tvær klukku­stundir.

Opinberi fund­ur­inn hafði aðeins verið skipu­lagður í 30 mín­útur en þar ræddu Pútín og Trump, ásamt utan­rík­is­ráð­herrum sínum, um meintar til­raunir stjórn­valda í Kreml til að hafa áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum síð­asta vetur, auk ann­arra mála.

Pútín er sagður hafa þver­tekið fyrir að hafa komið með nokkrum hætti að svindli í banda­rísku kosn­ing­unum.

Samkvæmt heim­ildum The New York Times sætti návígi Trumps og Pútíns furðu meðal ann­ara leið­toga sem sóttu sama kvöld­verð­ar­boð. Leið­tog­arnir eru sagðir hafa haft orð á því í einka­sam­tölum hversu furðu­legt það væri að for­seti Banda­ríkj­anna myndi láta svo mikið bera á sam­tali sínu við starfs­bróður sinn frá Rúss­landi.

Haft er eftir Ian Bremmer, for­seta Eurasia Group, að hann hafi heyrt það beint frá við­stöddum að „öllum hafi fund­ist þetta mjög skrítið, að hér væri for­seti Banda­ríkj­anna, sem vill greini­lega sýna að hann eigi í betri sam­skiptum við Pútín en nokkur annar, eða þá að honum sé bara alveg sama“.

Bremmer segir aðra leið­toga í kvöld­verð­ar­boð­inu hafa verið brugðið í brún og verið óviss um hvað þetta ætti að þýða.

Hvíta húsið hefur ekki svarað fyr­ir­spurnum The New York Times um hvað sam­tal Trumps og Pútíns fól í sér. Einn yfir­maður í Hvíta hús­inu stað­festi þó að það hefði átt sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár