Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vilja ekki upplýsa um hver keypti hlut í Stoðum af Landsbankanum

Enginn hlut­að­eig­andi vill segja hvaða fjár­festar keyptu hlut Lands­bank­ans í Stoðum á 3,3 millj­arða króna í des­em­ber. Stoðir eru umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag lands­ins um þessar mundir og er meðal ann­ars á meðal stærstu eig­enda Arion banka og Kviku banka.

Hvorki Lands­bank­inn né Stoðir telja sig geta veitt upp­lýs­ingar um hvaða fjár­festar keyptu 12,1 pró­sent hlut bank­ans í Stoðum í des­em­ber síð­ast­liðnum fyrir 3,3 millj­arða króna.

Þegar greint var frá söl­unni á heima­síðu Lands­bank­ans, þann 10. des­em­ber 2020, kom fram að bank­inn hefði tekið til­boði sem Fossar mark­aðir hefðu gert fyrir hönd fjár­festa. Ekki var til­greint um hvaða fjár­festa væri að ræða. Þar sem Stoðir eru óskráð félag, og til­kynn­ing­ar­skylda þess því verið ein­skorðuð við hlut­hafa­fundi og birt­ingu árs- og árs­hluta­reikn­inga, er upp­færður hlut­haf­alisti ekki aðgengi­legur á heima­síðu félags­ins eins og er hjá skráðum félögum. Enn fremur hefur gögnum um breyt­ingu á eig­enda­hópi Stoða ekki verið skilað inn til fyr­ir­tækja­skrár og því ekki hægt að sjá hverjir keyptu í slíkum gögnum.

Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum frá Lands­bank­anum, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, um hverjir hefðu keypt eign­ar­hlut hans. Í svari upp­lýs­inga­full­trúa bank­ans sagði að Lands­bank­inn gæti ekki veitt umbeðnar upp­lýs­ingar. Fyr­ir­spurn­inni yrði að beina til Stoða eða Fossa mark­aða, sem höfðu komið fram fyrir hönd kaup­enda.

Þegar Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um hverjir hefðu keypt hlut­inn í Stoðum hjá félag­inu sjálfu feng­ust þau svör að það væri ekki félags­ins að veita upp­lýs­ingar um við­skipti hlut­hafa með bréf í því, enda félagið ein­ungis and­lag við­skipt­anna.

Fossar mark­aðir vildu sömu­leiðis ekki veita upp­lýs­ingar um hvern kaup­and­inn hafi verið. Fyr­ir­tækið seg­ist vera bundið þagn­ar­skyldu gagn­vart við­skipta­vinum sínum.

Var á meðal kröfuhafa

Ástæða þess að rík­is­banki átti stóran hlut í fjár­fest­inga­fé­lagi má rekja aftur til banka­hruns­ins. Stoðir, sem hétu einu sinni FL Group, var einn umsvifa­mesti fjár­festir­inn á upp­gangs­ár­unum sem leiddu til þess. Félagið var meðal ann­ars stærsti eig­andi Glitni banka.

Það fór í greiðslu­stöðvun þegar Glitnir fór á haus­inn og kröfu­hafar þess tóku félagið yfir. Á meðal þeirra voru þrotabú Glitnis, síðar Glitnir Holdco, og nýi Lands­bank­inn. Í næstum ára­tug sner­ist rekstur Stoða aðal­lega um að sinna eft­ir­stand­andi eignum.

Vorið 2017 keypti svo hópur ráð­andi hlut í Stoð­u­m. Sá eign­ar­hlutur er nú inni í félag­inu S121 ehf. stærsta eig­anda Stoða.

Stærstu end­an­legu eig­endur S121 hafa margir hverjir tengsl við gamla FL Group, annað hvort störf­uðu þar eða sátu í stjórn. Má þar nefna félög tengd Magnúsi Ármann, sem var hlut­hafi í FL Group og sat í stjórn félags­ins, Örvari Kjærne­sted, sem var yfir starf­semi FL Group London fyrir hrun, og Bernhard Bogasyni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs FL Group. Þá á Einar Örn Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Skelj­ungs, líka stóran hlut.

Auk þess á eig­in­kona Jóns Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group/Stoða og núver­andi stjórn­ar­for­manns Stoða, og fjöl­skylda hennar stóran hlut. Með Jóni í stjórn­inni sitja Sig­­ur­jón Páls­­son og Örvar Kjærne­sted. Fram­­kvæmda­­stjóri félags­­ins er Júl­­íus Þor­finns­­son.

Þegar þessi sala átti sér stað áttu Stoðir ein­ungis eina eign af viti sem átti eftir að vinna úr, hlut í hol­lenska drykkj­­ar­vöru­fram­­leið­and­­anum Refresco. Sá hlutur var seldur í mars 2018 eftir yfir­tökutil­boð og eftir sátu um 18 millj­arðar króna í Stoð­um. Þeir fjár­munir hafa verið not­aðir í fjár­fest­ingar á und­an­förnum miss­er­um.

Glitnir Holdco hefur aldrei viljað veita upp­lýs­ingar um söl­una. Á meðal þess sem Kjarninn hefur spurt félagið að vegna hennar er á hvað hlut­ur­inn hafi verið seldur.

Stór eigandi í tveimur bönkum

Stoðir er einn umsvifa­mesti einka­fjár­festir­inn á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði í dag. Félagið er stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í Arion banka með 4,99 pró­sent eign­ar­hlut. Eigið fé Arion banka var 192 millj­arðar króna í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Það er líka stærsti eig­andi trygg­inga­fé­lags­ins TM, með 9,9 pró­sent eign­ar­hlut. Í lok síð­asta árs bættu Stoðir svo veru­lega við sig í Kviku banka, og eru nú stærsti ein­staki eig­andi hans með 8,24 pró­sent eign­ar­hlut. Fyrir dyrum er að sam­eina TM, fjár­mögn­un­ar­fé­lagið Lykil sem TM á, og Kviku á þessu ári.

Jón Sigurðsson er stjórnarformaður Stoða.
Jón Sig­urðs­son er stjórn­ar­for­maður Stoða.

Í grunn­s­viðs­mynd mark­aðsvið­skipta Lands­bank­ans sem send var út á valda aðila seint í des­em­ber kom fram að sam­eig­in­legt félag væri metið á tæp­lega 82 millj­arða króna sam­kvæmt verð­mati deild­ar­innar.

Stoðir eru líka stærsti hlut­haf­inn í Símanum, þar sem félagið heldur á 14,86 pró­sent eign­ar­hlut.

Eignir Stoða voru metnar á 24,7 millj­­arða króna í lok júní síð­­ast­lið­ins og höfðu rýrnað um tæpan hálfan millj­­arð króna frá ára­­mót­­um. Eignir Stoða skipt­­ast að upp­i­­­stöðu í fjár­­­fest­ingar upp á 19,3 millj­­arða króna, reiðufé upp á 3,3 millj­­arða króna og veitt lán upp á rúma tvo millj­­arða króna.

Félagið skuldar hins vegar nán­­ast ekk­ert og eigið fé þess því jafnt eign­un­um, eða 24,7 millj­­arðar króna. Þetta kom fram í árs­hluta­­reikn­ingi Stoða sem birtur var í sept­em­ber.

Vænta má þess að virði eigna félags­ins hafi hækkað umtals­vert á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs. Þau skráðu félög sem Stoðir eiga hlut í eru enda á meðal þeirra sem hækk­uðu mest á árinu 2020. Hluta­bréf í Kviku hækk­uðu um 63,5 pró­sent, Í TM um 53,6 pró­sent og í Símanum um 49,8 pró­sent.

Örvar og Einar Örn sitja báðir í stjórn TM fyrir hönd Stoða. Jón Sig­urðs­son er stjórn­ar­for­maður Símans.

Bankar út úr Stoðum

Í maí 2019 fór fram hluta­fjár­aukn­ing í Stoðum. Í henni jók S121 eign­ar­hlut sinn í félag­inu í 64,6 pró­sent. Greitt var fyrir þá hluta­fjár­aukn­ingu með hluta­bréfum eig­enda S121 í TM. Arion banki átti á þessum tíma líka stóran hlut í Stoðum og tók þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni. Eftir það átti bank­inn 19 pró­sent hlut. Þann hlut seldi Arion banki rúmum mán­uði síðar.

Aðrir stórir eig­endur Stoða eftir þau við­skipti voru Lands­bank­inn, með 12,1 pró­sent eign­ar­hlut, og tveir sjóðir í stýr­ingu hjá Stefni, sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Arion banka.

Þann 23. nóv­em­ber aug­lýsti Lands­bank­inn svo 12,1 pró­sent hlut sinn í Stoðum til sölu, að öllu leyti eða hluta. Til­boðs­frestur var til 8. des­em­ber.

Tveimur dögum eftir að til­boðs­frest­ur­inn rann út var til­kynnt að alls 13 fjár­festar hefðu tekið þátt í sölu­ferl­inu. Lands­bank­inn hafi ákveðið að taka til­boði Fossa mark­aða, fyrir hönd hóps fjár­festa, sem greiddi 3,3 millj­arða króna fyrir eign­ar­hlut­inn. Miðað við það er virði alls hluta­fjár í Stoðum 27,3 millj­arðar króna.

Hver kaup­and­inn var verður ekki opin­berað fyrr en Stoðir skila inn árs­reikn­ingi sínum fyrir árið 2020. Samkvæmt lögum hefur félagið út ágúst­mánuð til að gera það en Stoðir birtu árs­reikn­ing sinn fyrir 2019 á heima­síðu sinni 21. febr­úar í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár