Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels

Kanadíski rit­höf­und­ur­inn Anne Carson fær bók­mennta­verð­laun Nóbels. Tilkynnt var um ákvörðun nóbels­nefnd­ar­innar í dag. Anne hefur haft annan fót­inn á Íslandi og fékk íslenskan rík­is­borg­ara­rétt árið 2022.

Verðlaunahafi
Verð­launa­hafi Þegar Carson var til­kynnt sím­leiðis um að hún fengi Nóbels­verð­launin sagð­ist hún væri á Íslandi, „þar sem hún hlust­aði á vind­inn“. Mynd: Golli

Rit­höf­und­ur­inn Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels. Carson er 76 ára og upp­runa­lega frá Kanda en hefur íslenska rík­is­borg­ara­rétt. Verk hennar fara gjarnan yfir mörk ljóða, ess­eyja og skáld­sagna. Hún sækir efni­við í klass­ískar bók­menntir og goða­fræði en tengir hann sam­tím­anum og við­fangs­efnum á borð við ást, þrá og missi.

Carson hlaut verð­launin „fyrir djarft og frum­legt höf­und­ar­verk sem hefur, í leik­andi sam­tali við hina klass­ísku hefð, skapað ný form í sam­tíma­bók­menntum“, að því er sænska aka­dem­ían sagði.

Ingrid Carlberg, rit­ari sænsku Nóbels­nefnd­ar­innar, sagð­ist hafa rætt stutt­lega við Carson. „Þetta kom henni á óvart, en hún var mjög glöð. Ég heyrði það á rödd hennar,“ sagði hún. „Við höfðum ekki mik­inn tíma til að tala saman. Það eina sem hún hafði tíma til að segja mér var að hún væri nú stödd á Íslandi, þar sem hún hlust­aði á vind­inn.“

Nóbelsaka­dem­ían sagði í til­kynn­ingu sinni að nær allt …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár