Sýnilegar sprungur hjá ósamstíga ríkisstjórn

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar fékk enga hveiti­brauðs­daga. Þrátt fyrir að engin stór þing­mál séu á dag­skrá á yfir­stand­andi þingi þá hafa litlu málin, og dag­legt amstur, dugað til að sýna hversu ósam­stíga flokk­arnir sem hana mynda eru á mörgum sviðum.

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur setið í einn mánuð og fimm daga. Stuðn­ingur við hana mælist sá minnsti sem ný rík­is­stjórn hefur nokkru sinni haft á fyrstu starfs­dögum sínum frá því að stuðn­ings­mæl­ingar hófust. Einungis 32,6 pró­sent sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina í nýj­ustu könnun MMR. Sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna þriggja sem hana mynda: Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, mælist litlu hærra, eða 34,7 pró­sent. Slíkt fylgi myndi lík­ast til tryggja þeim sam­an­lagðan þing­manna­fjölda upp á 24 þing­menn, en rík­is­stjórnin hefur í dag minnsta mögu­lega meiri­hluta, 32 þing­menn.

Upp­rifjun á ofan­greindum tölum er auð­vitað sam­kvæm­is­leikur, enda mjög langt í næstu kosn­ingar komi ekk­ert upp á. En það er ekki bara sam­fé­lags­lega með­byr­inn sem rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar skortir. Hún virð­ist líka vera án sam­stöðu.

Skýrsluskil

Stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórn­ar­innar var sátt­máli mála­miðl­ana. Hún hefur yfir sér þá áru að vera ekki draumarík­is­stjórn neins, heldur nokk­urs konar við­bragð við þeirri stjórn­ar­kreppu sem upp var komin í land­inu eftir októ­ber­kosn­ing­arnar. Viðreisn og Björt fram­tíð gáfu eftir stóru kerf­is­breyt­ing­ar­lof­orðin í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Evr­ópu­sam­bands­að­ild­ar­við­ræður gegn því að fá í gegn umhverf­is­á­herslur, ýmis félags­leg rétt­inda­mál og ráð­herra­stóla í ráðu­neytum sem gætu siglt í gegn breyt­ingum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sætti sig við þessa stöðu gegn því að verja stjórn­kerfið og stjórn­ar­skránna fyrir stór­tækum breyt­ingum.

Það má þó segja að rík­is­stjórnin hafi ekki enn verið full­mynduð þegar vand­ræði hennar hófust. Birting á skýrslu um aflands­fé­laga­eignir Íslend­inga, sem hafði verið til­búin í meira en þrjá mán­uði, nokkrum dögum áður en gengið var frá myndun stjórn­ar­innar hristi veru­lega upp í við­ræð­unum. Viðreisn og Björt fram­tíð höfðu keyrt að hluta sína kosn­inga­bar­áttu á sið­væð­ingu, gegn­sæi og breyttum vinnu­brögðum. Í grunn­stefnu Við­reisnar segir t.d.: „Opin, upp­lýst og mál­efna­leg umræða er nauð­syn­leg til að unnt sé að taka réttar ákvarð­an­ir. Greiður aðgangur að upp­lýs­ingum er for­senda þekk­ing­ar. Upp­lýs­inga­skyldu opin­berra aðila gagn­vart almenn­ingi ber að efla.“ Í stefnu Bjartrar fram­tíðar seg­ir: „Tölum sam­an, segjum satt. [...]­Upp­lýs­ingar eru gull. Björt fram­tíð þorir að leiða hin stærstu og erf­ið­ustu deilu­mál til lykta með gögn­um, rann­sókn­um, opnu sam­tali og lýð­ræð­is­legum aðferð­u­m.“

Málið olli raunar svo miklum titr­ingi að það var helsta ástæða þess að rúmur fjórð­ungur stjórnar Bjartrar fram­tíðar greiddi atkvæði á móti stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og að þing­flokkur Við­reisnar brá á það ráð, dag­inn áður en að rík­is­stjórnin var form­lega mynduð, að fá Bjarna Bene­dikts­son á síma­fund til að útskýra mál sitt. Slíkt er for­dæma­laust.

Að honum loknum sagði einn leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar og for­maður Við­reisnar, Benedikt Jóhann­es­son, að „miðað við hans [Bjarna] frá­sögn hafi verið um að ræða klaufa­skap og slaka dóm­greind en ásetn­ing um felu­leik.“

Skömmu síðar var önnur skýrsla, nú um þjóð­hags­leg áhrif leið­rétt­ing­ar­innar, birt af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Hún hafði líka verið til­búin fyrir kosn­ingar en ákveðið var að birta hana ekki. Það mál fór ekki síður illa í marga innan Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Framtíð Reykjavíkurflugvallar

Sama dag og rík­is­stjórnin tók við voru stjórn­ar­liðar komnir í hár saman vegna fram­tíðar Reykja­vík­ur­flug­vallar. Jón Gunn­ars­son, ráð­herra sam­göngu­mála, sagði þá við Vísi að eng­inn önnur lausn væri í stöð­unni en að Reykja­vík­ur­flug­völlur yrði áfram í Vatns­mýr­inni. Daginn eftir end­ur­tók hann þessa skoðun og úti­lok­aði ekki inn­grip í skipu­lags­vald Reykja­vík­ur­borgar í mál­inu. Nokkrum dögum síðar steig Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fram að sagði að flug­völl­ur­inn ætti að vera áfram í Vatns­mýr­inni.

Jón Gunnarsson er ráðherra samgöngumála.
Jón Gunn­ars­son er ráð­herra sam­göngu­mála.

Ráð­herrar Við­reisnar og Bjartrar eru hins vegar á þeirri skoðun að skipu­lags­vald yfir Vatns­mýr­inni, og þar með Reykja­vík­ur­flug­velli, eigi að liggja hjá Reykja­vík­ur­borg. Auk þess er Björt fram­tíð hluti af meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík­ur­borg sem hefur mjög skýra stefnu um að flug­völl­ur­inn eigi ekki að vera í Vatns­mýri til fram­tíðar.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar kom fram að rík­is­stjórnin muni „beita sér fyrir lausn á ára­tuga­deilu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar með því að stofna til form­legra við­ræðna sam­göngu­yf­ir­valda, heil­brigð­is­yf­ir­valda, Reykja­vík­ur­borg­ar, ann­arra sveit­ar­fé­laga og hags­muna­að­ila. Tekin verði ákvörðun um fyr­ir­liggj­andi kosti að und­an­gengnu mati og inn­viðir inn­an­lands- og sjúkra­flugs þannig tryggðir til fram­tíð­ar.“ Efn­is­greinin er mjög loðin og opin til túlk­un­ar.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var það með vilja gert, enda alls ekki ein­ing innan rík­is­stjórn­ar­innar þegar kemur að mál­efnum Reykja­vík­ur­flug­vall­ar. En það var alls ekki á stefnu­skránni að sá ágrein­ingur yrði gerður opin­ber nokkrum klukku­tímum eftir að rík­is­stjórnin var mynduð.

Áfengisfrumvarpið

Í byrjun febr­úar lögðu þing­menn úr fjórum flokkum, þar með talið öllum stjórn­ar­flokk­unum, fram frum­varp um að afnema ein­okum ÁTVR á áfeng­is­sölu. Málið hefur nokkrum sinnum áður verið lagt fram, í aðeins annarri mynd, en aldrei verið tekið til afgreiðslu á Alþingi. Nú töldu þeir sem stóðu að því þó víst að meiri­hluti væri á þing­inu fyrir mál­inu. Við lýði væri frjáls­lyndasta rík­is­stjórn Íslands­sög­unnar og styrkur hennar myndi duga til að klára málið í þetta skiptið, eitt skipti fyrir öll. Annað hefur komið á dag­inn.

Ásamt stjórn­ar­flokk­unum standa þrír þing­menn Pírata að frum­varp­inu. Þegar er ljóst að ekki er ein­ing innan þess flokks um málið og ljóst á yfir­lýs­ingum sumra þing­manna að þeir muni ekki veita mál­inu braut­ar­gengi. Fjöl­margir aðrir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa lýst yfir and­stöðu gegn frum­varp­inu og nýleg könnun sýnir að sex af hverjum tíu Íslend­ingum eru á móti breyt­ingum á gild­andi fyr­ir­komu­lagi.

Stjórn­ar­liðar hafa líka sett sig á móti því. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði nán­ast sam­stundis að hann muni greiða atkvæði á móti frum­varp­inu og heim­ildir Kjarnans herma að fleiri þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks séu á sama máli. Í ljósi þess að afnám ein­ok­unar ÁTVR á áfeng­is­sölu hefur verið mjög mik­il­vægt grund­vall­ar­mál í huga margra yngri og frjáls­lynd­ari þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks er ljóst að málið myndar sprungur víðar en á milli flokka. Þær sprungur eru einnig til staðar innan þeirra.

Kjaradeila sjómanna

En stærsti ágrein­ing­ur­inn sem rík­is­stjórnin hefur staðið frammi fyrir er vegna kjara­deilna sjó­manna og útgerða. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur verið skýr í sinni afstöðu hingað til og sagt að það komi ekki til greina að íslenska ríkið taki þátt í að greiða laun sjó­manna með sér­tækum aðgerðum. Eftir því hefur verið kallað bæði að hálfu verka­lýðs­for­kólfa sjó­manna og full­trúa útgerð­anna í land­inu að dag­pen­inga­greiðslur til sjó­manna verði gerðar skatt­frjálsar. Í raun er staðan í deil­unni þannig nú að deilu­að­il­arnir hafa sett það í hendur rík­is­ins að leysa hnút­inn og kraf­ist sér­tækra aðgerða.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er undir miklum þrýstingi frá stjórnarþingmönnum að beygja sig gagnvart framsettum kröfum í kjaradeilu sjómanna. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er undir miklum þrýst­ingi frá stjórn­ar­þing­mönnum að beygja sig gagn­vart fram­settum kröfum í kjara­deilu sjó­manna. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Vafamál er hvort að slíkt stand­ist lög um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur. Þar stendur í 17. grein að óheim­ilt sé að hefja vinnu­stöðvun „Ef til­gangur vinnu­stöðv­un­ar­innar er að þvinga stjórn­ar­völdin til að fram­kvæma athafnir, sem þeim lögum sam­kvæmt ekki ber að fram­kvæma, eða fram­kvæma ekki athafnir, sem þeim lögum sam­kvæmt er skylt að fram­kvæma, enda sé ekki um að ræða athafnir, þar sem stjórn­ar­völdin eru aðili sem atvinnu­rek­andi.“ Kjarninn hefur upp­lýs­ingar um að yfir­stand­andi kjara­deila hafi verið mátuð við þetta ákvæði í stjórn­sýsl­unni.

Þing­flokkar Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar standa heilir á bak við afstöðu Þor­gerðar Katrínar um að ekki komi til greina að end­ur­vekja sjó­manna­af­slátt eða grípa til sér­tækra skattaí­viln­ana sem geri það að verkum að ríkið gefi frá sér tekjur til að auka tekjur sjó­manna. Bjarni Bene­dikts­son hefur líka stutt afstöðu Þor­gerðar Katrínar. Hann sagði m.a. í Silfrinu fyrr í þessum mán­uði að það kæmi ekki til greina að taka upp sjó­manna­af­slátt að nýju.

Þótt for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi þá skoðun þá eru ekki allir í flokki hans á sama máli. Sumir þeirra, t.d. Páll Magn­ús­son, hafa tjáð sig um málið opin­ber­lega. Hann sagði í Morg­un­út­varpi Rásar 2 þann 6. febr­úar að ekki væri hægt að úti­loka að ríkið þyrfti að grípa inn í deil­una. „ Stjórn­völd geta ekki látið þessa auð­lind þjóð­ar­innar liggja óbætta hjá garði. Það er bara óraun­sæi og ég veit svo sem ekki hvern menn eru að blekkja með því ef þeir eru að halda því fram að það sé hægt eða að stað­hæfa það að það verði ekki undir neinum kring­um­stæðum gripið inn í þessa kjara­deilu[...]Mér finnst hins vegar alveg koma til greina að t.d. að skoða þann hluta af fæð­is­pen­ingum sjó­manna sem má líta á eins og dag­pen­inga ann­arra stétta, þ.e.a.s. kostn­aður sjó­manna sem hlýst af því að þeir geta ekki borðað heima hjá sér og þurfa að borga fyrir fæðið ann­ars staðar. Aðrar stéttir, þ.m.t. opin­berir starfs­menn, hafa dag­pen­inga sem eru skatt­lausir að þessu leyti.“ Skoðun Páls á mál­inu rímar að öllu leyti við þær kröfur sem Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafa sett fram gagn­vart rík­inu. Heim­ildir Kjarnans herma að Páll sé alls ekki eini þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem hefur þessa skoðun og að mik­ill þrýst­ingur sé frá hluta þing­flokks hans á Þorgerði Katrínu að láta undan kröfum SFS og grípa til sér­tækrar lausnar á deil­unni.

Jafnlaunavottun

Þá er komið að frum­varpi um jafn­launa­vottun, sem Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, ætlar að leggja fram í mars. Kveðið var á um málið í stjórn­ar­sátt­mála þar sem stendur: „ því skyni að sporna við launa­mis­rétti af völdum kyn­ferðis verði áskilið að fyr­ir­tæki með 25 starfs­menn eða fleiri taki upp árlega jafn­launa­vottun.“ Þing­flokkar allra þriggja flokk­anna sem stóðu að myndun rík­is­stjórn­ar­innar sam­þykktu stjórn­ar­sátt­mál­ann áður en rík­is­stjórnin var form­lega mynduð.

Það hefur samt sem áður opin­ber­ast á und­an­förnum dögum að hluti þing­flokks Sjálf­stæð­is­manna ætlar ekki að greiða atkvæði með frum­varp­inu. Tveir þing­menn, þeir Óli Björn Kára­son og Brynjar Níels­son, hafa lýst því yfir að þeir muni ekki styðja frum­varp­ið. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hefur aðeins eins þing­manns meiri­hluta og ef Óli Björn og Brynjar standa við það að styðja ekki frum­varpið þarf því stjórn­ar­and­staðan að sitja hjá eða greiða atkvæði með frum­varp­inu svo það nái fram að ganga.

Vinstri græn, Sam­fylk­ingin og Píratar vilja öll fá að sjá og lesa frum­varp um jafn­launa­vottun áður en flokk­arnir taka afstöðu til þess hvort þeir munu styðja frum­varp­ið. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur enn ekki rætt Því er ekki ljóst að rík­is­stjórnin geti treyst á stjórn­ar­and­stöð­una til að sigla mál­inu í höfn. Sér­stak­lega vegna þess að heim­ildir Kjarnans herma að fleiri þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu ekki sann­færðir um ágæti jafn­launa­vott­unar og muni mögu­lega standa gegn lög­fest­ingu hennar.

Afstaða Brynjars og Óla Björns kemur að ein­hverju leyti á óvart því að þeir hafa báðir tjáð sig opin­ber­lega áður um að stjórn­ar­þing­menn og ráð­herrar eigi að styðja rík­is­stjórn­ina. Brynjar skrif­aði pistil á Pressuna fyrir rúmu ári síðan þar sem hann gagn­rýndi Frosta Sig­ur­jóns­son, þáver­andi for­mann efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, fyrir að styðja ekki aðild Íslands að Inn­viða­fjár­fest­inga­banka Asíu. Í pistl­inum sagði Brynjar: „Rétt er hjá for­manni efna­hags- og við­skipta­nefndar að hver og einn þing­maður hefur frelsi til að greiða atkvæði í þessu máli eins og honum sýn­ist. Það á við öll mál enda gerir stjórn­ar­skráin ráð fyrir því. Einnig er rétt hjá for­mann­inum að ekk­ert er í stjórn­ar­sátt­mál­anum um aðild okkar að inn­viða­fjár­fest­inga­banka hinum megin á jörð­inni. En for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar verður að gera upp við sig hvort hann styðji rík­is­stjórn­ina. Að greiða á móti ein­stökum liðum fjár­laga­frum­varps eða að sitja hjá gengur ekki í stjórn­ar­sam­starfi.“

Í ágúst 2016 gagn­rýndi Óli Björn, þá vara­þing­maður og fram­bjóð­andi í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks fyrir haust­kosn­ing­arnar, Eygló Harð­ar­dóttur, þá félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, fyrir að sitja hjá í atkvæða­greiðslu um fjár­mála­áætl­un og fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar á Alþingi. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði Óli Björn: „„Ráðherra sem ákveður að styðja ekki rík­is­stjórn­ar­mál hef­ur tekið ákvörðun um að af­henda for­sæt­is­ráð­herra af­sagn­ar­bréf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár