Stjórnarandstaðan tekur ekki afstöðu til óséðs jafnlaunavottunarfrumvarps

Píratar, VG og Sam­fylk­ingin vilja sjá frum­varp um jafn­launa­vottun áður en flokk­arnir taka afstöðu til þeirra. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur ekki rætt frum­varpið.

Vinstri græn, Sam­fylk­ingin og Píratar vilja öll fá að sjá og lesa frum­varp um jafn­launa­vottun áður en flokk­arnir taka afstöðu til þess hvort þeir munu styðja frum­varpið. Þetta kemur fram í svörum þing­flokks­for­manna þeirra, Svan­dísar Svav­ars­dóttur, Oddnýjar Harð­ar­dóttur og Ástu Guðrúnar Helga­dóttur, við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Þórunn Egils­dóttir, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir flokk­inn flokk jafn­réttis en málið hafi ekki verið form­lega rætt á þing­flokks­fundi.

Frumvarp um jafn­launa­vottun er í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir vor­þingið og kveðið er á um það í stjórn­ar­sátt­mála. Hins vegar hafa tveir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson, lýst því yfir að þeir muni ekki styðja frum­varpið. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hefur aðeins eins þing­manns meiri­hluta og ef Óli Björn og Brynjar standa við það að styðja ekki frum­varpið þarf því stjórn­ar­and­staðan að sitja hjá eða greiða atkvæði með frum­varp­inu svo það nái fram að ganga.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur sagt að hann hafi ekki áhyggjur af því að málið nái ekki fram að ganga. „Ég hef eng­ar áhyggj­ur af því. Það er skýrt kveðið á um þetta í stjórn­arsátt­mála. Auðvitað ber þá þing­flokk­ur sjálf­stæð­is­manna ábyrgð á stuðn­ingi sín­um við stjórn­ar­frum­vörp. Það verða menn bara að ræða heima­fyr­ir í þeim efn­um. En það er líka ljóst að málið nýt­ur stuðn­ings á þingi langt út fyr­ir stjórn­ar­flokk­ana. Við mun­um að sjálf­sögðu halda ótrauð áfram með und­ir­bún­ing máls­ins og leggja það fram á þingi í vor,“ sagði Þor­steinn við mbl.is í dag.

Hann hvatti Brynjar og Óla Björn til að kynna sér málið betur, sem og vænt­an­legt frum­varp þegar það kemur fram. „Það er bara í takt við vönduð vinnu­brögð að móta skoð­anir sínar á grund­velli mál­efn­anna þegar þau eru komin fram full­mótuð en ekki á get­gátum um það hvernig þau munu mögu­lega líta út.“

Það hyggj­ast stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir VG, Píratar og Sam­fylk­ingin gera.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður VG, segir við Kjarnann að flokk­ur­inn þurfi að sjá frum­varpið til að geta tekið afstöðu til þess. Sömu sögu sagði Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem vill lesa frum­varpið áður en hún tekur afstöðu. „En ég tel almennt nauð­syn­legt að stjórn­völd beiti sér gegn kyn­bundnum launa­mun.“

Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hvernig atkvæði verði greidd, enda hafi málið ekki verið rætt í þing­flokknum. „Mér finnst þetta alveg áhuga­verð hug­mynd en það fer svo­lítið eftir útfærsl­unni hvort ég muni styðja frum­varpið sem slíkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár