Lagabreytingar ógna blaðamennsku í Bretlandi

Ný drög að frum­varpi sem leggja á fyrir breska þingið kveða á um að frétta­fólk geti setið í fang­elsi í allt að 14 ár fyrir að taka við við­kvæmum gögnum, búa yfir þeim eða með­höndla þau. Drögin hafa mætt harðri gagn­rýni í Bret­landi.

Höfuðstöðvar MI6
Höf­uð­stöðvar MI6 Bygg­ingin, sem stendur við Vauxhall Cross-stræti, er í póst­módernískum bygg­ing­ar­stíl og var teiknuð af arki­tekt­inum Terry Farrell.

Verði laga­breyt­ingar sem leggja á fyrir breska þing­inu að veru­leika verður til heim­ild til að refsa frétta­fólki sem tekur við upp­lýs­ingum sem lekið hafa frá yfir­völdum. Allt að 14 ára fang­elsi gæti beðið þeirra sem taka við gögnum sem inni­halda við­kvæmar upp­lýs­ingar.

Nú stendur yfir fyrsta meiri háttar breyt­ingin frá árinu 1911 á svoköll­uðum „Lögum um trún­að­ar­mál“. [e. Official Secrets Acts] Breyt­ing­unum er ætlað að mæta auk­inni ógn sem Bretar telja að stafi af Rússum, og miðar að því að refsa njósn­urum sem leka trún­að­ar­upp­lýs­ingum til ann­arra þjóð­ríkja, njósna um bresk sendi­ráð og þeim sem taka við upp­lýs­ingum frá þessum ein­stak­lingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár