Ráðuneytið telur að afnám stimpilgjalda „raski í engu launakerfi sjómanna“

Hags­muna­sam­tök sjó­manna telja að stimp­il­gjöld á fiski­skip hafi verið nauð­syn­legur hem­ill til að vernda störf íslenskra sjó­manna. Ráðu­neyti sjáv­ar­út­vegs­mála telur það hins vegar mögu­lega fela í sér tæki­færi fyrir íslenska sjó­menn.

Kristján Þór Júlíusson er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, sem fer með sjáv­ar­út­vegs­mál, telur að afnám stimp­il­gjalda af fiski­skipum, sem lögð er til í frum­varpi Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, raski í engu launa­kerfi sjó­manna við veiðar íslenskra skipa úr íslenskum veiði­heim­ildum. „Þá verður ekki séð að til­lagan hafi nein bein áhrif á aðrar veiðar sem nú eru stund­aðar. Með til­lög­unni verður hæg­ara að flytja skip tíma­bundið til ann­ars ríkis, t.d. til Græn­lands, en benda má á að með því geta orðið til nýjar eða auknar tekjur hjá íslenskum útgerð­ar­fé­lögum og mögu­lega jafn­framt tæki­færi fyrir íslenska sjó­menn. “

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem ráðu­neytið hefur skilað inn til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis sem hefur frum­varpið nú til með­ferðar.

Tilefni minn­is­blaðs­ins eru umsagnir Sjó­manna­sam­bands Íslands og VM - félags vél­stjóra og málm­tækni­manna um frum­varpið þar sem þau sögð­ust ekki geta undir neinum kring­um­stæðum nema að einu leiti tekið undir nauð­syn þess að afnema stimp­il­gjöld af fiski­skip­um. Und­an­tekn­ingin sé sú þegar skip komi í fyrsta skipti á íslenska skipa­skrá.

Telja að stimp­il­gjöldin hafi verið nauð­syn­legur hem­ill

Í umsögn þeirra sagði að stimp­il­gjöldin hafi verið nauð­syn­legur hem­ill til að vernda störf íslenskra sjó­manna sem taka laun eftir íslenskum kjara­samn­ing­um. Félögin benda á að í lang flestum til­fellum séu íslenskir sjó­menn fjöl­skyldu­menn sem eigi lífs­við­ur­væri sitt undir öruggu rekstr­ar­um­hverfi þeirra skipa sem séu þeirra starfs­vett­vang­ur. „Með því að aflétta stimp­il­gjaldi er útgerð­inni gert kleift að flagga skipum út og inni af íslenskri skipa­skrá að eigin geð­þótta og stefna afkomu sjó­mann­anna í stór­hætt­u.“

[adspot]Þar sagði einnig að í ljósi þess sem fram hefði komið í „Sam­herj­a­skjöl­unum“ svoköll­uðu ætti Alþingi að fara sér afar hægt í þessum efnum.

Áður hafði félag skip­stjórn­ar­manna skilað sam­bæri­legri umsögn og sagt að ákvæði lag­anna um stimp­il­gjöld væri sá þrösk­uldur sem komið hefði í veg fyrir „stór­aukna hreyf­ingu skipa inn og út af íslenskri skipa­skrá undir erlent flagg og til baka.“

Þessu er ráðu­neyti sjáv­ar­út­vegs­mála, sem stýrt er af Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, algjör­lega ósam­mála. Hægt er að lesa minns­blað ráðu­neyt­is­ins í heild sinni hér. 

Ráðuneytið tekur undir sjónarmið SFS

Afnám stimp­il­gjalda af fiski­skipum hefur lengi verið bar­áttu­mál Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), sem gæta hags­muna útgerð­ar­manna. Í umsögn þeirra við frum­varpið, sem var birt í lok nóv­em­ber í fyrra, segja þau að mik­il­vægt sé að „heima­til­búnar hindr­anir dragi ekki mátt úr íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum sem eiga í harðri sam­keppni á alþjóð­legum mark­aði. Stjórn­völd eru hvött til þess að gæta að sam­keppn­is­hæfni íslenskra útflutn­ings­fyr­ir­tækja því að í þeim efnum er hæg­ara að styðja en reisa.“

SFS þver­tekur einnig, líkt og ráðu­neyti sjáv­ar­út­vegs­mála, fyrir það að staða íslenskra sjó­manna muni breyt­ast verði stimp­il­gjöldin afnum­in. Á árunum 2008 til 2017 greiddu sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki rúm­­lega 1,2 millj­­arða króna í stimp­il­­gjald vegna fiski­­skipa.

SFS hafa barist hart fyrir því að gjaldið verði afn­u­mið und­an­farin miss­eri, meðal ann­ars í umsögn um fjár­­laga­frum­varp fyrir árið 2020 þegar það lá fyrir seint á síð­asta ári. Þar sögðu þau aðgerð­ina nauð­­syn­­lega og löngu tíma­­bæra.

Í umsögn­inni sagði meðal ann­­ars að það væri mat sam­tak­anna að mik­il­vægt sé að átta sig á því að skip séu ekk­ert annað en atvinn­u­tæki þeirra sem þau nota. „Með því að fara fram á háa greiðslu stimp­il­gjalda vegna skipa sem eru yfir 5 brúttó­­tonnum á sér stað mis­­munun eftir atvinn­u­­grein­um, enda ljóst að aðrir lög­­að­ilar sem not­­ast þurfa við tæki á borð við flug­­­vél­­ar, rút­­­ur, vinn­u­­vélar eða önnur stór­­virk atvinn­u­tæki er ekki skylt að greiða stimp­il­­gjöld.[...] Jafn­­framt ber að nefna að fyr­ir­tæki í útgerð sem hafa áhuga á að end­­ur­nýja sinn skipa­­kost, þurfa ekki aðeins að greiða 1,6% stimp­il­­gjald heldur verður það 3,2% af verð­­mæti við­­skipt­anna sem fer í stimp­il­­gjöld. Þannig þurfa fyr­ir­tækin jafnan að greiða bæði gjaldið við sölu eldra skips og síðan aftur við kaup á nýju skipi og því verður álagn­ingin í raun tvö­­föld við end­­ur­nýjun skipa­stóls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár