Hnakkrifist um Tortóla-félag eiginkonu forsætisráðherra á þingi

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, var þeirrar skoðunar að það væri óviðurkvæmilegt að ætlast til þess að rætt yrði um fjármál Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíðs.
Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, var þeirrar skoð­unar að það væri óvið­ur­kvæmi­legt að ætl­ast til þess að rætt yrði um fjár­mál Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar vilja að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra komi fyrir þingið og geri grein fyrir félag­inu sem eig­in­kona hans á á Tortóla. Því var meðal ann­ars velt upp á þing­inu í dag hvort Sig­mundur hefði brotið siða­reglur þing­manna, ef þær hefðu verið komnar til fram­kvæmda, en þær eru á dag­skrá þings­ins í dag.

Björn Valur Gíslason, vara­þing­maður VG, óskaði eftir því í upp­hafi þing­fundar í dag að fund­inum yrði frestað og Sigmundi Davíð yrði gef­inn kostur á því að mæta í þingið og gera grein fyrir mál­inu. Eins og greint hefur verið frá á Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, kona for­sæt­is­ráð­herra, félag á Tortóla sem heldur utan um fjöl­skyldu­arf hennar. Hún hefur sagt að um hennar sér­eign sé að ræða.

„For­sæt­is­ráð­herra­hjónin eru í gegnum pen­inga­fé­lag sitt skráð á Tortóla meðal kröfu­hafa í alla íslensku bank­anna upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna,“ sagði Björn Valur meðal ann­ars. Á sama tíma og for­sæt­is­ráð­herra hefði kraf­ist þess að fá að vita hverjir kröfu­haf­arnir, hrægamm­arnir, væru, hefði hann verið einn af þeim. Þetta hefði verið á sama tíma og samið hafi verið við kröfu­haf­ana. Það væri því full­kom­lega eðli­leg krafa að fresta fund­inum og gefa Sigmundi, og öðrum ráð­herrum einnig, mögu­leika á því að segja frá málum af þessu tagi. Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, þvertók fyrir að gera nokkuð slíkt. Hann sagði að for­seti Alþingis teldi „þetta í hæsta máta mjög óvið­ur­kvæmi­legt og hafnar þess vegna algjör­lega þess­ari beiðni, vekur athygli á því að meðal ann­ars í hags­muna­skrán­ingu Alþingis er kveðið mjög skýrt á um það að upp­lýs­ingar um fjár­mál maka þing­manna eiga ekki erindi þar, og harmar þessa upp­á­komu.“

„Hér held ég að botn­inum hafi verið náð,“ sagði Þórunn Egils­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins um beiðni Björns Vals. „Hér er ekki verið að fela neitt. Ég krefst þess að hátt­virtur þing­maður biðj­ist afsök­unar á orðum sínum.“ Páll Jóhann Pálsson, sam­flokks­maður hennar, sagði það dap­ur­legt að heyra Björn Val „draga umræð­una niður í svaðið.“ Þá komu tveir ráð­herrar Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra einnig í ræðu­stól til að gagn­rýna Björn Val, og það gerði Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins líka. Þau töldu verið að draga maka for­sæt­is­ráð­herra inn í umræður á þing­inu, sem komi Alþingi ekk­ert við. „Að fara í þennan skíta­leið­angur sem hátt­virtur þing­maður Björn Valur Gíslason virð­ist leiða er algjör­lega sorg­legt og það sem er að gera út af við traust á Alþingi,“ sagði Gunnar Bragi.

Þessu voru stjórn­ar­and­stæð­ingar ekki sam­mála, og töldu eðli­legt að ræða málið. Það er ekki eins og sú umræða sem hér er vakin sé úr lausu lofti gripin, sagði Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður VG, hins vegar. Umræð­unni um fjár­mál Önnu Sig­ur­laugar, sem væru sann­ar­lega hennar mál, fylgdi að Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mu­dnar, „Það að tengja þetta mál stöðu for­sæt­is­ráð­herra og hans hags­munum og hags­muna­skrán­ingu er ákvörðun sem þau hafa tekið sjálf,“ sagði Svandís. Þess vegna væri mjög eðli­legt að ræða það hvort ekki ætti að gera svona ríka hags­muni, eins og væru til staðar í þessu máli, sýni­lega almenn­ingi með því að breyta hags­muna­skrán­ingum þing­manna. Bæði hún og Stein­grímur J. Sig­fús­son sam­flokks­maður hennar bentu á að á dag­skrá þings­ins í dag væri umræða um siða­reglur alþing­is­manna.

Stein­grímur sagði að þar standi meðal ann­ars að þing­mönnum beri að greina frá öllum hags­munum sem máli skipta og varði opin­ber störf þeirra. Þá kveði siða­regl­urnar enn fremur á um að þing­menn ættu að forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna og fjár­hags­legra hags­muna eða ann­arra hags­muna sem væru fag­legir, per­sónu­legir eða tengdir fjöl­skyldu þeirra. Þá eigi þing­menn að vekja athygli á öllum hags­munum sem máli skipta. „Vakti hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra athygli á hags­munum sínum, fjöl­skyldu­hags­munum sínum, sem kröfu­hafi íslensku bank­anna, þegar hér voru til með­ferðar frum­vörp um stöð­ug­leika­skatt og stöð­ug­leika­fram­lög?“ spurði Stein­grímur. „Hefði hann ekki brotið siða­regl­urnar hefðu þær verið komnar til fram­kvæmda með því að gera það ekki?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár