Sigmundur Davíð segir RÚV hafa tekið afstöðu í Wintris-málinu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að þegar hann starf­aði hjá RÚV til margra ára hefði það verið óhugs­andi að RÚV tæki þátt í vinnu­brögðum eins og þeim sem beitt var þegar frétta­menn­irnir Sven Bergman og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son tóku nú heims­frægt við­tal við hann. Það er upp­lifun Sig­mundar Davíðs að RÚV hafi tekið afstöðu í mál­inu með umfjöllun sinni og að ætl­unin hafi verið að setja við­mæl­and­ann, hann sjálfan, í sem allra verst ljós með því að segja ekki alla sög­una. Þetta kemur fram í við­tali við Sigmund Davíð í Morg­un­blað­inu í dag.

Í nýlegri könnun Félags­vís­inda­stofn­unar var spurt hvort fólki hafi þótt umfjöllun Kast­ljóss um aflands­fé­laga­eign íslenskra ráða­manna fag­leg. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti aðspurðra, 78 pró­sent, sögðu að þeim hafi þótt umfjöll­unin mjög eða frekar fag­leg. Einungis 14 pró­sent sögðu að þeim hafi þótt hún ófag­leg.

Í Morg­un­blað­inu kemur einnig fram að hann telji að svo­nefnd CFC-lög­gjöf nái ein­ungis til rekstr­ar­fé­laga. Félagið Wintris, sem var í helm­ing­seigu hans fram til loka árs 2009 þegar sá hluti var seldu til eig­in­konu Sig­mundar Davíðs á einn dal, sé ekki rekstr­ar­fé­lag. CFC-lög­gjöfin tók gildi hér­lendis dag­inn eftir að sala Sig­mundar Davíðs á félag­inu fór fram. CFC stendur fyrir Controlled Foreign Corporation, erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóði í lág­skatta­ríkjum, en lög um slík félög voru sett á Íslandi árið 2009 og lög­gjöfin inn­leidd í kjöl­farið. Lögin kveða meðal ann­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­ríki. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­svæðum eiga að skila sér­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­ar­gerð þar sem meðal ann­ars eru sund­ur­lið­aðar tekjur, skatta­legar leið­rétt­ingar, arðsút­hlutun og útreikn­ingur á hlut­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­reikn­inga, sem eiga að fylgja. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt.

Sig­mundur Davíð segir að end­ur­skoð­andi eig­in­konu sinnar hafi unnið fyrir hana skatt­fram­tal með sund­ur­liðað yfir­lit yfir eignir félags­ins frá því að áður en lög­gjöfin tók gildi. Því hafi skil­yrði hennar verið upp­fyllt og kona sín ætið greitt skatta í sam­ræmi við lög. Sig­mundur Davíð svarar því þó ekki beint í við­tal­inu hvort hann hafi skilað CFC-skýrslu ásamt grein­ar­gerð, líkt og lög gera ráð fyrir.

Sig­mundur Davíð sagði eig­in­konu sína reiðu­búna til að birta frek­ari gögn um skatta­mál þeirra hjona ef aðrir for­ystu­menn stjórn­ar­flokk­anna geri slíkt hið sama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár