Fallið frá skyldu um að auglýsa opinber störf í dagblöðum

Í nýjum drögum að reglum um aug­lýs­ingar lausra starfa hjá stofn­unum rík­is­ins er fallið frá skyldu um að aug­lýsa störf í dag­blaði á lands­vísu og aug­lýs­inga­skyldan stytt um fjóra daga

Bjarni Benediktsson,fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son,fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur lagt fram nýjar reglur um aug­lýs­ingu lausra starfa á vegum rík­is­ins til umsagnar á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Í regl­unum er fallið frá þeirri skyldu að stofn­anir þurfi að aug­lýsa störf í dag­blöðum en í stað þess verði laus störf aðeins aug­lýst á starfa­torgi.is. Þá verður aug­lýs­inga­tími jafn­framt styttur úr tveimur vikum yfir í tíu daga.

Auglýsingaskyldan stytt um fjóra daga

Samkvæmt reglum frá 1996 er stofn­unum rík­is­ins skylt að aug­lýsa öll laus störf laus til umsóknar, þó með und­an­tekn­ingum, á opin­berum vett­vangi. Fjár­mála­ráð­herra telur að í ljósi breytts umhverfis á aug­lýs­inga­mark­aði sé til­efni til þess að breyta fyr­ir­komu­lagi aug­lýs­inga lausra starfa hjá rík­inu með það fyrir augum að auka hag­kvæmni í reglu­bundnu aug­lýs­inga­ferli.

Lagt er til í drög­unum að nýju regl­unum að aug­lýs­inga­tími verði styttur úr tveimur vikum frá birt­ingu í dag­blaði yfir í tíu daga að lág­marki frá birt­ingu á sér­stöku vef­svæði, starfa­torg.is, fyrir laus störf hjá rík­inu. Með þessum breyt­ingum er því fallið frá þeim skyldum sem kveðið er á um í núver­andi reglum, skyldu um að aug­lýsa í dag­blaði á lands­vísu og gild­is­tími aug­lýs­inga verður styttur um fjóra daga. Eftir sem áður er stofn­unum frjálst að aug­lýsa í dag­blöðum sem og með öðrum hætti.

Ekki skylt að auglýsa hlutastörf fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu

Jafn­framt leggur ráð­herra til að í nýjum reglum verði ekki skylt að aug­lýsa hluta­störf fyrir fólk með skerta starfs­orku. Ríkið hefur leitað sam­starfs við Vinnu­mála­stofnun og VIRK, starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð, til að skipu­leggja fram­boð hluta­starfa hjá hinu opin­bera fyrir fólk með skerta starfs­getu.

Í drög­unum að nýju regl­unum segir að stofn­unum sé ekki skylt að auglýsa störf sem aðeins eiga að standa í tvo mánuði eða skemur, störf sem eru tímabundin vegna sérstakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, fæð­ingar- og for­eldra­or­lofs, námsleyfis, leyfis til starfa á vegum alþjóðastofn­ana enda sé ráðning­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mánuði sam­fellt.

Þá þarf ekki heldur að aug­lýsa störf sem auglýst hafa verið innan síðustu sex mánaða og í þeirri auglýsingu hafi þess verið getið að umsóknin geti gilt í sex mánuði frá birt­ingu. Störf vegna tímabund­inna vinnu­mark­aðsúrræða á vegum stjórnvalda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins og hluta­störf fyrir ein­stak­linga með skerta starfs­getu þarf ekki heldur að aug­lýsa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár