Önnur konan í Hlíðamálinu kærð á móti fyrir nauðgun

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hefur, fyrir hönd ann­ars sak­born­inga í Hlíða­mál­inu, kært aðra kon­una fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni og nauðgun. Hann seg­ist búast við breiðum stuðn­ingi frá Druslu­göng­unni og Stíga­mótum.

Önnur kvenn­anna í Hlíða­mál­inu svo­kall­aða hefur verið kærð fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni og nauðgun. Þetta stað­festir Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, verj­andi ann­ars sak­born­inga í fyrra mál­inu, en hann skrif­aði kæruna fyrir hönd umbjóð­anda síns, sem áður hafði sjálfur verið kærður fyrir nauðgun af sömu konu. „Nú býst hann bara við breiðum stuðn­ingi Druslu­göng­unnar og Stíga­móta og Beauty tips við þennan brota­þola í þessu kyn­ferð­is­brota­máli og fjölda­mót­mælum við lög­reglu­stöð­ina yfir því að kærða hafi ekki verið hneppt í gæslu­varð­hald,“ segir Vil­hjálmur í sam­tali við Stundina. 

Kæran var send til lög­reglu á sunnu­dag og afhent rétt­ar­gæslu­manni brota­þola á hádegi í dag. Í kærunni sem Vil­hjálmur skrif­aði er kon­unni gefið að sök að hafa áreitt mann­inn kyn­ferð­is­lega og síðan nauðgað honum þar sem hann lá uppi í rúmi í Hlíðunum, nær svefni en vöku með því að renna niður buxna­klauf­inni á honum, taka getn­að­ar­lim hans út og stinga honum upp í sig í nokkrar sek­úndur. Í kærunni kemur fram að fólkið fór saman niður í bæ að loknu prófi við Háskól­anum í Reykja­vík. Í kærunni er konan einnig ásökuð um að hafa áreitt mann­inn kyn­ferð­is­lega allt kvöldið bæði með orðum og í verki. Þar kemur fram að á Slipp­barnum hefði konan elt mann­inn inn á sal­erni þar sem hún er sögð hafa káfað á honum og sagst vilja hafa kyn­mök við hann. Þá liggur fyrir í gögnum máls­ins að konan hafi farið með hinum mann­inum í Hlíða­mál­inu, sem hún kærði einnig fyrir nauðgun, í 10-11 og keypt sleipi­efni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár