Pressan fær 300 milljóna hlutafjáraukningu og Björn Ingi hættir sem stjórnarformaður

Félag í eigu Róberts Wessman og fleiri kemur inn í Pressuna með 155 millj­ónir. Björn Ingi Hrafns­son hættir sem stjórn­ar­for­maður og útgef­andi en starfar áfram innan Pressunnar.

Björn Ingi Hrafnsson hefur verið útgefandi og stjórnarformaður Pressunnar en ætlar nú að hverfa til annarra verkefna innan samstæðunnar.
Björn Ingi Hrafns­son hefur verið útgef­andi og stjórn­ar­for­maður Pressunnar en ætlar nú að hverfa til ann­arra verk­efna innan sam­stæð­unnar. Mynd: Skjáskot

Útgáfu­fé­lagið Pressan er að ljúka hluta­fjár­aukn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en hlutafé verður aukið um 300 millj­ónir króna. Breiður hópur fjár­festa kemur að rekstr­inum með hluta­fjár­aukn­ing­unni, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Press­unni.

Samhliða þessu mun Björn Ingi Hrafns­son, stjórn­ar­for­maður og útgef­andi, hætta þeim störfum. Hann hverfur nú að eigin ósk til ann­arra verk­efna innan sam­stæð­unnar, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Gunn­laugur Árnason verður nýr stjórn­ar­for­maður, en hann er eig­andi breskra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja og starf­aði um fimm ára skeið sem blaða­maður hjá Reuters í London, auk þess sem hann var rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins árin 2005 til 2007.

Aðrir sem setj­ast í stjórn eru Þor­varður Gunn­ars­son, fyrrum for­stjóri Deloitte á Íslandi, Sesselja Vil­hjálms­dóttir fram­kvæmda­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins TagPlay og Halldór Krist­manns­son yfir­maður Sam­skipta- og mark­aðs­sviðs lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen.

Félag sem er í eigu Halldórs, Róberts Wessman, Árna Harð­ar­sonar, Hilmars Þórs Krist­ins­sonar og Jóhanns G. Jóhanns­sonar, Fjár­fest­inga­fé­lagið Dalurinn ehf., kemur inn með 155 millj­ónir króna.

Björn Ingi Hrafns­son og við­skipta­fé­lagi hans, Arnar Ægisson, taka þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni og sam­kvæmt til­kynn­ing­unni leggur félag í þeirra eigu fram 50 millj­ónir króna. Félag Hreins Lofts­sonar, Karls Steinars Ósk­ars­sonar og Matth­í­asar Björns­sonar eign­ast einnig hlut í Press­unni, en þeir áttu áður Bírting. Karl Steinar verður fram­kvæmda­stjóri félags­ins og Matthías Björns­son fjár­mála­stjóri þess. [links]

Andri Gunn­ars­son, Fannar Ólafsson og Gestur Breið­fjörð Gestsson eru eig­endur félags sem kemur inn í eig­enda­hóp­inn, en Fannar er bróðir Bjartar Ólafs­dóttur umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

Þá er verk­taka­fyr­ir­tækið Eykt ehf. skráð meðal nýrra hlut­hafa, en það er í eigu stjórn­ar­for­manns­ins Péturs Guð­munds­sonar. Skúli Gunnar Sig­fús­son, Sigurvin Ólafsson og Viggó Einar Hilm­ars­son eiga einnig allir félög sem koma inn í hlut­hafa­hóp­inn.

Pressan gefur út fjölda fjöl­miðla, meðal ann­ars Pressuna, Eyjuna og DV, og nýlega heim­il­aði Sam­keppn­is­eft­ir­litið að félagið tæki yfir tíma­rita­út­gáf­una Bírting, sem gefur út ýmis tíma­rit. Gert er ráð fyrir því sam­kvæmt til­kynn­ing­unni að sam­eig­in­leg velta Pressunnar og tengdra félaga verði um 1,3 millj­arður króna á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár