Björn Ingi tekur yfir ÍNN

Pressan ehf., félag sem er í meiri­hluta­eigu Björns Inga Hrafns­sonar og við­skipta­fé­laga hans, hefur til­kynnt Fjöl­miðla­nefnd um yfir­töku á sjón­varps­stöð­inni ÍNN. Þetta kemur fram í erindi sem Ingvi Hrafn Jónsson, sjón­varps­stjóri og stofn­andi ÍNN, hefur sent nefnd­inni og Vísir greinir frá.

Í erind­inu segir Ingvi Hrafn: „„Ástæðan er fyrst og fremst sú að und­ir­rit­aður er kom­inn á þann aldur að starfs­þrek mitt er ekki jafn mikið og áður var og auk­in­heldur hefur rekst­ur­inn verið þungur und­an­farið,“ og greinir í kjöl­farið frá því að hann hafi átt í við­ræðum við fyr­ir­svars­menn Pressunnar um yfir­töku félags­ins á rekstri ÍNN. „Eftir að félagið hafði verið í sölu­með­ferð varð úr að ég er nú að ganga til samn­inga við Björn Inga Hrafns­son, fjöl­miðla­mann og félag hans Pressuna ehf. um að yfir­taka rekstur ÍNN. Frum­kvæðið að þeim við­ræðum er frá mér komið og ég er mjög sáttur við vænt­an­lega aðkomu hans til yfir­töku félags­ins og tel það í góðum höndum hjá honum.“

Pressan ehf. hefur verið umsvifa­mikil á fjöl­miðla­mark­aði á und­an­förnum árum. Félagið keypti m.a. DV seint á árinu 2014 og rekur auk þess fjölda vefa og viku­blaða. Pressan ehf. hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2015 en á árinu 2014 skil­aði félagið hagn­aði upp á 11,5 millj­ónir króna. Engar upp­lýs­ingar voru í árs­reikn­ingi félags­ins um hverjar rekstr­ar­tekjur félags­ins voru á árinu 2014. ­Uppi­staðan í auknu veltufé frá rekstri virð­ist vera til­komin vegna nýrra lána ­sem Pressan fékk á árinu 2014 og gerir það að verkum að hand­bært fé frá rekstri er 184 millj­ónir króna.

Skuldir félags­ins juk­ust mikið á árinu 2014. Lang­tíma­skuldir sem voru engar í árs­lok 2013 voru orðnar 148 millj­ónir króna í lok árs 2014. Auk þess tvö­föld­uð­ust skamm­tíma­skuldir Pressunnar og voru orðn­ar 124 millj­ónir króna í lok árs. Því skuld­aði félagið sam­tals 272 millj­ónir króna í lok árs 2014, sem er fjórum sinnum meira en þær 68 millj­ónir króna sem félagið skuld­aði í lok árs árið áður. Ekki kemur fram í árs­reikn­ingnum hvenær þessi lán eru á gjald­daga né hverjir lán­veit­endur Pressunnar eru.

Eign­ar­hald Pressunnar ehf sam­kvæmt skrán­ingu hjá Fjöl­miðla­nefnd:

Kringlu­turn­inn, 28%, eig­endur Björn Ingi Hrafns­son, 50%, og Arnar Ægisson, 50%
Kringlu­eignir ehf., 31,85% eig­andi Björn Ingi Hrafns­son
AB 11 ehf., 11,15%, eig­endur Björn Ingi Hrafns­son, 50%, og Arnar Ægisson, 50%
Dr. Jón Óttar Ragn­ars­son, 11%
Steinn Kári Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri, 10%
Jakob Hrafns­son fram­kvæmda­stjóri, 8%

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár