Nú kostar minna að fara á túr

Tíða­vörur og getn­að­ar­varnir féllu niður úr efra þrepi virð­is­auka­skatts í það neðra í gær þegar ný lög tóku gildi. Lengi hefur verið barist fyrir þessum breyt­ingum enda eru þetta nauð­synja­vörur frekar en mun­að­ar­vörur.

Skattur á tíða­vörur og getn­að­ar­varnir lækk­aði í gær þegar ný lög tóku gildi. Fyrr í sumar sam­þykkti Alþingi að færa þessar vörur úr efra þrepi virð­is­auka­skatts, 24 pró­sentum, í lægra þrep virð­is­auka­skatts, 11 pró­sent.

Lengi hefur verið barist fyrir þessum breyt­ingum og hafa konur vakið athygli á því að það að fara á blæð­ingar sé ekki val og að skatt­leggja tíða­vörur, sem nauð­syn­legar eru flestum konum og öðru fólki sem fer á blæð­ingar, sem munað skjóti því skökku við.

Þriðja sinn sem frumvarpið var lagt fram á Alþingi

[links] Skatt­lagn­ing tíða­vara hefur lengi verið til umræðu hér á landi en frum­varp þess efnis hefur verið lagt fram þrisvar á Alþingi frá árinu 2015. Þann 11. júní síð­ast­lið­inn sam­þykkti Alþingi loks frum­varp um að lækka virð­is­auka­skatt á tíða­vörur og getn­að­ar­varnir úr efra þrepi í það neðra. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins sem lagt var fram af þing­mönnum Pírata, Sam­fylk­ingar, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins. 

Í gær, þann 1. sept­em­ber, tóku lögin síðan gildi sem gerir það að verkum að virð­is­auka­skattur á tíða­vörur á borð við dömu­bindi, túrtappa og álfa­bikar, lækkar úr 24 pró­sentum í 11 pró­sent. Auk þess munu allar teg­undir getn­að­ar­varna falla í lægra þrep virð­is­auka­skatts. [adspot] 

Munar um rúmlega 40 milljónir á ári

Talað var um afnám bleika skatts­ins í kjöl­far þess að frum­varpið var sam­þykkt á Alþingi. Svo­kall­aður bleiki skattur er þegar vörur sem ætl­aðar eru konum eru dýr­ari en sams­konar vörur fyrir karla. Fyrir gild­is­töku lag­anna féllu smokkar í lægra þrep virð­is­auka­skatts en aðrar getn­að­ar­varnir sem nýttar eru af konum í efra skatt­þrepið.

„Hver mán­uður skiptir íslenskar konur máli þegar kemur að kostn­aði tengdum getn­að­ar­vörnum og tíða­vörum. Sú ein­falda aðgerð að færa getn­að­ar­varnir og tíða­vörur úr efra virð­is­auka­skatts­þrep­inu niður í það neðra er stórt skref í átt­ina að því að létta þá efna­hags­legu byrgði kvenna sem þær bera umfram karl­menn líf­fræði sinnar vegna,“ segir í umsögn Femínista­fé­lag Háskóla Íslands um frum­varpið.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er greint frá því að áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs vegna lækk­unar virð­is­auka­skatts á tíða­vörur hljóðar upp á 37,9 millj­ónir árlega og fjórar millj­ónir vegna getn­að­ar­varna.

Kom til umræða að fella virðisaukaskattinn niður með öllu

Í nefnd­ar­á­liti efna­hags- og atvinnu nefnd­ar­innar segir að við umfjöllun máls­ins í nefnd­inni hafi komið til umræðu hvort til­efni væri til þess að fella virð­is­auka­skatt af þeim vörum sem frum­varpið varð­aði niður með öllu.

Hins vegar taldi nefndin að þar sem ekki hafi tíðkast að und­an­þiggja neyslu­vörur virð­is­auka­skatti með öllu hér á landi þá krefð­ist slík breyt­ing ítar­legri skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár