Tíðavörur loks viðurkenndar sem nauðsyn

Alþingi sam­þykkti á dög­unum að lækka virð­is­auka­skatt á tíða­vörum úr efra skatt­þrepi í neðra. Ákvörð­unin kemur í kjöl­far þess að konur hafa á síð­ustu árum vakið athygli á því að það skjóti skökku við að skatt­leggja ekki tíða­vörur sem nauð­synja­vörur.

Alþingi hefur sam­þykkt að lækka virð­is­auka­skatt á tíða­vörum úr efra þrepi niður í það neðra. Virð­is­auka­skattur á tíða­vörur á borð við dömu­bindi, túrtappa og álfa­bikar, lækka því úr 24 pró­sentum í 11 pró­sent. Skatt­lagn­ing tíða­vara hefur lengi verið til umræðu hér á landi en frum­varp þess efnis hefur verið lagt fram þrisvar á Alþingi frá árinu 2015. 

Umræðan á Alþingi kemur í kjöl­far þess að á und­an­förnum árum hafa konur hér á landi og víða um heim kraf­ist þess að stjórn­völd afnemi svo­kall­aðan túr­skatt. Túr­skattur er skatt­lagn­ing á tíða­vörur á borð við dömu­bindi og túrtappar en víða um heim eru þessar vörur skatt­lagðar sem mun­að­ar­vörur í stað nauð­synja­vara. Vakin hefur verið athygli á því að það að fara á blæð­ingar sé ekki val og það skjóti því í skökku við að skatt­leggja þær vörur sem nauð­syn­legar eru flestum konum og öðru fólki sem fer á blæð­ingar sem munað.

Barist fyrir afnámi túrskattsins víða um heim

Nokkur lönd hafa nú þegar afnumið eða lækkað skatt á tíða­vörum. Þar á meðal er Kenía en það var fyrsta landið í heimi til afnema skatt á tíð­ar­vörum árið 2004. Önnur lönd sem fylgt hafa á eftir eru Kanada, Írland, Indland og Ástralía. Tíu ríki í Banda­ríkj­unum hafa einnig lagt af túr­skatt­inn þar á meðal New York fylki og Flórída fylki.

Í Evr­ópu­sam­band­inu eru Bretland og Kýpur með lægsta skatt­hlut­fallið á tíða­vörum í Evr­ópu­sam­band­inu eða í kringum 5 pró­sent. Aðgerð­ar­sinnar í Bret­landi hafa hins vegar barist fyrir því að skatt­ur­inn sé afnumin og skrif­uðu 300.000 manns undir und­ir­skrifta­söfnun þess efnis. Samkvæmt lögum Evr­ópu­sam­bands­ins er hins­vegar bannað að afnema skatt á neyslu­vörur og því hafa bresk stjórn­völd lofað að lækka túr­skatt­inn í kjöl­far útgöngu lands­ins úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þangað til rennur skatt­ur­inn af tíða­vörum í sér­stakan sjóð til styrktar heilsu kvenna þar í landi.

Í Sviss og á Spáni standa nú yfir umræður um skatta­lækkun á tíða­vörum en Sviss stefnir á að lækka túr­skatt­inn niður í 2,5 pró­sent og Spánn niður í 4 pró­sent. Fyrir rúmum þremur árum sam­þykktu frönsk stjórn­völd að lækka skatt­lagn­ingu á tíða­vörum úr 20 pró­sentum í 5,5 pró­sent. 

Enn skatt­leggja þó meiri­hluti ríkja í Evrópu tíða­vörur. Í Ung­verja­landi er túr­skatt­ur­inn hæstur í 27 pró­sentum, Norð­ur­löndin fylgja þar þó fast eftir en þar er hann 25 pró­sent. Þar á eftir kemur Þýska­land með 19 pró­sent túr­skatt. Þá er Írland eina landið sem hefur afnumið álagn­ingu á hrein­læt­is­vörum kvenna.

„Hvers vegna er verið að skattleggja á mér legið?“

Túr­skatt­ur­inn svo­kall­aður hefur einnig lengi verið til umræðu hér á landi en frum­varp Þór­hildar Sunnu, sem sam­þykkt var á Alþingi á dög­unum, var þriðja frum­varpið sem lagt er fram um málið á Alþingi. Fyrsta frum­varpið var lagt fram af átta þing­mönnum, allt karlar, í des­em­ber 2015 í kjöl­far ræðu Heiðu Krist­ínar Helga­dóttir, þing­manns Bjartrar fram­tíðar, á Alþingi skömmu áður sem vakti mikla athygli.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­málm­ála­ráð­herra, hafði í nóv­em­ber 2015 kynnt aðgerðir á Alþingi um breyt­ingar á virð­is­auka­skatt­kerf­inu og af­nám ýmissa vöru­gjalda. Þar á meðal var að virð­is­auka­skattur á smokka, blei­ur og bleiu­fóður yrði lækk­aður en skatt­ur­inn á dömu­bindi, túr­tappa og aðrar hrein­lætis­vör­ur kvenna stóð í stað í 24 pró­sentum. Heiða Kristín beindi því fyr­ir­spurn til Bjarna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi og spurði ein­fald­lega hvers vegna væri verið að skatt­leggja á henni legið.

Í svari við fyr­ir­spurn Heiðu Krist­ín­ar sagði Bjarni að breyt­ing­ar á virðis­auka­skatt­kerf­inu hafi verið ætlað að létta barna­fjöl­skyld­um inn­kaup. Kerfið yrði aldrei full­gert og alltaf væri hægt að tína til vör­ur sem hægt væri að færa rök fyr­ir því að ættu að vera í hærra eða lægra skatt­þrepi. Á móti benti Heiða Krist­ín á að ein­mitt þessar vörur, dömu­bindi og túrtappar, gætu orðið til þess að hjálpa barna­fjöl­skyld­um enda væru þær mikið not­aðar af mæðrum.

Frumvarp þing­mann­anna hlaut þó ekki afgreiðslu á Alþingi og var lagt aftur fram af vara­þing­manni Pírata Oktavíu Hrund Jóns­dóttir í mars 2017 en það frum­varp hlaut ekki heldur afgreiðslu.

Ekki lengur skattlagt sem munaðarvara

Þann 11. júní síð­ast­lið­inn sam­þykkti Alþingi loks frum­varp um að lækka virð­is­auka­skatt á tíða­vörur og getn­að­ar­varnir úr efra þrepi í það neðra. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins sem lagt var fram af þing­mönnum Pírata, Sam­fylk­ingar, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins. Við gild­is­töku lag­anna mun virð­is­auka­skattur á tíða­vörur á borð við dömu­bindi, túrtappa og álfa­bikar, lækka úr 24 pró­sentum í 11 pró­sent.

Auk þess munu allar teg­undir getn­að­ar­varna falla í lægra þrep virð­is­auka­skatts. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að mark­mið frum­varps­ins sé að stuðla að bættri lýð­heilsu með því að draga úr kostn­aði vegna nauð­syn­legra hrein­læt­is­vara, ásamt því að jafna aðstöðumun not­anda mis­mun­andi forma getn­að­ar­varna.

„Með þessum leið­rétt­ingum fær­ist Ísland nær þeirri þróun sem hefur orðið í öðrum ríkjum með til­liti til aðgengis að nauð­syn­legum hrein­læt­is­vörum og getn­að­ar­vörnum á und­an­förnum árum. Á móti skilar bætt lýð­heilsa sparn­aði í heil­brigð­is­kerf­inu,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins.

Sjálfsögð og eðlileg breyting

Þór­hildur Sunna lagði frum­varpið fram í sept­em­ber í fyrra, frum­varpið gekk síðan til efna­hags- og við­skipta­nefndar í nóv­em­ber og óskaði nefndin eftir umsögnum um málið. Fjórum umsögnum var skilað inn, þar á meðal frá Kven­rétt­inda­fé­lagi Íslands og Femínista­fé­lagi Háskóla Íslands.

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands lýsti yfir stuðn­ingi við frum­varpið í umsögn sinni og sagði félagið breyt­ing­una vera sjálf­sagða og eðli­lega. „Tíða­vörur og getn­að­ar­varnir eru nauð­synja­vörur ekki lúx­usvörur og virð­is­auka­skatt­lagn­ing ætti að taka til­lit til þess. Tíða­vörur og getn­að­ar­vörur eru vörur sem nauð­syn­legar eru flestum konum og öðru fólki sem fer á blæð­ingar og kostn­aður við þær fellur aðal­lega á konur.“

Auk þess benti félagið á að í núgild­andi lögum falla smokkar í lægra þrep virð­is­auka­skatts og að félagið taldi það jafn­rétt­is­mál að getn­að­ar­varnir sem nýttar eru af konum séu í sama skatt­þrepi.

Munar um tæplega 40 milljónir á ári

Í umsögn Femínista­fé­lag Háskóla Íslands kom fram að félagið fagni því að frum­varpið væri komið í efn­is­lega umræðu eftir að hafa fylgst með fram­gangi þess í tvö ár. Félagið benti á að frum­varpið væri stórt skref í þá átt að létta efna­hags­lega byrði kvenna.

„Hver mán­uður skiptir íslenskar konur máli þegar kemur að kostn­aði tengdum getn­að­ar­vörnum og tíða­vörum. Sú ein­falda aðgerð að færa getn­að­ar­varnir og tíða­vörur úr efra virð­is­auka­skatts­þrep­inu niður í það neðra er stórt skref í átt­ina að því að létta þá efna­hags­legu byrgði kvenna sem þær bera umfram karl­menn líf­fræði sinnar vegna,“ segir í umsögn­inni.

Að með­al­tali eyðir kona, og annað fólks sem fer á blæð­ingar, 2535 dögum af ævi sinni á á túr. Ef gert er ráð fyrir að kona verji um 2.000 krónum á mán­uði í tíða­vörur þá nemur upp­hæðin um 26.000 krónum á ári. Kostn­aður kvenna vegna vegna tíða­vara nemur því nærri 1,2 millj­ónir króna yfir ævina ef miðað er við kona hafi blæð­ingar í 45 ár af ævi sinni.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að eng­inn kostn­aður er áætl­aður vegna þess­ara laga­breyt­inga, en áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs er um 37,9 millj­ónir króna á ári vegna lækkun virð­is­auka­skatts á tíða­vörum og um fjórar millj­ónir vegna getn­að­ar­varna.

Kom til umræða að fella virðisaukaskattinn niður með öllu

Í nefnd­ar­á­liti efna­hags- og atvinnu nefnd­ar­innar segir að við umfjöllun máls­ins í nefnd­inni hafi komið til umræðu hvort til­efni væri til þess að fella virð­is­auka­skatt af þeim vörum sem frum­varpið varð­aði niður með öllu. Hins vegar taldi nefndin að þar sem ekki hafi tíðkast að und­an­þiggja neyslu­vörur virð­is­auka­skatti með öllu hér á landi þá krefð­ist slík breyt­ing ítar­legri skoð­unar.

Femínista­fé­lag Háskóla Íslands fjall­aði um túr­fá­tækt (e.per­iod poverty) í umsögn sinni um frum­varpið. Túr­fá­tækt er þegar stúlkur og konur verða af þátt­töku í sam­fé­lag­inu vegna þess að þær hafi ekki aðgang að tíða­vörum sökum fátæktar.

Túr­fá­tækt hefur meðal ann­ars verið til umræðu í Bret­landi en sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sóknar á vegum sam­tak­anna Plan International U, hefur ein af hverjum tíu stúlkum í Bret­landi, á aldr­inum 14 til 21 árs, ekki efni á tíða­vörum. Auk þess sýna rann­sóknir sam­tak­anna að 49 pró­sent stúlkna á þessum aldri hafa misst dag úr skóla vegna blæð­inga.

Stúlkur á Indlandi mótmæla skömminni sem fylgir því að fara á túr þar í landi.
Stúlkur á Indlandi mót­mæla skömminni sem fylgir því að fara á túr þar í landi.

Í mars á þessu ári til­kynnti rík­is­stjórn Bret­lands að ríkið muni fjár­magna tíða­vörur í öllum breskum grunn­skólum og mennta­skólum. Aðgerð­ar­sinnin Amika George,sem barist hefur verið útrým­ingu túr­fá­tæktar í Bretland, sagði í sam­tali við BBC að ákvörðun stjórn­valda muni hafa gríð­ar­lega jákvæð áhrif á fjölda stúlkna. Rík­is­stjórn Skotlands til­kynnti jafn­framt í fyrra að ríkið myndi veita 5,2 millj­óna punda til að bjóða upp á tíð­ar­vörur í skól­anum, mennta­skólum og háskólum.

Grace Meng, þing­kona demókrata, lagði fram tvö frum­vörp um túr­fá­tækt í full­trúa­deild banda­ríska þings­ins í fyrra. Fyrra frum­varpið var lagt fram með það fyrir augum að draga úr þeim kostn­aði sem fylgir því að fara á blæð­ingar. Þar á meðal lagði hún til að skylda fyr­ir­tæki með meira en 100 starfs­menn að bjóða upp á tíða­vörur á sal­ernum sínum. Hitt frum­varpið sneri að skyldu fram­leið­enda að taka fram inni­halds­efni í slíkum vörum.

„Áhugi á mál­efn­inu eykst með hverjum degi. Í raun snýst þetta um jafn­ræði og aðgengi,“ sagði Meng í sam­tali við New York Times.

Takmörkum ekki þátttöku helmings þjóðarinnar með lélegu aðgengi að hreinlætisvörum

Femínista­fé­lag Háskóla Íslands segir í umsögn sinni að hér á landi sé ekki hægt að álykta að vanda­mál túr­fá­tæktar sé öðru­vísi hér farið en í við­mið­un­ar­löndum. Félagið lagði því til að Alþingi myndi breyta skil­grein­ing­unni á hug­tak­inu full­búin snyrt­ing í lögum um holl­ustu­hætti. Í núver­andi reglu­gerð Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins um holl­ustu­hætti er full­búin snyrt­ing skil­greind á eft­ir­far­andi hátt: ,,Fullbúin snyrt­ing er sér­stakt snyrti­her­bergi með vatns­sal­erni og hand­laug með heitu og köldu vatni, spegli, sápu og hand­þurrkum.”

Að mati félags­ins eru tíða­vörur nauð­syn­legar hrein­læt­is­vörur sem aðgengi­legar ættu að vera á öllum snyrt­ingum, hvort sem það er gegn gjaldi eður ei. „Eðli­leg­ast teljum við vera að sama gjald­frjálsa aðgengi væri að þeim eins og að sal­ern­is­pappír og sápu,“ segir í umsögn­inni

Þá segir félagið að fjöldi skóla og vinnu­staða bjóða þegar upp á einnota tíða­vörur á snyrt­ingum sínum og hafi það gef­ist mjög vel. Félagið lagði því til að hug­takið ,,full­búin snyrt­ing” yrði skil­greint í lögum á eft­ir­far­andi hátt: ,,Fullbúin snyrt­ing er sér­stakt snyrti­her­bergi með vatns­sal­erni og hand­laug með heitu og köldu vatni, spegli, sápu, sal­ern­is­pappír, einnota tíða­vörum, og hand­þurrkum.’’

Að mati Femínistafélags HÍ eru tíðavörur nauðsynlegar hreinlætisvörur sem aðgengilegar ættu að vera á öllum snyrtingum, hvort sem það er gegn gjaldi eður ei
Að mati Femínista­fé­lags HÍ eru tíða­vörur nauð­syn­legar hrein­læt­is­vörur sem aðgengi­legar ættu að vera á öllum snyrt­ingum, hvort sem það er gegn gjaldi eður ei

Félagið segir að þetta gæti orðið til þess að konur sem fari óvænt á blæð­ingar geti brugð­ist við þeim í nærum­hverfi sínum. „Við teljum að þetta skref myndi gera almenn­ings­rými á Íslandi að rýmum sem gera frekar ráð fyrir konum og lík­ömum þeirra í sam­fé­lag­inu. Þetta myndi verða til þess að stúlkur og konur sem upp­lifa túr­fá­tækt gætu stundað nám, vinnu, og frí­stundir áhyggju­lausar. Einnig yrði þetta til þess að konur sem fari óvænt á blæð­ingar geti brugð­ist við þeim í nærum­hverfi sínu án þess að þurfa að fara utan skóla, vinnu­staðar, eða þess rýmis þar sem þær eru í leit að tíða­vörum,“ segir í umsögn­inni.

Að lokum segir í umsögn­inni að félagið von­ist til þess að með þessum til­lögum geti Ísland tekið ákvörðun um að vera fram­sýnt kven­vin­sam­legt sam­fé­lag á heims­mæli­kvarða. „Sem gerir ráð fyrir því að konur getu verið fullir þátt­tak­endur á öllum sviðum sam­fé­lags­ins og að við tak­mörkum þátt­töku helm­ings þjóð­ar­innar ekki við lélegt aðgengi að hrein­læt­is­vörum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár