Nýgengi smita á landamærum birt í samhengi við fjölda komufarþega

Nú má sjá á töl­fræði­vef yfir­valda upp­lýs­ingar um 14 daga nýgengi smita sem grein­ast í landamæra­skimunum í sam­hengi við fjölda far­þega sem koma til lands­ins. Nýgengið er nú yfir 450 á hverja 100 þús­und far­þega.

Yfirvöld eru byrjuð að birta upplýsingar sem gefa gleggri mynd af 14 daga nýgengi smita í hópi komufarþega til landsins.
Yfirvöld eru byrjuð að birta upp­lýs­ingar sem gefa gleggri mynd af 14 daga nýgengi smita í hópi komu­far­þega til lands­ins. Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítalinn

Á vef yfir­valda um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, covid.is, má nú sjá nýja fram­setn­ingu á töl­fræði um landamæra­smit, þar sem greind smit í þeim litla far­þega­hópi sem til lands­ins kemur er settur í sam­hengi við fjölda far­þega sem koma, en ekki fjölda íbúa á Íslandi.[links]

Eins og Kjarninn fjall­aði um nýlega hafði fyrir all­nokkru verið bent á að það gæfi skakka mynd af stöðu mála að birta ein­ungis tölur yfir 14 daga nýgengi smita á landa­mærum í sam­hengi við hverja 100 þús­und íbúa á Íslandi.

Að birta töl­urnar með þeim hætti var jafn­vel sagt stuðla að rugl­ingi í umræð­unni, þar sem 14 daga nýgengi landamæra­smita á hverja 100 þús­und íbúa á Íslandi var iðu­lega lægra en 14 daga nýgengi inn­an­lands­smita, eins og töl­urnar voru fram­settar af hálfu yfir­valda.

Hlut­falls­lega hafa þó verið miklu fleiri smit í hópi far­þega sem hingað koma en inn­an­lands almennt. Fjórtán daga nýgengi smita á landa­mær­unum fór yfir 3.000 smit á hverja 100 þús­und far­þega sem til lands­ins koma þegar það var hæst síð­asta haust.

[adspot]

Það er meira en tífalt hærra en 14 daga nýgengi smita inn­an­lands hefur nokkru sinni orðið inn­an­lands, þegar svo­kall­aðar fyrstu og þriðju bylgjur far­ald­urs­ins stóðu sem hæst.

„Fólk hefur almennt ekk­ert rosa­lega djúpan skiln­ing á því hvernig þetta er reiknað út. Það er alveg eðli­legt að venju­legt fólk ruglist bara á þessu, því þetta er pínu rugl­and­i,“ sagði Már Örlygs­son for­rit­ari í sam­tali við Kjarn­ann fyrr í mán­uð­inum, en hann hefur und­an­farna mán­uði tekið töl­fræði um landamæra­smitin saman með þessum hætti og birt opin­ber­lega.

14 daga nýgengi á landamærum yfir 400 á hverja 100 þúsund farþega

Nú hafa emb­ætti land­læknis og almanna­varnir upp­fært töl­fræði­vef sinn og byrjað að birta upp­lýs­ing­arnar með sam­bæri­legum hætti, en það hafði verið til skoð­unar hjá sér­fræð­ingum sótt­varna­læknis um nokk­urt skeið.

Í dag er staðan þannig að 14 daga nýgengi smita inn­an­lands á hverja 100 þús­und íbúa á Íslandi var 25,6 en 14 daga nýgengi landamæra­smita á hverja 100 þús­und far­þega er 455 - og þá á eftir að koma í ljós hvort ein­hverjir grein­ist smit­aðir í seinni landamæra­skimun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár