Íslendingar komu með 72 milljarða í gegnum fjárfestingarleiðina

Seðla­bank­inn bauð árum saman upp á leið til að skipta gjald­eyri í krónur. Íslend­ingar komu með 72 millj­arða og fengu 17 millj­arða í virð­is­aukn­ingu. Ekki fást upp­lýs­ingar um hverjir þetta voru og því ekki hægt að bera saman nöfn í Panama­skjöl­unum.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri.

794 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands. Peningar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar. Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ingin, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna. Seðla­bank­inn segir að sér sé ekki heim­ilt að greina frá nöfnum þátt­tak­enda í gjald­eyr­is­út­boðum sínum vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæðis í lögum um Seðla­banka Íslands.

Erlend fjár­muna­eign Íslend­inga hefur verið mjög í sviðs­ljós­inu und­an­farnar vikur í kjöl­far frétta úr gagna­leka frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca. Í þeim kemur fram að um 600 Íslend­ingar teng­ist um 800 aflands­fé­lögum sem koma fram í skjöl­unum. Samkvæmt síð­ustu birtu upp­lýs­ingum frá Seðla­banka Íslands eiga Íslend­ingar rúm­lega þús­und millj­arða króna utan íslenska hag­kerf­is­ins. Hluti þeirra fjár­muna eru vistaðir í þekktum skatta­skjólum. Í lok árs 2014 áttu Íslend­ingar til dæmis 32 millj­arða króna á Tortóla-eyju, sem til­heyrir Bresku Jóm­frú­areyj­unum.

Ekki upplýst hverjir komu með fé í gegnum fjárfestingarleiðina

Fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leiðin, var gríð­ar­lega umdeild aðferð sem bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­hengju, krónu­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­magns­hafta og gerðu stjórn­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­ari losun þeirra hafta. Samkvæmt henni gátu þeir sem sam­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­stæð­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­stæð­ara gengi.

Þeir sem tóku á sig „tapið“ í þessum við­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­ast út úr íslenska hag­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­búnir að koma til Íslands og fjár­festa fyrir hann. Seðla­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­göngu­að­ila sem gerði við­skiptin mögu­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­sala og neyt­endur saman.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­inga­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar, sem sam­svarar um 206 millj­örðum króna. Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­bank­ans, líkt og venju­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­fest­inga­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­arðar króna. Skilyrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­eignum, verð­bréfum, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­fest­inga­kostum. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina hafi fengið um 20 pró­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

Gagnrýni á fjár­fest­ing­ar­leið­ina kom úr mörgum áttum, áður en ákveðið var að hætta útboðum hennar fyrir rúmu ári síðan. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gagn­rýndi hana meðal ann­ars fyrir að vera ósann­gjarna. Í sam­tali við Kjarnann í febr­úar 2014 sagði hann leið­ina fela í sér aðstöðumun milli inn­lendra og erlendra aðila.

Fjöl­miðlar hafa verið dug­legir við að segja fréttir af þeim aðilum sem blasað hefur við að hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina við að flytja pen­inga erlendis frá til lands­ins. Félög í eigu þeirra aðila hafa þá oftar en ekki ráð­ist í skulda­bréfa­út­gáfu sem sömu aðilar hafa keypt fyrir krón­urnar sem þeir fá fyrir gjald­eyr­inn sinn, og þar með hefur ákvæði um bind­ingu í verð­bréfum verið full­nægt. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Jóns Ólafs­sonar, Jóns Von Tetzchner, knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar, Ólafs Ólafs­sonar, Hjör­leifs Jak­obs­sonar, Ármanns Þor­valds­sonar, Kjartans Gunn­ars­sonar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wernerssona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unnar.

Athyglin hefur aftur beinst að leið­inni í kjöl­far opin­ber­unar á víð­femu eign­ar­haldi Íslend­inga á aflands­fé­lögum sem hægt er að finna upp­lýs­ingar um í gögnum sem lekið var frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca. Sú stofna sér­hæfir sig í stofnun og umsýslu skúffu­fé­laga fyrir aðila sem telja sig þurfa að eiga slík félög.

Fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar áttu sér stað 4. apríl síðastliðinn, í kjölfar þess að aflandsfélagaeign ráðamanna var opinberuð. Síðan þá hafa birst fleiri fréttir og skýringar um víðtæka aflandsfélagaeign annarra Íslendinga. Ekki er hægt að sannreyna hvort einhverjir þeirra sem nýttu sér fjárfestingarleiðina áttu falda sjóði í aflandsfélögum. Seðlabankinn telur sig ekki geta upplýst um hverjir nýttu sér leiðina. Mynd: Birgir Þór
Fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar áttu sér stað 4. apríl síð­ast­lið­inn, í kjöl­far þess að aflands­fé­laga­eign ráða­manna var opin­beruð. Síðan þá hafa birst fleiri fréttir og skýr­ingar um víð­tæka aflands­fé­laga­eign ann­arra Íslend­inga. Ekki er hægt að sann­reyna hvort ein­hverjir þeirra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina áttu falda sjóði í aflands­fé­lögum. Seðla­bank­inn telur sig ekki geta upp­lýst um hverjir nýttu sér leið­ina. Mynd: Birgir Þór

Í ljósi þeirrar opin­ber­unar óskaði Kjarninn eftir því að fá upp­lýs­ingar um hversu margir ein­stak­lingar og félög í eigu Íslend­inga hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Í svari bank­ans kom fram að laus­leg grein­ing hans sýndi að 794 inn­lendir fjár­festar hefðu komið með um 35 pró­sent fjár­hæð­ar­innar til lands­ins en 280 erlendir aðilar með 65 pró­sent hennar. „Við grein­ing­una voru erlend félög í eigu inn­lendra aðila talin sem inn­lendir fjár­festar,“ segir í svari Seðla­bank­ans.

Kjarninn fór einnig fram á að fá upp­lýs­ingar um hverjir hefðu tekið þátt í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar. Seðla­bank­inn telur sig ekki hafa heim­ild til að greina frá nöfnum þeirra sem það gerðu og vís­aði í þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um Seðla­banka Íslands.

Menn í rannsókn máttu koma með peninga til landsins

Fjár­fest­ing­ar­leiðin var ein­ungis fyrir efnað fólk. Lengi vel þurfti við­kom­andi að eiga að minnsta kosti 50 þús­und evrur sem hann vildi skipta í krónur til að taka þátt en sú upp­hæð var lækkuð í 25 þús­und evrur allra síð­ustu mán­uð­ina sem hún var við lýði. Lengst af þurfti því að minnsta kosti að eiga and­virði um sjö millj­óna króna í reiðufé til að taka þátt.

Ákveðin skil­yrði voru fyrir því að mega fara í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Á meðal þeirra er að fjár­festir­inn væri raun­veru­legur eig­andi þeirra fjár­muna sem hann ætlar sér að flytja inn til lands­ins. Auk þess er óheim­ilt að flytja fjár­muni fyrir hönd ann­ars eða ann­arra aðila. Annað skil­yrði var að fjár­festir lægi„ekki undir rök­studdum grun hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans um meint brot, ákærður af hand­hafa ákæru­valds eða kærður til lög­reglu af Seðla­bank­anum, og máli vegna þess sé enn ólokið hjá ákæru­valdi eða lög­reglu“.

Skil­mál­unum var þó breytt í des­em­ber 2012 þegar því var bætt inn að þeir aðilar sem liggi undir rök­studdum grun hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans um meint brot mættu ekki heldur taka þátt í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.

Engar tak­mark­anir voru hins vegar á þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni fyrir aðila sem voru til rann­sóknar eða jafn­vel í ákæru­ferli hjá öðrum emb­ættum en gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans. Þannig gat ein­stak­lingur setið í dóms­sal að morgni þar sem honum var gefið að hafa framið stór­kost­lega efna­hags­glæpi. Síðdegis gat hann tekið þátt í gjald­eyr­is­út­boði Seðla­bank­ans og tryggt sér tug­pró­senta­af­slátt af íslenskum krónum. Um kvöldið gat hann keypt sér íslenskt fyr­ir­tæki fyrir þessar sömu krónur.

Þessari frétta­skýr­ingu hefur verið breytt lít­il­lega. Í upp­haf­legu útgáfu hennar stóð að PwC á Íslandi hefði nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Það er ekki rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár